Færsluflokkur: Bloggar

Handhófskennd ferðasaga..

Eins og svo margir vita þá lagði ég Noregslendur undir fót í 8 daga ásamt næstum 40 manna hópi.
Leið okkar lá til Osló þar seinasta laugardag og byrjaði ferðalagið eins og svo oft með svona útlandaferðir í Leifsstöð, leiðinlegt að segja frá því en daginn áður töpuðum við fyrir Álftanesi í 1-2 tapi, sem enginn skilur, en svona erum við Sindrastelpur ótrúlegar!

Ég ráfaði um Leifsstöð með hinum og þessum. Endaði síðan í ferðahópnum, fékk símtal og leit í kringum mig, stökk af stað og mætti þar Jóhönnu bloggvinkonu minni með sambýling sínum og stjúpsyni á leið til Rhodos. Tryggvi sambýlingur hennar tók mynd af okkur vinkonunum saman, og ég gef mér það leyfi að stela myndinni frá Jóhönnu til að sýna ykkur!

Rhodos_2008 002


Sat á milli Rafns og pabba hans, Gauta í fluginu, sem var ekki frásögu færandi held ég nú barasta við lendingu. Er flugstjórinn var farinn að lækka flugið yfir Noregi og smá ókyrrð í loftinu fór ég að syngja, nokkuð hátt og söngla með á milli ,, don't worry.... be happy... dííídúdúdúdúdí,dúdúdúdúdúdúdí, dúlílúlílú......". Það á sér sína ástæðu!
Var komin reyndar með svolítinn svefngalsa enda ekki búin að sofa neitt, kallaði í flugfreyjuna og klagaði einn strák fyrir framan mig. Hrópaði upp yfir mig ,, EEEN hvað þetta er fallegt! " svo eitthvað sé upp talið....Blush

Til að gera langa fótboltasögu stutta þá töpuðum við fyrsta leiknum 1-0 á kjánalegan hátt. Ég hafði m.a. gleymt hönskunum uppí skóla sem var ekki pínu séns að ná í fyrir leik, enda langt á milli, svo ég spilaði markmannshanska laus þann leikinn, en stóð mig þrátt fyrir það eins og hetja.
Við unnum síðan tvo leiki, svo að við komumst í 32 liða úrslit í A riðli. Þar kepptum við leik sem við vorum 1-0 undir alveg þar til að 3 mínútur voru eftir og skoruðum glæsilegt mark, sá leikur fór í framlengingu og sagði dómarinn okkur að það væri Golden Goal. S.s. liðið sem skoraði á undan ynni. Við gerðum okkur lítið fyrir og sigruðum þann leik 2-1.
Fengum að heyra stuttu seinna að hitt liðið hafði kært helv. leikinn svo að við þurftum að spila sama leikinn aftur og töpuðum í framlengingu 3-2 á óaðfinnanlegan hátt - vorum margfalt betri en engan veginn náðum við að klára færin almennilega.

Öll lið Sindra, eða 3 lið urðu úr leik á sama stað í keppninni, svo að við nýttum þetta og sumir fóru á hinn fræga skíðastökkpall og alla leiðina upp, þar á meðal ég. Glæsilegt útsýni yfir alla Osló og svo langt út á haf, ótrúlegt hvað menn og konur þora að stökkva svona!
Fórum líka í Tívolí og þar eyddi ég deginum með Rafni, fyrsta rússíbanaferðin var ekki eins heppileg og til var ætlast, þar sem einhver vitlaus maður tróð sér fram yfir okkur því að hann missti af sínum ferðafélögum. Og íslendingurinn sem ég nú er, settist við hliðina á á þessum vitleysing og gerðist enn vitlausari og sat ekki hjá til næstu ferðar....
Þessi rússíbanaferð fékk mig ekki til að hlæja og engan veginn til að brosa, bókstaflega. Ég grýtti töskunni í boxið þar sem þær eru geymdar með ljótasta fýlusvip sem fannst á svæðinu, sat eins og ég hafði aldrei gert neitt annað en að sitja í rússíbana, og fékk asna sár á puttann útaf beltinu.
Aftur á móti skemmti ég mér vel það sem eftir var af deginum og keypti meira að segja mynd af okkur Rafni í einum hraðasta rússíbana Evrópu, alveg svakalega fyndiðGrin...

Ég fór í búðarráp og var orðin þekktur kúnni á Burger King með mína pöntun ; stóran franskar og stóra kók, og alltaf með einhvern til að segja þetta fyrir mig.

Lenti oft í því þegar ég bað um vater að það var sagt HA við mig, svo ég endurtók orð mín og fékk ,, aa, vatheeeer " til baka...
Einu sinni sló ég upp í grín og endurtók eins og hermukráka sem konan sagði við mig, með svo breskum hreim að mig langaði til að æla. Sagði svo akúva og VANN strax þar á eftir, frekar svekkt á konunni að skilja ekki mína seinheppnu ensku..

Langa ferðalagið heim í gær var langt, en þrátt fyrir það alveg ágætt. Ég toppaði símtalsmetið mitt enn og aftur, ein klst. og 2 og hálf mínúta - geri aðrir betur. Varð aðeins að væla í vinkonu minni henni Signý, og þrasa aðeins við hanaLoL..
Frekar skondið að þrasa við manneskju sem maður heyrir hljóðið í, í annað skipti í lífi sínu.
Hún breyttist reyndar svo í frænku mína, samt bara andlega frænku, enda erum við eins og hún sagði báðar vitlausar, svo í þokkabót rauðhærðar, örvhentar, örfættar og lesblindar - ekki slæmt það!

Ég set inn myndir við gott tækifæri, einhverjar vel valdar.
Ég verð núna að skella mér í sturtu, búin að eyða kvöldinu í það að baka pítsu, fór í myndatöku með meistaraflokki kvk fyrir næsta leik sem ég set hér inn þegar hún kemur á netið. Síðasti heimaleikurinn okkar og þarna var tekið þemað Guðjón Þórðarson, við tökum okkur sundsprett í firðinum ( í staðin fyrir í köldu kari ) og það vita allir að maður býr ekki til kjúklingasalat úr kjúklingaskít. ( Vildi svo heppilega til að ég var kjúklingurinn á myndinni, einmitt " að skíta " )...LoL
Tók allt upp úr töskunum og gekk frá, setti nammi í skálar við sjónvarpið og pítsan bíður eftir fólkinu á eldhúsborðinu með diskum og tilheyrandi.

Eigið góðar stundir mín kæruHeart

Smá prufa

<a href="http://flagcounter.com/more/mo2"><img src="http://flagcounter.com/count/mo2/bg=FFFFFF/txt=000000/border=CCCCCC/columns=2/maxflags=12/viewers=3/labels=0/" border="0"></a>


Ég er lifandi!!!!!!

Ég vildi bara láta vita af mér, ég er komin heim, heim á Hornafjörð.
Ferðin var meiriháttar í alla staði, nema einn vitlausan dómaraskandal sem kostaði okkur SIGUR MÓTSINS......Angry

Ég segi meira á morgun, fórum af stað á Íslenskum tíma kl. 9 af stað en vöknuðum auðvitað kl. 6 á íslenskum tíma til að gera okkur til. Langt ferðalag af baki, svo ég ætla aðeins að geyma skrifin.

KnúsHeart

Að horfast í augu við óttann!

Ég verð að viðurkenna það fúslega að ég er sjúklega hrædd við tannlækna. Í dag fór ég í skoðun, heilt ár síðan ég fór síðast að ég held. Í síðasta tíma sem var 5. desember skrópaði ég eins og stóð á miðanum, mamma var látin vita. Ég komst upp með það í það skiptið, en núna þurfti ég að hjóla út á tannlæknastofu.
Ég hjólaði og gekk rakleiðis inn í biðstofuna. Óheppilega vildi til að ég gekk inn á skónum, en maður fer nú úr skónum í forstofunni eins og allir vita. Ég settist niður í fyrsta stólinn sem ég sá, tók eftir stuttu seinna að þarna væru skórnir, enn á löppunum á mér. en forstofan innan eins meters fjarlægð svo ég dreif mig úr skónum á mettíma og kastaði þeim fram.
Þetta var bara ein af þessum skoðunum, sem ég þoli hvort sem er ekki. Fékk að vita það að ég væri með tvær smáskemmdir í jöxlunum einhverstaðar tveimur. Sem hægt væri að halda aftur - sem betur fer!
Loftljósið er orðið betra heldur en ég mundi eftir, ég þarf ekki að pýra augun lengur.
En ég verð að játa það, að þetta var í annað skipti á minni lífsævi sem ég fer til tannlæknis ein og sjálf, og þarf ekki einhvern sem situr yfir mér - hvorki mamma, pabbi, systkini mín, né einhver vinur!

Er nefnilega óttalegt smábarn hvað það varðar, þurfti helst alltaf að hafa einhvern með mér til tannlæknis, til læknis og ekki má gleyma klippingu!
Reyndar er ég ekkert hrædd við fólk sem klippir hár, en ég er sjúklega hrædd við tannlækna og ekkert síður hrædd við lækna. Því að þeir eru þeir sem segja manni ef það er eitthvað að tönnum eða líkama manns. - Ég tala nú ekki um þegar við þurfum að fara til skólahjúkkunnar og fá að heyra að maður er í "yfirþyngd" eða ætti að passa sig....Blush
Mér líður bara engan vegin vel við að heyra það, ég er bara eins og ég er og HANANÚ.

Í gær var haldið í hina árlegu vinnuskólaútilegu. Veðrið var gott fram að kl. 4, þá fór að rigna og rigndi fram til morguns.
Ég eyddi þessum degi með Rafni mínum, fórum í fótbolta og ég í kýló. Eins og fólk veit vinn ég ekki beint fyrir vinnuskólann en fyrir bæinn þrátt fyrir það, og má þess vegna fara í bæjarvinnuna.
Svo ég þekki bara einn flokkstjórann og einn sem er yfir öllum flokkstjórunum, svo að í fótbolta fannst sumum töggur vera í stelpunni. Reyndar var ég bara ill á móti, enda læt ég ekki stráka vaða yfir mig og ýti bara harkalega á móti...Wink
Skoraði meira að segja eitt mark.....Tounge
Ég hljóp eins og vitleysingur á eftir boltanum og með boltann, svo að ég varð bara að gera eitt sem ég hef aldrei í lífi mínu gert áður né áætlað mér að gera. Ég gat ekki lyktað eins og skunkur svo að....
Ég stökk út í hyl, reyndar náði hann mér bara upp yfir brjóst, en samt. Ég stökk út í hyl og varð þar af leiðandi rennandi blaut!
En ég sem er ein mesta kuldaskræfa, stökk út í ískalt vatn, enda var ég komin í þá stöðu að detta fram á einhverja steina, eða stökkva út í hylinn!
Auðvitað var ég með föt til skiptanna, annars hefði þetta nú farið illaLoL..
Það var líka KUBB mót, og það vildi svo heppilega til, að þegar kosið var í lið, vorum við Rafn kosin í sama liðið. Sem betur fer má segja, enda unnum við líka kubbmótið, ekkert annað hægtLoL..

Jæja, mig langaði bara til að kveðja ykkur bloggvini og aðra lesendur og bið ég kærlega að heilsa ykkur. Þið megið ekki gleyma mér í þessa næstum 10 daga sem ég er í burtu, ég er að fara til Álftaness á morgun og næstu nótt höldum við bæði kvenna og karlalið 3. flokka Sindra til Osló á Norwaycup.
En, ég hugsa um einn dag í einu, og í dag hugsa ég um morgundaginn, fyrir leikinn á móti Álftanesi, áhugasamir mega mæta á Bessastaðavöll og á leikurinn að hefjast kl. 17.00 ANNAÐKVÖLD ( föstudagskvöld!)

RISA knús á ykkurHeart Og hafið það sem langbestHeart


Vitleysingjafærsla....

Í dag var ég látin vakta Byggðasafnið, m.a. mína eigin sýningu í tvo klukkutíma. Á þessum tveimur klukkutímum komu tveir menn, annar eldri kom hálf tíu og hinn yngri hálf ellefu. Báðir mennirnir báru til mín kveðju, báðir með þetta sama ,, Hæ ". Þeir áttu það líka sameiginlegt að vera erlendir - og örugglega hingað til lands komnir til að skoða.
Þeir gengu báðir rakleiðis að afgreiðsluborðinu og spurðu ,, há möts? ", ég svaraði þeim um hæl með einu ómerkilegu óskýru orði ,, noþþing ". Ég held að báðir hafi verið í vafa, enda svöruðu þeir mér strax ,, noþþEing? ", eins og einhverjar þvílíkar hermikrákur sem vildu hafa þetta rétt sagt..GetLost

Við fórum í Barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar út á Melatanga í fjársjóðsleit. Auðvitað gekk sú ferð ekki slysalaust fyrir sig - með skotturnar Ylfu og Salóme nálægt. Ég nefnilega fékk sár á hnéð, ekki þægilegt það, en ég lifi þetta alveg af... vonandi.

Ég var með vinkonum mínum Ylfu og Arney í hóp að leita að fjársjóðnum, og auðvitað var ekki sleppt mér, nema rétt til að taka myndir - sem allar heppnuðust misjafnlega illa. Þessar þrjár stelpur eru auðvitað bestu vinkonur mínar eins og allir vita, þó ég reyndi að segja þeim að ég væri besta vinkona sjálfs mín, fékk að heyra að það væri ekki satt....LoL

Bað Björgu um að taka mynd af okkur þremur vinkonunum, Ylfu, mér og Arney, svo ég vil endilega sýna ykkur hvað við erum góðar vinkonur!

P7220029
Svona var hangið á mér mestalla ferðina - eða í rétt rúmlega 4 klukkutíma, en það er bara ágætt svona eftir áGrin ..

P7220030

Þær eru algjörar krúttlur....Grin

Og bara til að bæta upp á myndabloggið læt ég fylgja hér skemmtilega frásögn af okkur mæðgum.

Hundurinn neitar alltaf að fara í búrið sem keypt var handa honum, enda að verða 5 ára greyið og ekki vanur því að vera í búri. Ég eins og alltaf varð bara að prófa búrið ( prófaði einmitt "rúmið" hans á sínum tíma..), Sædís systir hafði víst verið að reyna að troða sér þarna inn að sögn mömmu. En hætti við þegar hún sá að rassinn á henni gæti fest.
Ég eins og algjör villingur rauk inn í búrið þrátt fyrir að hafa fundið að rassinn á mér var næstum nógu stór til að fylla upp í þennan litla inngang sem er á þessu blessaða búri. Ég lá þarna inni og fann það út að það væri alveg hægt ef þörf myndi krefja, að sofa í rimlalöguðu búrinu.
Auðvitað verð ég að láta myndina fylgja;

P7220102
Mamma einmitt bað mig að vera grimmileg á svipinn svo þar hafið þið það... sést ekki einu sinni í andlitið mitt fyrir rimlum, en allt í lagi!

Áfram að sögunni, þá auðvitað þurfti ég að vera svona vitlaus og fara inn í búrið, og átti nógu erfitt með það. En svo kom að því að koma sér út, og nei. Út vildi rassinn ekki!!!GetLost ..
Svo þá tók mamma upp myndavélina, sem hún var að læra á þegar hún tók myndina hér fyrir ofan og sagðist verða að taka mynd af þessu, svo ég læt hana fylgja með líka....Blush

P7220107
Jább, rassin fastur .... og ég brosandi!!!

Hel. hundurinn tók hraða ferð inn í búrið og út aftur, stökk svo upp á það með tveimur löppum þegar mamma var að reyna að koma honum inní.....W00t Vitleysingurinn...

Núna ætla ég að undirbúa mig fyrir útilegu, farið verður kl. 9 svo ég hef engan tíma til að græja mig í fyrramálið!

Knús á ykkkkuuurHeart

Só jú þeink jú ken dens!

End spík enGlissj....

Mér finnst þessir þættir ekki skemmtilegir, nema að fólk er alveg glatað, svona eins og ef ég væri að reyna að dansa. Eða þá að það detti á andlitið - þá hlæ ég bara í kjánaskapnum í þeim að reyna að geta eitthvað sem þau geta ekki betur en þettaLoL ...

Ég lenti í því um daginn að afgreiða jú einhvern enskumælandi mann, ég held ég hafi sagt þessa sögu hérna en finn hana ekki svo ég segi hana aftur, eða í fyrsta skiptið.

Ég er svo vel gefin og gáfuð manneskja að ég var látin, eins vel dressuð og ég var, í afgreiðsluna á bókasafninu í kannski 3 mínútur. Það kom já, til mín enskumælandi maður og bað um að fá að ljósrita úr einni bók. Ég skildi allt sem hann sagði - panikkaði rosalega og sagði hratt og hvíslandi ,, kan jú veit a sekkont? ".
Trítlaði hálfhlæjandi að mér fyrir þessa vitleysu og náði í gáfulegri starfsmann.

Samstarfsfólkinu fannst voða sniðugt að hafa mig þarna til sýnis, enda ég rosa vel uppklædd - klæddi mig á mettíma, hafði aldrei á ævinni verið svona hrædd um að systir mín myndi rota mig eða eitthvað!

Aftur á móti var ég látin sitja yfir bókasafninu aftur í dag, ekki jafn sæt og ég var á föstudaginn, alls ekki. Bara engan veginn. Í hallærislegri, grárri, risastórri hettupeysu með ótrúlega misskildu merki Grunnskóla Hornafjarðar með nafnið Róslín A. vinstra megin. Reyndi að bjarga andlitinu mínu í gær, tók það algjörlega í gegn, og það misheppnaðist svona allhrikalega að bólurnar komu bara enn betur fram....GetLost
En, en, en! Ekki eins og það hafi verið eitthvað slæmt, þar sem ég er óskaplega sæt inni í mér ef ég er með ljótuna. Reyndar ógeðslega stríðin þegar ég er með ljótuna og reyndar bara alltaf, enda bara gaman af því.
Ég skilaði inn fullt, fullt af allskonar bókum og lánaði út líka. Tók frá bók ( og fann hana algjörlega sjálf ) fyrir mann og skráði strák í Fjársjóðsleitina á Melatanga á morgun.. stolt hélt ég svo í hina vinnuna mína þennan daginn, að hjálpa til að pakka niður listaverkum! Reyndar fann ég bara mynd af myndinni á blaði, annað ekkiGrin ....

Annars er að færast yfir mig einhver spenningur, skanna ekki inn myndir á morgun svo ég viti, fjársjóðsleit með krökkunum, alltaf gaman í barnastarfinu sko, á miðvikudaginn fer ég í útilegu með vinnuskólanum og verð með Rafni, fimmtudaginn fer ég til tannlæknis sem ég þooooori engan veginn, föstudaginn verður keyrt í bæinn og keppt á móti Álftanesi og út á laugardaginn og verð þar með 3. flokkum Sindra í fótbolta í 8-9. dagaSmile . Það má segja að ég sé útbókuð!

Eigið góða daga, ég fer núna að fara upp í rúm ( loksins fer ég snemma að sofa!!) og horfi á INGULÓ, þar fer Sólveig Arnarsdóttir með aðalhlutverkið og má segja að ég hlakki nú svolti til að sjá hvernig myndin er, hef aldrei séð hana!
Ætla að gera það að föstum liðum að horfa á íslenska mynd með reglulegu millibili, þær eru til margar úti á bókasafniGrin !!

Knús á ykkurHeart

,, Oh, hvað mér þykir þetta leiðinlegt ''....

Hefur komið alloft upp í hug minn síðustu vikuna. Annað hvort er það bloggið að hrjá mig eða vinnan.
Ég er komin með ógeð af því að skanna inn myndir, en ég get huggað mig við það að á þriðjudaginn er Fjársjóðsleit í barnastarfinu, og ætla ég að taka myndavél með til að taka myndir af umhverfinu og flottu krökkunum!

Það sem ég meina með bloggið er það hvað ég á marga bloggvini, margir misduglegir að líta við hjá mér, eða allavega láta vita. Og ég aftur á móti enn verri og kommenta já mjög fáum, enda er ég komin með leið á því að skrifa bara eitthvað bull til að láta vita af mér, þykir það mjög leiðinlegt.
Mig langar rosalega að taka smá stopp frá blogginu, eða allavega hafa meira bil á milli, þar sem að ég hef oft á tíðum mjög lítið að segja og svoleiðis bloggum þykir engum gaman að.

Í dag er búið að borða mikið af kökum og grillmati, enda ekki á hverjum degi sem heimilisfólkið á afmæli!

Sædís var ekkert allt of ánægð með myndina af sér hér í síðustu færslu, en mér fannst þetta svo hrikalega krúttleg mynd, fær mig alltaf til að hlæja!

Yfir helgina er ég bara búin að hafa það gott og reyna að sofa út svo að ég geti mætt hress í vinnuna. Búin að vera að dunda mér við að mála, og er núna að klára þriðju myndina!

Ég fer í útilegu á miðvikudaginn með vinnuskólanum, enda er ég partur af honum, bara í öðru hlutverki en hinir krakkarnir. Hlakka rosalega til að eiga heilan dag með Rafni mínum, enda langaði mig mest af öllu að eyða sumrinu a.m.k. hálfu með hinum.

Á föstudaginn verður leikur Sindra og Álftaness á Bessastaðavelli kl. 17.00, 3. flokkur kvenna. Áhugasamir mega alveg koma og styðja Sindrastúlkur, hinir gestir sem ekki koma í þeim tilgangi þurfa ekkert endilega að láta sjá sig...Wink
Ég hef lítið sem ekkert talað um það að ég er að fara til Noregs á laugardaginn næsta, á NorwayCup. 3. flokkar Sindra eru að fara út og sýna hvað í okkur býr, hlakka semí til, enda finnst mér ekki eins og ég sé að fara.
Það skemmtilegasta við það að fara í Leifsstöð gæti verið að ég hitti eina bloggvinkonu mína sem er að fara út sama dag, en er ekkert allt of viss um það, en maður veit aldrei.

En svo vil ég deila einu í viðbót með ykkur. Fyrir einhverjum vikum rakst ég inn á bloggsíðu hér á moggablogginu. Ég kíkti þar daglega inn til að hlusta á lögin sem eru í djúkboxinu, og núna reyndar kann ég þau öll utan að, en hlusta samt jafn mikið á.
Ég mannaði mig upp í að bjóða höfundi bloggsins í vinalistann minn, og fékk samþykki eftir annað skiptið ( hún segir að það hafi gerst óvart í fyrra skiptið að hún hafi neitað, en hvað veit maður!..).
Síðan stúlkan uppgötvaði Feisbúkkið hef ég talað við hana mikið, mikið og kynnst henni örlítið í þokkabót. Hún var sú sem manaði mig til að hringja, og viti menn ég stóðst áskorunina og hringdi og manneskjan hló og hló, á meðan ég skalf af hræðslu....GetLost LoL

Annars já, þegar öllu er á botninn hvolft, finnst mér þessi stúlka ótrúlega flott og á sko án efa framtíðina fyrir sér, í það minnsta í söng og bara tónlist almennt...

End ná, leidís end djentúlmens, jú ken gess hú ðat girl is!Tounge
Hér kemur myndin af listaverkinu! Vonandi að þetta hjálpi ykkur eitthvað Tounge

P7200005


Knúsa ykkur baraHeart

Hvernig er það að vera komin á þrítugsaldurinn?

10

En, til hamingju með afmælið Sædís, systir mín kær
Tounge Heart


Sú gamla litla stóra systir mín er orðin tvítug, sagt og skrifað og komin á þrítugsaldurinn. Þó svo að hún neiti því, en það er skelfilegt að lifa í blekkingu.


En knús á ykkur hinHeart

Hjálpum samlanda okkar!

Ég verð að nýta mér mína stöðu og biðja ykkur um að lesa þetta bréf frá Höllu Rut, góðri bloggvinu minni.



Elísabet Sigmarsdóttir
er fædd með sjaldgæfan sjúkdóm s s
em kallast Encephalocele. Hún er sú eina á landinu sem hefur lifað hann af hingað til. Afleiðingar hans eru ýmsar. Henni fer stöðugt aftur og er í dag í hjólastól. Elísabet er búin að fara í u.þ.b. 60 aðgerðir. Oft var henni ekki hugað líf en er í dag lífsglöð og bjartsýn ung kona þrátt fyrir alla þá þröskulda sem lífið hefur sett henni.

Elísabet leitar nú eftir stuðningsmanneskju eða liðsveislu, eins og það er kallað. Liðsmaður er hugsaður sem félagslegur stuðningur og er um 16 tíma á mánuði að ræða. Er það samkomulagsatriði á milli Elísabetar og þess sem stuðninginn veitir hvernig þessum tíma er varðveitt og hvenær. 

Það er í raun Reykjavíkurborg sem á að útvega stuðningsmanneskju en þeim hefur ekki tekist það og hefur Elísabet verið án þessarar þjónustu í 7 mánuði.  Engin vilji er þar á bæ til að ganga lengra til að bjarga málunum. Þetta fellur ekki undir forgangsröð borgaryfirvalda. Það vitum við öll.  Þetta skiptir hinsvegar öllu máli fyrir tilveru Elísabetar Sigmarsdóttur.

Viðkomandi hlýtur laun fyrir en samt óskum við eftir manneskju sem hefur áhuga á því að láta gott af sér leiða og gefa nærveru sína og félagsskap til þessarar fallegur og hugrökku vinkonu minnar.

Ef þú hefur tök á því og tíma, gerðu þá góðverk. Ef þú hefur verið að hugsa í mörg ár að þú ættir kannski að gefa eitthvað til baka þá er núna tækifærið.

Síminn hjá Elísabetu er: 587 - 6278 og netfangið:liso@internet.is eða þú getur sent mér (Halla Rut) E-mail: halla@kjosehf.is ef þú vilt frekari upplýsingar.

Ég hér bið ykkur öll um að birta þetta á ykkar síðu sem færslu ef þið sjáið ykkur það fært.

Og svo er bara líka "nice" að senda henni kveðju: Elísabet.

Með samhug og kærleik

Halla Rut

 

 

 


Förum aftur í tímann - 20.08.93

( Ath. ég á ekki afmæli!!!)

Í Morgunblaðinu á þessum merka degi fyrir nær 15 árum, voru að koma mjög líkar fréttir upp.

Á forsíðunni stendur með stórum stöfum ;

Myrti rússneskur háseti áhöfnina?
Vestræn ríki vilja sjá Rússland falla
Írakar mótmæla árás á skotpall
Óróleiki í Norður-Kóreu

Og með minni stöfum neðarlega til vinstri;

Bankarnir sameinast


Það sem ég undra mig mest á við þetta er hvað alþjóð er lengi að þroskast, alltaf sjáum við sömu fréttirnar - og þetta var fyrir fimmtán árum sjáið þið til!
Mér finnst ótrúlegt að engin innlend frétt hafi leynst á forsíðunni, en sú sem var næst heimalandi okkar var að bankarnir sameinuðust í Þórshöfn... var ekkert merkilegt á Íslandi að gerast á þessum degi???GetLost

Jú reyndar var eitt merkilegt að gerast, það bættust við mannverur í heiminn og þar á meðal þessi unga dama hér á blogginu - sem er að breytast í allsherjar frekju. Mjög gott efni í stjórnmála manneskju en stefnir samt á leiklistina... hvar endar þetta allt saman!

Ég leit á stjörnuspána mína þennan daginn og hún kom mér nú frekar mikið til að hlæja heldur en annað, hún hljómaði svona 20. ágúst 1993;

Truflanir draga úr framkvæmdum í dag. Láttu ekki mikilvæg atriði framhjá þér fara. Þér hættir til að eyða of miklu.

Eins og heimurinn er nú skrítinn..... knús inn í helginaHeart

Minni ykkur á ljósmyndasöluna mínaGrin

Sala á ljósmyndunum mínum í fullum gangi ! / Myndir frá Lúruveiðum!

Ég gerðist engin ljóska í dag, núna fáið þið að sjá myndir af mínu skapiLoL , bókstaflega meira að segja!

Lúruveiðar 2008 008

Eins og dæma má á svipnum á mér þarna þá var ég rennandi blaut, en þarna var þetta bara mun skárra en í seinni ferðinni!



Hér er ég að deila mínu yndislega skapi með Lúrunni Guffa, smellti á hann koss og úff hvað hann var klístraður greyið!
Við urðum hinir bestu vinir, litlu stelpunum til mikillar óhamingju - algjörar pjattrófur, hefði átt að senda mér myndina af þeim líka þegar þær voru að fylgjast með mér halda á Lúrunni - eða Lúðunni eins og þær kölluðu fiskinnLoL
Sjáið ermarnar á peysunni minni, rennandi blaut!!!!

Lúruveiðar 2008 052

Ég vona að ég verði ekki kærð fyrir misnotkun á fiski, en ég small einum kossi á greyið og viti menn hann breyttist ekki í fallegan prins. Enda ekki froskur - svo hef ég líka minn fallega prins fyrir og það er nú allt of erfitt að toppa hannInLove Heart



Sala á ljósmyndunum mínum er hafin, áhugasamir geta gengið, hjólað, flogið, keyrt eða jafnvel skriðið á Byggðasafnið ( Gömlubúð) og fjárfest sér í einni mynd, stærðin er A4 og ég sel aðeins 3 stk. af hverri mynd. Þegar er búið að panta sér mynd, uppáhalds myndina mínaWink....

KnÚsAr á ykkur
Heart

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband