Færsluflokkur: Bloggar
16.7.2008 | 19:31
Ég heimta tvær klukkust. í viðbót í sólarhringinn!
Í dag ætlaði ég að vera rosalega sniðug og sýna ykkur flottu myndirnar sem Gulla tók af mér úr Lúruveiðinni í gær, bæði með "ógeðssvip" og með Guffa Lúru.
Sendi mér myndirnar í tölvupósti og tók svo aðeins til í póstinum mínum og henti úr ruslinu, þar sem að adminin kvartaði um plássleysi.
Ég hugsaði ekki meira út í þetta fyrr en ég fór að skoða tölvupóstinn minn hérna heima, og sá að ég hafði hent tölvupóstinum frá sjálfri mér með myndunum í. Svo að engar urðu myndirnar eftir allt saman, hlakkaði svo til að fá nokkur ojj og knús um leið

Á leiðinni heim reyndi ég að hringja í hana Millu bloggvinkonu, en engin Milla svaraði mér. Seinna fékk ég símtal og talaði við Millu í langan tíma skal ég segja ykkur. Flott kona þar á ferð


Eyddi svo klukkutíma í að skrifa póst, geri ekkert annað þessa dagana, en samt finnst mér það alltaf gaman. Sá póstur var nú frekar langur, og örugglega leiðinlegur, en allt í lagi með það

Sofnaði líka á ókristilegum tíma, ég lofaði að kenna engum um, og ég held áfram að lofa því, enda sjálfri mér að kenna....

Kemur fyrir að mér þykir fólk skemmtilegt, það er gaman að því

Ég sendi ykkur knús og þið sjáið myndirnar á morgun

E.s. ég er ekki með 26 tíma í sólarhringnum þó ég haldi það sjálf, allt of lítill tími sko, ég bara get aldrei klárað allt sem ég ætla að gera yfir daginn....
Ég hef ekki nægan tíma einu sinni til að fara blogghringinn og skrifa inn komment, og hvað þá að fylgjast með fréttum til að skrifa einhverja vitleysuna!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
16.7.2008 | 01:10
Lúruveiðar!

Gusaðist vel af sjó framan í suma, og mikið voru strákarnir ( þar sem þetta voru bara strákar í fyrstu ferð ) ótrúlega ánægðir að sjá alla þessa Lúru!
Lenti í smá rifrildi við einn þeirra, en bara gaman af því hvað sumir geta endalaust drifið sig áfram á einhverjum sjálfslygum...

Seinni ferðin einkendist mest megnis af stelpubát og strákabát, við í stelpubátnum fengum ekki að fylgjast með veiðunum nema úr fjarlægð, því miður. En mikið var um fjörið hjá okkur enda geta stelpur talað mikið, og þeim vantaði nú ekki hugmyndunarflugið né ímyndunaraflið skal ég segja ykkur!
Það voru sungin "sjóara" lög og samið Gamla Nóa sem hljómaði að mig minnir svona;
Gamli Nói, gamli Nói, er að veiða fisk.
Hann kann ekk'jað veiða,
lætur fiskana deyja.
Mig langar svo, mig langar svo að kunn'að veiða fisk.
Þegar hinn báturinn var búinn að draga upp Lúrurnar, fengum við smá í körfu í okkar bát og það kætti stelpurnar nú ekki mikið þegar ég spurði hvort ég ætti nú að kyssa eina Lúruna.
Auðvitað ég í mínu kjánaskapi hélt á Lúru, alveg rennandi blaut í gegn og ísköld, lét Gullu smella einni mynd af okkur Lúrunni saman og gaf Lúrunni nafnið Guffi eftir hamstrinum mínum heitnum og small svo koss á varir þessa skakka fisks!

Þá heyrðist nú í þessum fjóru stelpum sem voru með okkur ,, oooojjjjj! "

Er við komum upp að bryggju stóð ég þarna ísköld, blaut og skjálfandi úr kulda, enda gusaðist allt framan í mig og á mig!
Knús

Svo vil ég enda færsluna á að óska yfirmanni mínum henni Björgu hjartanlega til hamingju með nýja aldurinn ( 15. júlí), 38 ára, eða var það 28? Nei ég man það ekki, en ég man að hún kom í sjónvarpið í kvöld ef þið sáuð hana...

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
14.7.2008 | 20:51
Símhringingar ofl.!
Var eins og flestir vita í bænum, og ef þið sáuð Sindrarútu, litla rútu vel merkt Sindra og Hornafirði, þá var ég örugglega þar. Mikið voruð þau heppin sem sáu rútuna, saga til næsta bæjar alveg hreint!
Ég og Árdís gengum Berserksgang yfir allar helstu búðir Kringlunnar og tókst bara nokkuð vel, allir sem sáu eitthvað gult og örlítið svart, sem minnti helst á býflugu ef eitthvað var, með eldkastaníurauðbrúnt hár. Á hælum sem heyrðist vel og mikið í, hlaupandi á eftir hausnum minni manneskju, þá var það alveg pottþétt ég!
Annar hefur mér tekist að verðsetja myndirnar mínar og þetta verður vonandi allt tilbúið á morgun.
En í gærkvöldi var ég mönuð ( mönnuð? ), oftast tek ég ekki þessum tilteknu mönunum, en í þetta skipti var það eitthvað sem ég myndi þá sigrast á. Já, ég er haldin SÍMAFÆLNI held ég hreint alveg. Ég þoli ekki að hringja í fólk og alls ekki yfir höfuð að tala við fólk í síma, ég bara hélt ég gæti það ekki!
En ég var búin að lofa að hringja klukkan um 16.00, stökk eftir vinnu og út í búð til að kaupa mér smá til að borða fyrir æfingu. Þegar ég var komin aftur að ganga í gegnum Menningarmiðstöðina, þá hringdi ég í eina vel valda bloggvinkonu, eða þá sem manaði mig nú til þess að hringja.
En ég sko tæklaði ég þessa skemmtilegu áskorun, við töluðum í heilar 40 mínútur sem er örugglega met hjá okkur báðum, allavega mér. En lengi, lengi, allt of lengi hefur ekki verið hlegið svona mikið að mér og með mér í svo laaangan tíma!!

Ólíkt mér gekk ég heim með síma við vinstra eyrað og var brosandi, ekki oft sem það gerist heldur úti á götu....

Ég get líka sagt ykkur það að ég hljóp eins og vitleysingur á æfingu, ólíkt mér, þá var ég ekki að kafna!!!
KNÚÚÚS

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
12.7.2008 | 23:01
Með 6 stig í eftirdragi..
Við Sindrastúlkurnar keyrðum alla leið til Reykjavíkur og þaðan til Grundafjarðar í dag, og sýndum bæði Kópvogingum og Snæfellsnesingum í heimana tvo. Við sigruðum HK í gær á Fagralundi, 7-1, tókum þær rækilega í nebbann. Sýndum þeim Íslandsmeistarana í 7 manna bolta í 4. flokki 2006, við munum þetta ennþá

Í dag lá svo leið okkar norður? á Grundafjörð, þar beið okkar ekta Grundfirskt veður, nýstandi rigning og rjúkandi rok. Með góðan anda og viljann í hendinni, byrjaði leikurinn 0-1 fyrir heimaliðinu. Við tókum okkur verulega til og sýndum þessum dömum að við köllum ekki allt ömmu okkar, og spiluðum okkar bolta vel þrátt fyrir veður og óheppileg mistök hjá ónefndum markmanni. Að við komum til að vinna, unnum þessar ágætu stelpur 3-2, þær áttu 4 fínar sóknir og við alveg örugglega 10, ef ekki fleiri.
Í tvö skipti held ég nú að dómarinn hafi legið í vafa yfir því að gefa mér spjald eða reka mig útaf, enda í fyrra skiptið fór ég harkalega á móti stelpunni og með hendina á undan mér. Náði boltanum en helv. stelpan sparkaði hnénu í rifbeinin á mér, sem meira var gerðist þetta á sama stað og var sparkað í bakið á mér á Íslandsmótinu. Alveg á sama stað!!!
Tæklaði svo í boltann utan teig en því miður lenti hann víst inni hjá þessum heppnu stelpum.
En við sigruðum þær þó og fengum okkar 6 stig eftir helgina!

Knús á ykkur!

E.s. Eins og allar aðrar Reykjavíkur/Kópavogs ferðið endar hún í vonlausu búðarrápi þar sem ég enda áreiðanlega sem pokaburðardýr. Er samt kannski að fara að hitta eina bloggvinkonu mína ef hún kemst, þá læt ég mig hverfa í einhvern tíma


Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
10.7.2008 | 18:04
Núna gefst ykkur tækifæri!

Ekki vera feimin!
Ég fer í bæinn á morgun, öllum til mikillar gleði hér heima, 3. flokkur kvenna er að fara að keppa við HK á morgun og á Ólafsvík á laugardaginn, áhugasamir endilega mætið og sjáið stelpuna í markinu

Knúskveðjur

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (33)
9.7.2008 | 16:19
Netið er ekki bóla!
Er netið bara bóla?
Þar sem ég fékk extra mikinn tíma í dag til þess að hugsa um hitt og þetta, var ég að byrja að spyrja mig að þessari spurningu aftur.
Ef netið væri ekki til, þá væru fjölmiðlar mikið lengur að koma efni frá sér, fá efni og margt ekki komist í ljós og svo framvegis og svo framvegis. Þið vitið alveg hvert ég er að fara, netið er ekki bóla, netið er eitthvað sem hefur hjálpað mörgum, en þó ekki öllum.
Samskipti á milli ólíkra menningarheima, ég hef kynnst því meðal annars. Það er ekki verið að finna upp hjólið í dag, við mennirnir erum komin svo langt í gáfum að við erum farin að geta barist léttilega við eitt og annað, sjúkdóma og þessháttar sem átti til að farga heilu mannbyggðunum.
Í vinnunni var mér sagt af skjalasafnsverðinum honum Sigga, sem tók þátt í bæjarspurningakeppnunum á Ríkissjónvarpinu að heimsendir væri 2012. Hann hafði lesið það einhversstaðar, það var víst reiknað út af mörgum gáfumönnum.
Ef svo mun þá reynast rétt þá vil ég að þessi ár líði hægar, já takk, eða bara við hættum að nota þessi efni sem við eyðileggjum jörðina okkar með. Allavega fækka þeim.
Í gær fór ég í fornleifaferð með barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar, þarna var verið að grafa upp alveg örugglega 1000 ára gamalt torfhús. Þarna voar líka gjóska, efnið sem spýtist um allt frá eldgosum. Önnur hvít og hin svört, önnur kom úr Öræfajökli og hin úr Veiðivatni eða ég man ekki. Annað gosið var um 1300 og hitt 1500, frekar gamalt má segja.
Þarna var fornleifafræðingur sem ég efa ekki að sé örugglega heimsspekingur líka, hann heitir Bjarni og veit rosalega mikið og kannast við alla, sem er nú bara gott!
En til þess að finna út marga hluti, þarf netið og aðrar "bólur", til að kanna hvaðan við komum og hvað við vorum í upphafi. Frá Noregi, Danmörku, eða hvaðan nær. Kannski frá Írlandi!
Eftir mikla speki hef ég komist að því að netið er ekki bóla, heldur föst varta, sem kom af tölvum í upphafi.
Netið er varta!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
8.7.2008 | 20:51
Gott að bora í nefið...
Ég var ( og er að vissu leyti ) nokkuð mikil bor'í nef stelpa. Enda hugsa ég rosalega mikið, þess vegna kemur svona mikið hor sko!
Reyndar sást oft til mín troðandi puttunum lengst upp í heila, gerði þetta oft yfir morgunsjónvarpinu um helgar ef ég var ekki búin að þjóta út í búð og kaupa mér nammi. Hefði örugglega getað orðið heimsmeistari í "sjúgameðtungunnihoriðúrnebbanum" keppninni, ef hún hefði nú verið til.
En mér finnst þessi bók alveg hrikalega asnaleg, það er ekki ógeðslegt að bora í nefið, ekki hættulegt ( nema að fólk þurfi endilega að gerast svo vitlaust að festa puttana í því, gerist fyrir þá sem eru með litlar nasir ). Ekki er það nú smitandi og maður verður ekki veikur - ekki einu sinni af horáti. Allavega varð ég það aldrei...
Í bókinni gat froskurinn fest puttann í nefinu, enda var hann nú með putta eins og ljósastaurar eru, mýslan mátti ekki bora í nefið því að mýslur væru í mestu hættu við að fá sýkingu í nefið og síðast en ekki síst mátti fíllinn ekki bora í nefið því þá myndi nefið DETTA af honum.
En víst eftir alltsaman héldu þau áfram að bora í nefið, þó svo að amma og afi segðu þeim að það væri hættulegt!
Það er kannski dónalegt að bora í nefið, en er líka ekki ógeðslega ósmekklegt að sjá fólk með hendurnar inná sér úti að ganga. Jú, ég hélt það einmitt líka, það er svo MIKIÐ ósmekklegra!
Þegar upp er staðið ætti það ekki að vera dónalegt að bora í nefið. Ekki væri ég til í að labba niður Laugarveginn á sólríkum degi og maðurinn sem labbar fyrir framan minn dettur niður kafnandi. Í næsta mogga kemur svo fram á forsíðu í litlum dálk til hægri;
Í gær, miðvikudag, féll maður niður á gangi. Hann dó rétt eftir það, krufning var gerð á manninum, en ekkert sást athugaverðara. En nefið var fullt af hori, svo það er hans dauðadagur. Meira um málið á bls. 9.
Ég gúglaði nafnið á bókinni og fékk þessi fínu ummæli frá einhverjum nemanda einhverstaðan;
bókin er um fíl,mús og frosk sem finst gott að bora í nefið en foreldrar þeirra banna þeim það þá fara þau til ömmu sinnar og afa og þá sjá þau að þau bora líka ínefið og þá byrja þau aftur að bora í nefið.
Ekki segja mér svo að það sé verra að bora í nefið heldur en svo margt annað!.....
Knús á ykkur

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
7.7.2008 | 21:25
Fyrirmyndarunglingar og sala á myndunum hefst í næstu viku!
Ég var búin að lesa um það hjá henni að hún væri með sýningu, en fyrir frekar löngu, svo að ég var ekkert farin að velta mér upp úr henni fyr en amma sagði mér að hún hefði lesið um hana líka.
Það er frekar sniðugt að stelpur á svipuðum aldri, hún 16 og ég 15 ára séum báðar með sýningu á svipuðum tíma, þó svo að myndirnar okkar séu mjög ólíkar, sem gerir leikinn enn skemmtilegri.
Ég hef fylgst í svolítinn tíma með henni, og hún er bara mjög fær í því sem hún er að gera, rosalega góðar myndirnar hennar og mjög skírar.
Ég verð örugglega ekki útvörpuð eða sjónvörpuð, enda bý ég úti á landi og það er ekki allt eins merkilegt og í bænum. Nema það að ég kom í Morgunblaðinu, grein um mig, og það nægir mér. Nema náttúrulega að það vilji einhver taka viðtal við mig, en þið munið eflaust eftir því er ég bað Evu Maríu um að bjóða mér til sín í þáttinn. Þar missti hún sko naumlega af feitum og góðum bita, henni og mörgum öðrum til mikillar gremju


En þau sem eru áhugasöm um að koma hingað til Hornafjarðar, þá verður sýningin mín opin út júlí, á hverjum degi frá 9 - 18. Það sem meira er, er það að ég ætla að setja myndirnar á sölu í næstu viku. Þegar ég verð búin að kynna mér þetta alltsaman og ákveða verð og búa til verðskrá. Mikið hlakka ég til

Knús á ykkur

Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
6.7.2008 | 20:08
,, Hrífst af náttúru fjarðarins " bls. 4 í Mogganum...
Mikið var þetta langt samtal og ég kom varla orðum útúr mér enda hálfssofandi að tala, ótrúlegt að ég náði að klára samtalið!
En mér finnst greinin frábær og myndin flott, Sigurður Mar tók þessa mynd af mér og hann liggur sterklega undir grun að hafa látið Moggann vita af þessum viðburði.
Þetta var mjög góð helgi, ekki mikið um fólk á tjaldstæðinu, en frekar mikið af fólki í heimahúsum. Enda er þetta hálfgerlega að stökkbreytast aftur yfir í fjölskylduhátíð, sem er bara gott.
Núna er ég farin að halda að ég verði að hengja allt sem kemur í blöðum eftir mig eða um mig á einhvern hátt upp á vegginn hjá mér. Á maður ekki að gera svoleiðis, hengja upp markmið sitt og stefna enn hærra?
Mikið hlakka ég til framtíðarinnar ef mér heldur áfram að ganga vel, en ég veit vel af því að hindranirnar geta verið margar og ég er búin að ganga í gegnum nokkrar nú þegar.
Til að bæta við þetta alltsaman vil ég, þar sem ég les Moggann sjaldan, vitna í stjörnuspána þaðan;
ástæða þess að þér finnst ákveðnar kringumstæður fyndnar þegar engum öðrum finnst það er sú að þú sérð sannleika sem aðrir sjá ekki
Mikill sannleikur er í þessu. Ég skrifaði komment á móti Nönnu Kristínu, þar sem hún taldi mig hafa fordóma gegn jafnöldrum mínum. Og ég vil halda áfram með það, þarna sjáið þið ágætlega inn í þetta. Við sjáum hlutina svo mismunandi, ég tek allt verulega inn á mig, og líka það sem ég sá um daginn. Hugsunarháttur er svo mismunandi að það er ekki fyndið, hann er sannleikurinn...
Ég var frekar pirruð reyndar þegar ég var að svara Nönnu Kristínu, og vil afsaka það, en mér er sama hvað fólk heldur um mig, ef ég hef fórdóma í garð jafnaldra minna í hennar augum má það alveg vera svoleiðis áfram. Þetta er ein hindrun fyrir sig, að fá svona beint upp á móti sér.
Ég og aðrir sem þekkja mig af einhverju viti, vita hvað mér finnst um jafnaldra mína, ég viðurkenni það að ég þoli ekki suma persónuleika á þessu aldursstigi. Og ég held að margir geri sér grein fyrir því hvað það er....
En ég vil ekki tala um þetta lengur, búið og gert, og ekkert við því að gera ef að krakkarnir verði reiðir út í mig. Þau mega það alveg mín vegna, I don't give a ......

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
5.7.2008 | 20:30
Rafræn ljósmyndasýning
Þið verðið líka sem ekki geta mætt, notið sýningarinnar, bara á aðeins stafrænni hátt en hin!
























Nú er ég farin!
Knús

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)