Færsluflokkur: Tónlist
28.2.2008 | 18:00
Betri maður
Dagurinn í dag var ágætur, ekkert sérstakt sem stendur uppúr nema ljóskuskapurinn í mér.
Þannig er það nú að ég hef lengi reynt að opna iTunes ( forrit með lögunum sem ég á ) og aldrei tekst mér það. Stakk síðan iPodinum mínum í samband, þá allt í einu vildi það endilega opnast, og ég búin að reyna að opna það í nokkra daga..
Skrifaði grein fyrir Þorrablótið og er slóðin á hana hér;
http://hornafjordur.is/grunnskoli/efni/frettir/2008/02/28/nr/5232
ætla að láta fylgja hér smá texta eftir Ragnheiði Bjarnadóttur, sungið og spilað af uppáhalds hljómsveitinni minni Bermuda.
Betri maður
Þú munt aldrei vita hver ég er
í eigin persónu er ég sjaldnast hér
Á bakvið grímu alla daga
Þú skalt bara koma og sjá
Birtist sífellt betri maður
þegar dagur rís
Hér er ég með andlit gullið,
unglegt, gamalt, hvítt
eða dapurt, glatt og alltaf nýtt
Þú veist aldrei hvar ég er, hver ég er
Ég á þúsund andlit enn
og ég er sá sem allir vilja vera
Seint að kvöldi held ég heim og fer
úr gervi þessa dags og halla mér
Gleður hjartað góður fengur
en glaðar þó er
yfir öllum þessum brosum
sem að bíða mín
O.s.frv.
Þykir þetta fallegt lag og þykir líka vænt um það.
Er farin að græja mig fyrir fótboltaæfingu..
Knús
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.1.2008 | 03:30
Queen Latifah
Hér sit ég með vinkonu mína, Þórdísi sem býr út í Danmörku við hlið mér, og sú er svo þreytt að hún er bara sofandi. Klípi af og til í hana og minni hana á að taka linsur úr sér, þar sem það er ekki hollt að sofa með þær ( allavega held ég það ).
En það sem ég ætlaði að skrifa um er Queen Latifah, leikkona. Ekki að ég haldi mikið upp á íslenskar leikkonur sem eru bara að meika það hér á Íslandi. En af því að Latifah er nú aluppáhalds leikkonan mín þá tel ég mig alveg mega að fræða fólk um hana.
Þessi kona er mjög hæfileikarík manneskja, hún er ekki bara leikkona heldur byrjaði hún á að beat-boxa og rappa að ég held nú. Hún er líka mjög góð söngkona hef ég tekið eftir! Ég hef nokkrar myndir séð þar sem hún leikur í. T.d. Last Holiday, Hairspray, Beauty shop og Taxi. Þessi meiriháttar leikkona er ekkert alveg eins og þessar Hollywood leikkonur í dag, þar sem hún er stór um sig, og tekur sig æðislega vel út í öllu því sem hún gengur í. Hún er líka rosalega sæt og fín eins og hún er bara! Þarf ekki að bæta neitt, hún er æði
Ég er að lesa mig til um hana á Wikipedia og komst að því að hún hefur bara átt frekar eðlilega æsku, en svona til að láta fólk vita er ég ekki sú besta í ensku en ég reyni mitt besta við að skilja þetta. Í Háskóla var hún í körfubolta og var kröftugur framherji ( ef það má segja um körfubolta.. ).
Eftir Háskóla fór hún að svo kallað beat-boxa í rapp grúppunni "Ladies Fresh" og svo var hún í mörgum öðrum grúppum. Hún hefur unnið við nærfatadeild og á Pizza Hut. Bróðir hennar dó í mótorhjólaslysi árið 1992, en Latifah hafði gefið honum hjólið. Enn í dag er hún með lykilinn af mótorhjólinu um hálsinn á sér.
Svo er margt sem stendur þarna, en ég held mest upp á þessa mögnuðu leikkonu, er einmitt að hlusta á rapp sem hún syngur, rosalega töff
Ég óska þess innilega að ég fái að hitta hana einhverntíma á minni löngu lífsævi!
Góða nótt kæra fólk!
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)