Pælingar gærdagsins..

Ég er mikið fyrir að vilja gera eitthvað mikið. Ég held að fólk sé farið að hrista hausinn yfir mér, þar sem ég er með allar mínar hugsanir og pælingar. Hvort ég eigi ekki að gera þetta eða hitt. Það nýjasta varð að verulega góðri pælingu í gær, þegar ég var að spjalla við ljósmyndavinkonu mína. Að skrifa smásögu um sjálfa mig!
Ég meina, hver vill ekki lesa um líf unglings, sem er ein af þeim sem er ekki alveg eins. Jújú. Mig langar ofboðslega að gera eitthvað merkilegt. En hvað er það sem ég hef gert sem er merkilegt. Ég get held ég talið það upp á vinstri hendi, með minna en fimm puttum. Ég hef framkvæmt ótrúlegustu hluti, sem eru ekkert ótrúlegir í sjálfu sér.

Það er allt framkvæmanlegt, ef við hugsum út í það. Sá sem fann upp sprengiefnið, sá sem fann upp reykingarnar, sá sem fann upp áfengið. Þeim hefur sko verulega vantað eitthvað fé í vasana og ræktað þá á svona skemmtilega vondan sið. Sem að getur eyðilagt líf annarra - pælið aðeins í þessu með mér og gefið þessu séns.

Hvað get ég, sem þið getið ekki. Það er verulega góð spurning, þar sem ég held að það sé ekkert sem ég get ein, og engin annar í heiminum. Svo ég sný dæminu við, hvað getið þið, sem ég get ekki!

Og ég held áfram, hvað ætli það sé sem ég get ekki; Jú, ég get ekki keypt áfengi og ekki sígarettur, nema á svörtum markaði. Mér er alveg sama, þar sem ég neyti ekki áfengis né reyki. Öfunda ykkur ekki vitund á þessum tveimur hlutum.

SÁ HLÆR BEST SEM SÍÐAST HLÆR, stóð einhversstaðar. Ég ætla kannski ekki að hlæja síðast, en ég veit vel hvað ég get og hvað ég vil geta gert, sem ég mun geta. Bíðum og sjáum. Ég mun gera eitthvað......Halo

.. en pælingar gærdagsins gætu verið úreltar, eða stórgóð hugmynd að góðu verkefni!


Ég er bara að pæla.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 18.1.2009 kl. 13:49

2 Smámynd: Aprílrós

Góð pæling ;)

Aprílrós, 18.1.2009 kl. 14:28

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Sæl Róslín! Enn pistillinn höfðaði til mín.

Langt síðan ég hef kommentarað á þig. Ég er hugsjónamaður sjálfur og það er ekki alltaf það besta.

Er með eina pælingu núna og búin að keyra þúsundir kílómetra til að, "púzla þessu saman".  Veit ekkert hvað verður af þessu.

Það eru ferðalög fyrir fatlaða frá Norðurlöndum og allri Evrópu, og er skíteinfalt. Allt borgað fyrirfram af yfirvöldum, og stumdum ættingjum.

Á bara ekki pening fyrir bæklingum og auglýsingum sem er það eina sem á vantar. Það eru bara ég konan mín í þessu fyrirtæki. Svona eru mínar pælingar. Lét 40 milljónir í þetta og gat ekki klárað málið vegna þess að bankasápukúlan sprakk.  

Hugsaðu þig vel um áður enn þú vilt bjarga heiminum.

Óskar Arnórsson, 18.1.2009 kl. 15:10

4 Smámynd: Hannes

Skemmtilegar pælingar hjá þér.

Ég veit um einn sem var alltaf að gagnrýna reykingar og segja hvað þær væruu viðbjóðslegar og hann reykir upp undir 2 pakka á dag. Kæmi mér ekki á óvar þó hann færi stundum með 3 pakka á einum degi. 

Eigðu góðan dag Róslín og mundu að þú getur gert flest það sem þig langar til að gera.

Hannes, 18.1.2009 kl. 15:13

5 identicon

Ótrúlega skemmtilegt blogg hjá þér Róssilki...Þú ert reyndar í mínum huga "ein af fáum" Það hef ég sagt þér áður.

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 15:23

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Rósin mín þú ert eins og ég hef sagt áður, snillingur, til hamingju með elskuna þína
var ekki veisla?
þessar tvær færslur eru frábærar og  þú getur allt sem þú vilt.
Ljóðið á við núna eins og þá.

Knús til þín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.1.2009 kl. 16:15

7 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ommi.... ->

Takk Krútta!

Sæll Óskar!
Þú segir nokkuð! En ég skal hugsa um það.

Hahaha, Hannes þú ert pottþétt að tala um sjálfan þig!...
Takk kærlega fyrir, og sömuleiðis!

Takk alveg æðislega fyrir það Gola mín!
 
Takk fyrir Milla mín, það var veisla hjá honum svo kom hann til mín..
Knúsknús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 18.1.2009 kl. 20:06

8 Smámynd: Hannes

Róslín ég reyki bara vindla 0-4 á viku og ég reyki aldrei sígarettur og mæli með að þú látir þær í friði enda krabbameisnvaldandi. Ég hef aldri reykt dags daglega.

Hannes, 18.1.2009 kl. 20:37

9 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

riiiiiiiiiiiight....

Róslín A. Valdemarsdóttir, 18.1.2009 kl. 20:42

10 Smámynd: Hannes

Trúirðu mér ekki? Ég vann með þessum manni sem reykti 2 pakka á dag og hann var einu sinni að kvarta yfir því að hann ætti engan pening og ég ætti meira en nóg þannig að ég dró útur honum hvað hann reykti á dag og reiknaði út hvað það kostaði hann á ári. Það skal taka það fram að hann fékk vægt áfall.

Eigðu gott kvöld Róslín.

Hannes, 18.1.2009 kl. 20:46

11 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

ég var bara að djókaaa!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 18.1.2009 kl. 20:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband