17.1.2009 | 16:36
Slysaskot í Palestínu
Ég man eftir því, í Hafnarskóla þegar við þurftum að læra ljóð utanað. Fyrst lærðum við upp úr Ljóðasprota að mig minnir og svo fengum við sjálf bók þar sem við áttum að myndskreyta. Ég man sérstaklega vel eftir því þegar ég þurfti að læra heima ljóðið Slysaskot í Palestínu. Þar sem ég var nú ekki alveg komin með þá ásjón á heiminn eins og ég sé hann í dag. Þá var ég bara eins og stendur einhverstaðar " bara lítið lamb að leika mér". Gerði mér ekki grein fyrir því hvað mörg börn hafa þurft að þola mikið erfiði og allstaðar í heiminum deyja börn ung, af ýmsum ástæðum. En mörg deyja einmitt útaf stríði - og eiga ekki skilið að deyja vegna þess að vont fólk vill drepa það vegna þjóðerni þess, pælið í alvöru í þessu!
Ég man ekki ljóðið, svo ég leitaði að því á netinu, man samt vel hvernig endirinn var og ég ætla að deila þessu ljóði með ykkur.
Slysaskot í Palestínu
Lítil stúlka. Lítil stúlka.
Lítil svarteyg dökkhærð stúlka
liggur skotin.
Dimmrautt blóð í hrokknu hári.
Höfuðkúpan brotin.
Ég er Breti, dagsins djarfi
dáti, suður í Palestínu,
en er kvöldar klökkur, einn,
kútur lítill, mömmusveinn.
Mín synd er stór. Ó, systir mín.
Svarið get ég, feilskot var það.
Eins og hnífur hjartað skar það,
hjarta mitt, ó, systir mín,
fyrirgefðu, fyrirgefðu,
anginn litli, anginn minn.
Ég ætlaði að skjóta hann pabba þinn.
Höf: Kristján frá Djúpalæk
Þetta er kannski ekki alveg það sem er að gerast í dag, ekki Bretar. Ég man eftir því hvað ég var hrædd við þetta ljóð, en í dag þegar ég les aftur yfir þetta, þá er þetta bara sannleikurinn sem blasir við manni. Hvernig getur fólk gert þetta??
Ég verð að segja ykkur að í gær átti hann elskulegi fallegi yndislegi Rafn minn 16 ára afmæli, tíminn líður ótrúlega hratt og hann fer að fara að fá bílpróf. Vá!
Til hamingju með gærdaginn elsku besta krúttið mitt!!!
Athugasemdir
Já þetta er sterkt en sorglegt kvæði Róslín mín. Flott hjá þér að rifja þetta upp núna. Til hamingju með hann "gamla" þinn
Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 17:37
Takk Hallgerður!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.1.2009 kl. 17:43
Takk fyrir að leyfa mér að njóta með þér. Hef sennilega einhvern tíma heyrt þetta en man bara síðustu línuna... sem er skelfilegust held ég
Beturvitringur, 18.1.2009 kl. 02:16
úff segi ég nú bara. ;)
til hamingju með hann Rafn ;)
Aprílrós, 18.1.2009 kl. 03:08
Gott ljóð. Vondur heimur. En vonin er sú að fólk eins og þú komir honum til bjargar.
, 18.1.2009 kl. 10:09
Samdi lag við þetta ljóð 1972. Þannig var að lesin var frétt í Ríkisútvarpinu um börn sem létu lífið í Palestínu í skothríðum. Kristján samdi ljóðið um þann atburð samstundis og var þetta ljóð hans lesið í kvöldfréttatíma RÚV sama daginn. Bara til fróðleiks.
Bergur Thorberg, 18.1.2009 kl. 10:30
Takk fyrir þennan fróðleik Bergur!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 18.1.2009 kl. 13:27
Til hamingju með Rafn!
Sólrún (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 19:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.