Ég fæ jólagjöf...

Ég hef aldrei almennilega pælt í því hve létt það getur verið að gleðja mig með gjöfum. Þegar ég var lítil þá gaf einhver af jólasveinunum mér kartöflu í skóinn, tökum það fram að það var bara í eitt skipti. Ég fór glöð fram og sýndi öllum hvað hefði verið í skónum mínum þegar ég vaknaði, og sagði við mömmu þar sem ég vissi bara að kartöflur væru soðnar þá (ég vissi ekki að franskar kartöflur væru kartöflur), að nú skyldu þau sko aldeilis fá að sjóða kartöfluna í kvöldmat sem hann Sveinki vinur minn færði mér í skóinn!

Ég var að ganga úr stofu úr trommutíma hjá Þresti fyrir einhverjum vikum og heyrði tvo stráka spyrja yngri stelpu hvað hún hefði fengið í jólagjöf um síðustu jól, og stelpan svaraði að hún hafði fengið bók. Ég held að strákarnir hefðu farið að hlæja, en ég fór þá aðeins að hugsa, hversvegna þeir væru að hlæja. Ef maður fær bók, hvort sem það er barnabók, unglinga eða fullorðinsbók þá verður maður ævinlega þakklátur ef bókin er góð. Ef maður fær eitthvað dót, þá varðveitist það heldur illa og eyðileggst oft á endanum. En bókin getur alla tíð vaxið með manni, dótið sjaldnar.

Fór að hugsa um þetta þegar ég kíkti fram í stofu og sá að það væri kominn nýr pakki í sófann þar sem þeir eru geymdir. Hann var ómerktur en ég sá svipinn á mömmu þegar ég spurði hana hvort þetta væri handa mér, og rétt áðan leit ég aftur við inni í stofu og þá var hún búin að merkja hann til mín frá henni og pabba. Ég kíkti aðeins á pakkann, hélt á honum og svona, og fann að þetta væri bók og núna get ég ekki beðið eftir því að sjá hvaða bók þetta skuli nú vera - ég elska að lesa góðar bækur!

Jólin eru alveg að ganga í garð, ég hlakka til Þorláksmessu þar sem jólaskapið kemur algjörlega í mig.

Fór í heimsókn í dag til Rafns, hitti þar Röggu tengdó, Aðalheiði krútt og seinna hitti ég Gauta tengdó, færði Röggu smá fyrirframjólagjöf... sælla er að gefa en að þiggja, það finnst mér!!

Ég á eftir að klára tvær jólagjafir, skrifa eitt jólakort og finna jólagjöf handa Axel og Svöfu, vinn smá á Þorláksmessu, allt í góðs nafni, og ég hlakka til Aðfangadagsmorgun, fyrsti morguninn sem ég vakna snemma..... hafið það sem best elsku bloggvinir sem og aðrir!!!Heart

Læt hér fylgja myndband með Eddu Heiðrúnu, man svo vel eftir þessu, hef svo oft séð þetta og heyrt, bara æðisleg!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús í hús og ljúfar kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 20.12.2008 kl. 23:15

2 Smámynd: Sigríður B Svavarsdóttir

Sendum Eddu okkar orku,, hún er svo frábær þessi Elska.  Ljós til þín ljúfan mín.

Sigríður B Svavarsdóttir, 21.12.2008 kl. 00:30

3 identicon

rosalega skil ég þig vel - ég er orðinn hundgamall en ég man enn þegar ég fékk 17 bækur í jólagjöf - það voru g ó ð  jól. Svo - eftir að ég fór að vinna við að selja bækur þá gefur mér enginn bók. Ojæja.

Gleðileg jól - vonandi koma margar bækur úr pökkunum þínum.

Ólafur I. Hrólfsson

Ólafur I Hrólfsson (IP-tala skráð) 21.12.2008 kl. 10:25

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Alltaf gaman að fá bók í jólagjöf. Ég á mér ósk um eina jólagjöf og það er bók en ætli ég verði ekki að kaupa hana sjálf

Hafðu það gott Róslín mín

Huld S. Ringsted, 21.12.2008 kl. 10:53

5 Smámynd:

Bækur geta verið góðar gjafir. Gaman að finna hvað þú hlakkar til jólanna

, 21.12.2008 kl. 11:29

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Knús til þín Linda

Sendi henni orku Sigga, hún hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér!

En hvað það hlýtur að vera leiðinlegt að það sé hætt að gefa manni bækur útaf svoleiðis Ólafur, frekar skrítið!

Eigðu gleðileg jól sömuleiðis ..

Iss, mín eina er vonandi í pakkanum, reyndar var ég að bæta einni við, lýst rosa vel á Vetrarsól, hljómar spennandi í frásögn!

Takk sömuleiðis Huld mín

Ég get ekki sagt að ég hlakki mikið til jólanna, enda kemur það allt á Þorláksmessu með skötulyktinni og skreytingu jólatrésins, það er komið upp en við skreytum á Þorláksmessukvöld!
Svo verð ég í 4 klst. á aðfangadag að sinna örlitlu verkefni... bara æði

Róslín A. Valdemarsdóttir, 21.12.2008 kl. 20:55

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Edda hefur alltaf verið uppáhalds hjá mér! .. Spennandi að fá pakka, sérstaklega þessa sem maður hefur ekki hugmynd hvað er í!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 21.12.2008 kl. 22:35

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 21.12.2008 kl. 23:03

9 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Já það er spennandi Jóga, en líka gaman að vita nánast hvað er í pakkanum en ekki vita samt hvað það sé!

til þín Ásdís!

ÚFFFFF,,, ég hef ekki hugmynd hvort það hafi verið ég, en það þætti mér alls ekki ólíklegt...... enda beið ég alltaf!

Já BÓKIN! við mamma förum í verslunarleiðangur, kíkjum við! Og vinnan, spjöllum um hana þá bara... hehehe!

knús!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.12.2008 kl. 14:17

10 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Ég og mín kæra fjölskylda viljum óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þökkum árið sem er að líða.....Jólakveðja

 Linda og Fjölskylda :):):):)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.12.2008 kl. 01:17

11 Smámynd: Skattborgari

Róslín ég held að þú hafir fengið kartöflu oftar en einu sinni er það ekki??? Allavega fékk ég yfirleitt kartöflu í skóinn minn.

Gleðileg Jól Róslín og vonandi færðu margar góðar gjafir.

Kveðja Skattborgari.

Skattborgari, 23.12.2008 kl. 01:21

12 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk fyrir jólakveðjuna Linda mín!

Nei, Skattborgari, það þýddi ekkert, ég varð samt alltaf verri í skapinu ef ég fékk mandarínu ( mér finnst þær svo súrar!!) heldur en nokkurntíma kartöflur..

Sömuleiðis Skatti minn!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.12.2008 kl. 01:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband