6. október 2006

07.10.2006 15:55:57 / Róslín Alma

Sæler :)

Hvað segiði elskurnar mínar?? :)

Allavega er allt gott að frétta af mér, er samt með hausverk, því ég var að snúa hausnum að jörðinni hehehe..
Annars var Þrykkjan í gær, og ég var sko á fullu í allan gærdag.. Það var hönnunarkeppni, og ég var dómari ;) svo frétt sem ykkur langar örugglega allveg að heyra; Ég og Rafn byrjuðum saman í gær, og erum við örugglega nýjasta parið í skólanum :)

 

Þetta skrifaði ég fyrir sirkabát ári. 6. október 2006 eignaðist ég mína fyrstu ást - og sú ást sem allir héldu að myndi endast í 2-3 daga er komin upp í 2 ár. Við Rafn höfum verið sætt par í tvö ár, 6. október. Það finnst mér rosalega merkilegt þar sem þetta er unglingaást!

http://render2.snapfish.com/render2/is=Yup6aQQ%7C%3Dup6%3DzqH%3AxxqUD7qRUrKxzX7BHpUUKxgXPoQ%3F87KR6xqpxQQe0xeo0x0Qaxv8uOc5xQQQolnoJGenn0qpfVtB%3F*KUp7BHSHqqy7XH6gXPoQ%7CRup6lQQ%7C/of=50,590,442
Fyrsta myndin sem tekin er af okkur Rafni saman... Busaballi 2006!

Ég gæti skrifað heila ritgerð hvað Rafn hefur hjálpað mér og hvað hann er mest yndislegasti drengur í heimi. Ég gæti ekki hugsað mér fallegri, almennilegri, kurteisari, hlýlegri, myndarlegri, glæsilegri né efnilegri kærasta - hann er fallegur í alla staði, algjör sjarmör...InLove

http://i9.tinypic.com/2yuhpty.jpg

Ég elska þig Rafninn minn, til hamingju með daginnHeartInLoveKissing
Krúttleg skrif sem ég skrifaði fyrir einu og hálfu ári;

Í 6. bekk flutti sá hái og myndarlegi strákur austur til Hafnar frá Árbænum. Það árið töluðum við Rafn ekki mikið saman, og þess má geta að Rafn var algjört kvennagull, og ég taldi hann besta vin minn því hann var svo rosalega traustur og góður strákur. Man vel eftir því þegar við vorum í frímínútum i fótbolta, og það var innkast og ég kallaði ,, Látum Rabba taka því að hann kastar svo langt!".. Árið eftir það fór ég að kynnast Rafni og þess má geta að Ragga mamma hans byrjaði þá að kenna okkur í bókinni Auðvitað og líka í samfélagsfræði held ég að það héti þá.. Þá talaði maður mikið við Rafn og þess má geta að maður var orðinn rosa skotinn í honum:^)


Í byrjun septembersmánaðar var maður byrjuð að tala við Rafn á msn með webcam og alles, um allt og ekkert.. Svo þróaðist samband okkar rosa mikið þá, en aldrei töluðum við eitthvað mikið í skólanum, maður var svo rosa feiminn :)

http://roslin.blog.is/users/b6/roslin/img/roslografn_479743.jpg

Svo eitt kveldið minnir 23. september var ég hjá Lejlu og hún spurði Rafn fyrir mig hvort hann myndi vilja byrja með mér, og hann tók sinn tíma, föstudaginn eftir það að ég held, var dragsjów, og tók Rafn þátt í því og hjálpaði ég honum með það ;) svo í lokinn fékk hann rós og gaf mér svo með einstakri frekju í mér hahaha.. nei djók.. hehe =)
Næsta föstudag var eitthvað annað í gangi í Þrykkjunni og fékk ég þá svarið, sem betur fer var það já :) Ekki veit ég hvað ég hefði grenjað úr mér augun lengi hefði ég fengið nei.. hehehe...
Annars já, hefur okkur gengið bara rosalega vel, aldrei neitt alvarlegt komið upp á sem betur fer!!!

Róslín & Rafn by you.

 



Mér finnst Rafn allveg æðislegur strákur og ég elska hann óendanlega mikið, þegar hann kom í skólann i fyrsta skiptið, datt mér aldrei í hug að ég yrði svo heppin að eiga hann svona náinn mér..

Rafn!! Ég elska þig =)<3

 

Eigið góða vikuJoyful!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Þið eruð krúttlegt strumpa par

Ómar Ingi, 5.10.2008 kl. 21:48

2 Smámynd: Aprílrós

Til hamingju með 2 árin.Þið eruð sætt par og eigið vel saman ;)

Aprílrós, 5.10.2008 kl. 22:00

3 identicon

æj hvað þið eruð mikil krútt..

Sædís sys (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 23:11

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þið eruð yndislegust

Sigrún Jónsdóttir, 6.10.2008 kl. 00:16

5 identicon

 Meiri krúttin Til hamingju

Guðrún (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 00:25

6 Smámynd: Brynja skordal

þið eru yndisleg svo miklar Dúllur til hamingju með 2 árin ykkar knús og góða nótt sæta

Brynja skordal, 6.10.2008 kl. 01:25

7 Smámynd: Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir

Til hamingju með ykkur!

Þið eruð falleg samanGuð geymi ykkur!

Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir, 6.10.2008 kl. 10:52

8 identicon

Hæ sæta mín! Til hamingju með daginn dúllurnar mínar, þið eruð svo sæt!! Passaðu nú stóra bróðir þinn vel fyrir mig! Knús og Kossar!!

Svafa Mjöll (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 10:55

9 Smámynd: Helgan

ohh þið eruð nú meiri krúttin til hamingju með ykkur

knús

Helgan, 6.10.2008 kl. 15:26

10 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús knús og yndislegar ljúfar kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 6.10.2008 kl. 19:09

11 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Þakka ykkur alveg kærlega pent og mikið fyrir

hahaha, Hörður, ég hló upphátt þegar ég las þetta, en Rafn sagði bara oj! hahaha....

Svafa má ég segja þúveisthvað hér á blogginu?
Annars ættirðu að passa hann Axel, allavega skamma hann og segja honum að borða ekki matinn frá litlu systur sinni! hahaha!!
En annars passa ég hann....

Róslín A. Valdemarsdóttir, 6.10.2008 kl. 21:26

12 identicon

til hamingju með þetta Róslín mín :)
og hahahaha Hörður ég hló sko líka upphátt þegar ég las þetta Held þú verðir að fara að passa þig Róslín hahaha

Eva (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 15:01

13 identicon

Já Róslín mín þú mátt alveg segja það En annars þá skal ég taka Axel aðeins í gegn með að vera ekki að borða matinn frá þér híhíhíh

Svafa Mjöll (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 13:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband