19.9.2008 | 19:26
Me And Armini, nýja plata Emilíönu Torrini!
Ég fjárfesti í fyrstu plötu sem ég eignast sem alvöru útgefinn geisladisk frá þessari uppáhalds yndislegu söngkonu, Emilíönu Torrini.
Satt best að segja keypti Sædís diskinn fyrir mig, en samt sem áður borgaði ég, enda ekki hægt annað en að borga alveg sjálf svona flottan disk! Ég er með hana í eyrunum núna, alveg yndisleg tónlistarkona og bara falleg lögin hennar.
Til hamingju með diskinn þinn Emilíana! (Þó ég viti nú að hún stelst ekki til að lesa bloggin mín, en bara samt til hamingju
)
Sá í gær upp í FAS þegar ég var á leiðinni í tíma viðtal við hana í MONITOR blaðinu, fyrsta skipti sem ég hef einstakann áhuga á að lesa það.
Það fyndna við það að í nótt dreymdi mig svo að ég væri að skoða sömu tilteknu frétt á netinu á Monitor.is, ef það er til, og þar stóð þetta mjög svo kunnuglega nafn. Draumurinn rifjaðist upp fyrir mér í enskutíma þegar ég hafði einstaklega lítinn áhuga á því að læra, enda komin svo langt á undan mörgum. En já, það stóð nafnið Róslín Aalm van Valdemars með þykku letri og umfjöllun á einhvern mjög svo listrænan hátt að ég skildi ekki hvað var verið að tala um.
Man reyndar ekkert fleira úr draumnum, en fyrst ég tala um drauma þá dreymdi mig í fyrrinótt að ég hafi keypt mér svartan plastboga með rauðum sogskálsörvum og það byrjaði svartklædd ninja að reyna að drepa mig með eins boga! Ég veit ekki hversu vitlaust mig dreymir, en allavega mjög vitlaust!
Ég lofaði mynd, svo hér kemur hún, en annars var Nýnemaballið mjög skemmtilegt...

Eigið góða helgi

Athugasemdir
Vá hvað þið eruð flott
og bæði í hvítum skóm
og kjóllinn er æði
.
Til hamingju með nýjustu fjárfestinguna
Sigrún Jónsdóttir, 19.9.2008 kl. 19:42
Rósin mín þið eruð bara flott og yndisleg þú og Rafn þinn.
flottur kjóll og hann er æði svona í hvítum skóm í stíl við þig.
Knúsí knús
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.9.2008 kl. 20:44
Emma er BEST
og Rafn er samþykktur af minni hálfu
Ómar Ingi, 19.9.2008 kl. 21:21
Takk Sigrún mín,

hans skór eru reyndar hvítir og svartir
Takk Milla mín,
knús á þig


Emma? kallarðu alla eitthvað með emmmmiiii? Ommi, Emma.. ætlar þetta aldrei að taka enda?
En já, hún er bara langbestust!
Svo er nú gott að Rafn sé samþykktur af þinni hálfu, strákurinn sem þú ætlaðir að redda mér mannstu..
Róslín A. Valdemarsdóttir, 19.9.2008 kl. 21:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.