16.9.2008 | 19:36
Ég get sko aaaalveg lifað án ykkar..
.. eða ég veit ekki það almennilega - en án bloggsins - en ekki athyglinnar.
Ég gefst upp á þessu bloggfríi, og ætla því að skrifa örlitla ræmu frá síðustu dögum.
Ég fór yfir helgina með bekkjarsystrum mínum í sumarbústað, vorum 7 á föstudagskvöldið, og 6 eftir það. Við sátum og spjölluðum langt fram eftir öllu og horfðum á fáeinar myndir saman. Vorum með allskonar gómsætt, og ég og Eva bökuðum heilar 4 uppskriftir af ræs krispís súkkulaðikökur og tvær af lakkrístoppum, en önnur uppskriftin eyðilagðist og varð þ.e.a.s. eins og versta drullukaka í ofninum!
Hef átt annasama daga, en í gær lét ég undan barninu í mér.. eða þannig
og skellti mér á dýrustu sýningu sem ég hef á ævi minni farið á. Ég dreif mig í SIRKUS! Fyrsta skiptið sem ég upplifi svoleiðis, og ekki með fólki af verri endanum. Fór með honum Rafni mínum, snúllunni litlu systur hans Aðalheiði og krúttunum Ísari og Kára, litlu bræðrum Rafns. Þó að þetta hafi nú verið í það dýrasta var peningurinn vel þess virði. Sat við hliðina á Aðalheiði, sem er 4 ára og hló og spurði öðru hverju hvort hún sæi ekki nógu vel. Ég var víst mjög svo fyndin þar sem ég var að hlæja af trúðunum og þeirra gríni, að Aðalheiður var farin að hlæja "eins" og ég.
Ég sumsé skemmti mér konunglega, og eignaðist nýja vinkonu í leiðinni, þar sem við Aðalheiður erum bara orðnar góðar vinkonur. Fyndið að segja frá því að í þessi næstum-því-tvö-ár sem við Rafn erum búin að vera saman, hef ég ekkert kynnst Aðalheiði!
Leiddi hana á leiðinni heim, alveg sjálfviljug tók hún í höndina á mér og Rafni og Kári hljóp á undan og Ísar hjólaði...
Bara skemmtilegt það!
Er búin að vera að reyna að læra eitthvað af viti, og tókum svindlpróf í dag, ekki af léttari endanum þar sem við fengum eitt A4 blað og skrifuðum bara á aðra hliðina það sem við héldum að kæmi í prófinu og fengum blaðið í dag og tókum prófið. Það var mjög mikið um skriflegar spurningar og stolt skildi ég heilar tvær línur eða svo af línunum sem hægt var að skrifa í ( oftast 3-4 línur í hverju svari!). Svo að ég held að ég fái ágæta einkunn úr því samfélagsfræðiprófi!
Busun og Nýnemaball er á fimmtudaginn svo að þar verður dansað og ætla ég mér að taka einhverjar myndir, aldrei að vita nema að ég splæsi hér inn mynd af okkur Rafni þaðan af því ballinu..
Knúsíkrús
Ég gefst upp á þessu bloggfríi, og ætla því að skrifa örlitla ræmu frá síðustu dögum.
Ég fór yfir helgina með bekkjarsystrum mínum í sumarbústað, vorum 7 á föstudagskvöldið, og 6 eftir það. Við sátum og spjölluðum langt fram eftir öllu og horfðum á fáeinar myndir saman. Vorum með allskonar gómsætt, og ég og Eva bökuðum heilar 4 uppskriftir af ræs krispís súkkulaðikökur og tvær af lakkrístoppum, en önnur uppskriftin eyðilagðist og varð þ.e.a.s. eins og versta drullukaka í ofninum!
Hef átt annasama daga, en í gær lét ég undan barninu í mér.. eða þannig

Ég sumsé skemmti mér konunglega, og eignaðist nýja vinkonu í leiðinni, þar sem við Aðalheiður erum bara orðnar góðar vinkonur. Fyndið að segja frá því að í þessi næstum-því-tvö-ár sem við Rafn erum búin að vera saman, hef ég ekkert kynnst Aðalheiði!
Leiddi hana á leiðinni heim, alveg sjálfviljug tók hún í höndina á mér og Rafni og Kári hljóp á undan og Ísar hjólaði...

Bara skemmtilegt það!
Er búin að vera að reyna að læra eitthvað af viti, og tókum svindlpróf í dag, ekki af léttari endanum þar sem við fengum eitt A4 blað og skrifuðum bara á aðra hliðina það sem við héldum að kæmi í prófinu og fengum blaðið í dag og tókum prófið. Það var mjög mikið um skriflegar spurningar og stolt skildi ég heilar tvær línur eða svo af línunum sem hægt var að skrifa í ( oftast 3-4 línur í hverju svari!). Svo að ég held að ég fái ágæta einkunn úr því samfélagsfræðiprófi!
Busun og Nýnemaball er á fimmtudaginn svo að þar verður dansað og ætla ég mér að taka einhverjar myndir, aldrei að vita nema að ég splæsi hér inn mynd af okkur Rafni þaðan af því ballinu..

Knúsíkrús

Athugasemdir
Já hvernig væri það nú að fá mynd af stráknum þínum á síðuna !
Har de godt
Ómar Ingi, 16.9.2008 kl. 19:39
Já Rósin mín ég veit alveg að þú getur lifað án okkar, en endilega láttu heyra í þér annað slagið, bara svo við gleymum þér ekki

gaman að heyra í þér og knús
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.9.2008 kl. 19:43
Ómar, mynd af stráknum sem þú ætlaðir að redda mér - en varst heilum tveimur árum of seinn!
...
Myndir eru að finna í myndaalbúmi á síðunni minni, þar sérðu hve sætann kærasta ég á
Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.9.2008 kl. 19:45
Hah! ég vissi að þú myndir ekki meika þetta bloggfrí mjööög lengi! en jæja .. ætli ég verði ekki að halda áfram að læra .. ekkert betra að gera þar sem afi og litli frændi á hæðinni fyrir ofan sitja og horfa á liverpool-marshall .. eða hvernig sem það er nú skrifað! hehe .. en jæja .. lærdómur! ú hver er summan af tveimur og tveimur ..
Sædís sys (IP-tala skráð) 16.9.2008 kl. 19:49
Milla mín, þetta var sko allt í gamni sagt, get alveg lifað án bloggsins en lífið mitt hefði nú eitthvað verið öðruvísi hefði ég ekki kynnst ykkur öllum, þessu frábæra fólki



Knúsknús
Ég læt sko vel heyra í mér, bara inn á milli þess sem ég hef tíma.
Hahaha, af hverju horfirðu ekki á leikinn með þeim Sædís?
Hefurðu ekki samvisku til þess? og ég sem hélt að afi væri Manchester United maður, að horfa á Liverpool....
Lærðu bara, ég ætla að vera með Rafni, lærdómsdagurinn mikli er hjá mér á morgun, og svo sannarlega yfir helgina!
Verðuru komin heim fyrir fimm á fimmtudaginn? Var að spá í hvort þú værir til í að hjálpa mér aðeins að gera mig þá til fyrir ballið...
Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.9.2008 kl. 20:13
Gaman að heyra frá þér Róslín mín
og góða skemmtun á ballinu, með þínum ektasveini (Rafni meina ég)
Sigrún Jónsdóttir, 16.9.2008 kl. 20:44
Nei við leggjum ekki af stað fyrr en ég er búin í skólanum .. sem er ekki fyrr en tíu mínútur í þrjú! Svo þú verður bara að fá einhvern annan til að punta þig fyrir ballið .. en já .. nú er ég sko hætt í kvöld .. orðin rangeygð af lestri bæði úr bókum og í tölvunni ..
Sædís sys (IP-tala skráð) 16.9.2008 kl. 21:46
Huld S. Ringsted, 16.9.2008 kl. 22:13
finnst nú svo sem ekkert skrítið að hún horfi á liverpool því þeir voru náttúrlega enda við það að vinna man utd um helginna =) og því ekkert í þá varið...
Hulda Björg (IP-tala skráð) 16.9.2008 kl. 23:50
ummm mér langar í ræs krispís
það getur reynst erfitt að slíta sig frá blogginu kannast við það.
haltu bara áfram að blogga gaman að lesa skrifin þín
Helgan, 17.9.2008 kl. 06:39
Jæja... ég er alveg hissa hvað þú hélst lengi út án þess að blogga hehehe
Ég sé ykkur Rafn fyrir mér á leið heim úr sirkus, þið hafið verið eins og lítil hjón með ungana sína.
Knús til þín elsku Róslín.
Linda litla, 17.9.2008 kl. 09:57
Ég segi nú eins og Linda, hissa hvað þú hélst lengi út.
Hafðu það gott ljúfan
Anna Guðný , 17.9.2008 kl. 12:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.