Minningar...

Ég á mér uppáhalds nöfnu, enda ekki skrítið, þar sem eina nafnan mín sem ég þekki er hún Rósa amma. Róslín, Palma Róslín heitir hún, og ég átti að vera skírð í höfuðið á henni. En þar sem ég var að setja tvær myndir af okkur síðan ég var oggupoggulítil, vildi ég endilega taka það sem ég hef skrifað um hana elskulegu ömmu mína og deila aftur með ykkur og leyfi að fylgja tvær uppáhalds myndirnar mínar;

 

Nöfnurnar

Þið hafið oft heyrt það að nöfn passi oft við manneskjur, og þeir sem heita sömu nöfnum eru eitthvað líkir á skrítinn hátt. Ég þekki þó bara eina nöfnu mína, hana ömmu Rósu. Amma Rósa er að mínu mati einlæg manneskja og góðlát. Ég hef aldrei kynnst henni pirraðri né neitt í áttina að því. Hún gefur öllum séns, og er góð við alla á meðan þeir eru góðir við hana. Hún er þó mjög ákveðin líka og stendur sko harðlega á sínu. Vinkonur mínar sem hafa hitt hana og verið pínulítið í kringum hana sjá strax hvað hún er góð og segja mér hvað þeim finnist hún vera góð, sem er æðislegt.
Ég veit ekki um betri kokk, né bakara en hana ömmu mína Rósu, ef þið borðið ekki eitthvað og hún matreiðir það sama síðan, þá gætuð þið ekki gert neitt annað en að borða það, þar sem að það verður gott hjá henni. Meira að segja ég get borðað fisk hjá henni, sem ég borða voða sjaldan, ótrúlegt alveg hreint!

Nöfnurnar by you.


Hún er líka einnig mjög gjaflynd, alltaf þegar við komum hingað til þeirra bíður hún langoftast upp á nammi, þó maður hafi nú ekki gott af því. Hún bakaði t.d. köku sem mér finnst svo rosalega góð, sem ég smakkaði þegar ég var hér síðast hjá þeim. Án efa ein besta kaka sem ég hef nokkurn tíma á ævi minni smakkað. Heit súkkulaðikaka með ís og jarðaberjum, gerist ekki betraHeart ..


Og því að ég tala um ömmu mína, fann ég hérna úr því sem ég skrifaði um langömmu mína, þegar ég var að skrifa um fólk sem ég hef kynnst um ævina. Ég ætla að fara yfir þennan texta og bæta við. Ég náði mér til að lesa minningargrein um langömmu mína heitna, Sveinborg Jónsdóttur, og gerði eitthvað sem ég hef ekki gert svo lengi. Ég sat og sit eiginlega enn og græt.

Sveinborg langamma mín heitin, Sveina amma var rauðhærð, sítt hárið hennar og þetta fallega rauða hár. Ég fékk ekki að sjá það, því ég man bara eftir henni með hvítgráa hárið hennar. Afi færði mér mynd af henni frá unga aldri, ung dama sem situr með alheiminn í augum sér, og þetta síða, síða hrokkna hár. Rauða hár. Í myndarammanum er lokkur úr hári langömmu, og er ég set hár okkar saman, er liturinn nauða líkur. Þess vegna fórna ég ekki háralitnum mínum - langamma hélt svo mikið upp á mig og rauða hárið mitt. Bara ef hún gæti séð það núna.

Ég sat og beið út í bíl, beið eftir því að mamma væri búin að banka og athuga hvort að Sveina amma væri heima, og Jón langafi þegar ég var yngri. Þegar var veifað mér var langamma komin til dyra, ég litla feimna rauðhærða langömmustelpan faðmaði langömmu og langafa. Lykillinn hægra megin við hurðina var alltaf á sínum stað, til hægri þegar úr forstofunni var komið var lítið borð undir síma og stóll þar við hliðina. Skeinkur á móti með fullt af gömlum myndum, af langömmu og hennar systkinum þar á meðal. Og mjög oft kom sú spurning á vörum mér hver þetta væru nú aftur. Amma Sveina var alltaf með kex og smurosta á borðinu, ég man eftir lyktinni af smurostinum og mér þótti alltaf bara gott að borða kexið og smurostinn hjá ömmu, ekki nein staðar annarsstaðar. Eldhúsið var lítið og fíngert, eins og langamma. Eldhúsborðið var hringlaga og amma sat næst klukkunni við vegginn og útvarpið, alltaf út í horni. Nuddaði höndunum saman eða hélt annarri undir höfðinu og horfði á mig þegar ég sagði frá einhverju og kinkaði kolli.
Ég man að í gestaherberginu var skápur og þar voru litir, fimmhyrndir vaxlitir og litabækur með fullt af myndum, lituðum og ólituðum. Merktar frænkum og frændum mínum. Þar lágum við systurnar á gólfinu og lituðum og reyndum að haga okkur vel - því við vorum hjá langömmu.
Ég forðaðist það að fara á klósettið hjá langömmu því þar var allt svo fínt og ég vildi ekki óhreinka neitt, eða skemma. Frekar hélt ég í mér þar til við komum til ömmu Rósu og Axels afa.
Eina minningin mín um Jón langafa var sú að hann sat með öndunarvél, og langamma spurði mig hvort mér þætti þetta ekki skrítið tæki.
Stofan hjá þeim var eins og í bústað hjá konung og drottningu, sófasettið var svo fínt að það þurfti að fara varlega. Stórt málverk af fossi á veggnum og skeinkir upphlaðnir myndum af fjölskyldunni.

Ferðir okkar fóru að verða færri til langömmu með árunum, þó ég bað alltaf um það að kíkja á langömmu. Síðasta minningin mín um langömmu var sú þegar við fórum til hennar á hjúkrunarheimilið sem hún bjó á síðasta árið sitt, og þar bauð hún okkur nokkra súkkulaðimola - reyndi að fela fyrir okkur að hún væri orðin verri í lungunum.
Ég held að langamma hafi verið sú kona sem ekki vildi láta sjá á sér að eitthvað amaði að henni. Hún var móðir Axels afa, og ég sé vel að þau tvö, og systur afa hafa vel bein í nefinu.
Langamma og langafi bjuggu að Núpi, sem þekkist núna sem Kaffi Krús á Selfossi, langalangamma mín og langalangafi minn byggðu það hús, ykkur til fróðleiks.
Ég las það í minningargreininni að amma varðveitti íslenskuna sína, og vildi ekki heyra vonda íslensku, ég ætla að virða það og gera slíkt hið sama. Langamma mín var og er ein stærsta konan í mínu lífi, þrátt fyrir hversu lítil og nett hún var.


Þar sem ég á bara eina mynd af okku langömmu saman, og fleirum á henni, og ekki í tölvunni vil ég setja þetta lag með. Sunny Road, lag sem ég heyrði eftir jarðaförina, og minnir mig alltaf á langömmu þessvegna.


Tvær einstakar konur, amma Rósa og amma Sveina.
Amma mín, Róslín býr með afa, Axel í Kópavogi, og Axel afi er ákveðnasti maður sem ég veit um, og er æðislegur afi.

Ég á líka ömmu og afa í Keflavík, Öddu ömmu og Einar afa, þau þykir mér alveg yndisleg, og ég varðveiti minningarnar af þeirra heimili.

Minningar eru okkur öllum dýrmætar...Heart
Ég vona að færslan fari ekki fyrir brjóstið á ykkur, en mér þykir óskaplega vænt um þetta fólk, og þau öll eiga vissan part í hjarta mínu, og eiga öll mikið í mér. Ég ætla að lofa sjálfri mér að eyða meiri tíma með þeim, allavega meira en ég hef gert áður.

Eigið yndislegan sunnudag, lifið lengi og fallegaHeart..


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er yndislegt að eiga góðar ömmur og afa, algjört æði.

Kveðja Ragga

Ragga (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 10:07

2 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Falleg færsla hjá þér

Svanhildur Karlsdóttir, 7.9.2008 kl. 10:33

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 7.9.2008 kl. 10:37

4 Smámynd: Helgan

Sæt skrifa hjá þér frænka ég horfi alltaf á Kaffi Krús og huxa þarna bjó Afi bestaskinn

Knús á þig

Helgan, 7.9.2008 kl. 11:31

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk Ragga og Svanhildur

Huld

Takk Helga mín, ég einmitt horfi líka alltaf á Kaffi Krús. Hef einu sinni stigið þangað inn, mamma ætlaði að fá að sýna mér staðinn, en þorði það ekki. Alltaf þegar ég sit með einhverjum nýjum í bíl á leið í bæinn læt ég hann vita að þetta hús byggðu sko langalangafi minn og langalangamma mín!
Helga, við bara verðum að hittast einhvern tíma, langamma og afi þinn, það voru þau sem voru systkinin sem voru saman hjá foreldrum sínum.
Knús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 7.9.2008 kl. 11:39

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Yndisleg færsla hjá þér Róslín mín

Sigrún Jónsdóttir, 7.9.2008 kl. 11:46

7 identicon

hæ Róslín takk fyrir að deila þessum minningum með okkur sem að kíkjum hérna inn. Gott og gaman að þú skulir eiga svona góðar og fallegar minngingar um fólkið þitt... það er endalaust hægt að ylja sér við þær... Kveðjur frá DK Svava

Svava Bjarna (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 11:51

8 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Formæður þínar og forfeður mega vera stolt af þér Róslín krúsímús.

Yndislegar færsla og yndislegar myndir.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 7.9.2008 kl. 12:38

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk Rósin mín þessi færsla kom tárunum fram hjá mér,( þarf kannski svo mikið)
en hugsaðu þér að eiga svona minningar ómetanlegt, þú ættir að rita þetta niður.
það er greinilegt að þú hefur erft mikið frá ömmu og langömmu, enda örugglega eigi leiðum að líkjast.
Knús til þín basta mín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 7.9.2008 kl. 12:42

10 Smámynd: Ómar Ingi

Falleg færlsa hjá þér  Bloggvinkona

Ómar Ingi, 7.9.2008 kl. 15:10

11 Smámynd: Aprílrós

Svo sætar minningar. Guð veri með þér

Aprílrós, 7.9.2008 kl. 17:09

12 identicon

Skemmtileg  færsla hjá þér,ég held bara að þú sért frænka mín hann Einar afi þinn í Keflavík er móðurbróðir minn, þú er þá væntarlega dóttir Valdimar, sem er sonur Einars og Öddu í Keflavík. Heimurinn er lítill.

Jóhanna Elín Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 21:32

13 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Bergljót Hreinsdóttir, 7.9.2008 kl. 23:32

14 Smámynd: Brynja skordal

Brynja skordal, 8.9.2008 kl. 01:58

15 identicon

Halló Róslín.
Rosalega fallegt blogg hjá þér. Það er alveg æðislegt að hlýja sér á góðum minningum.
Talandi um minningar... váá hvað ég fékk mikið flashback þegar ég sá þessar myndir í færslunni hjá þér, rólurnar, þú svona lítil og ég man þvílíkt eftir þessari húfu (bleiku/loðnu)... híhí þú ert algjör dúlla.

Bestu kveðjur,
Gugga

Guðbjörg Valdís (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 20:06

16 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk, takk, takk, takkkkkk endalaust

Æ, Guðbjörg! Mannstu eftir mér, það er æðislegt. Ég man sjálf bara voða lítið af sjálfri mér, en ég er viss um að ég hafi verið algjör rjómabolla!

Andrés, hann var í gær víst... fréttirnar alltaf of seinar að berast, auðvitað hefði ég haft bloggfærslu í tilefni þess!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 8.9.2008 kl. 21:30

17 Smámynd: Hulda Sigurðardóttir

Þetta var mjög falleg færsla hjá þér. Ég hef álíka minningar um hann afa minn sem að lést í fyrra. Ég og hann vorum bestu vinir og fékk ég það tækifæri á að vera með honum þegar hann kvaddi og er ég mjög þakklát fyrir það. Minningarnar deyja aldrei þannig að haltu fast í þær og varðveittu.

 Ég mun sakna þess að lesa færslurnar frá þér.

Hulda Sigurðardóttir, 9.9.2008 kl. 22:00

18 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Hulda mín! Því skal ég þér lofa að ég er nú alls ekki hætt, mig klæjar bara í puttana í að skrifa. En ég verð að sjá hvar ég stend í stöðunni og hvort það sé eitthvað óyfirfarið. Er enn að koma mér af stað í ritgerð, mjög stutta samt sem ég á að skila fyrir morgundaginn!
Var að til kl. 19.00 í dag, og kom ekki heim fyrr en þá, svo að ég hef margt að gera..

Róslín A. Valdemarsdóttir, 9.9.2008 kl. 22:12

19 identicon

þetta var skemmtileg lesning..ég á svo margar minningar af móðurömmu og afa..ég þekkti lítið langömmur mínar..þó man ég eftir langömmu í föðurætt sem átti heima a siglufirði..

árný jóhanns (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 13:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband