6.9.2008 | 12:37
Ég sendi Þorgerði Katrínu póst..
.. og bíð spennt eftir svari, benti henni á tvær af færslunum mínum og nú já, bíð ég spennt eftir að hún lesi frá mér póstinn og svari mér vonandi!
Ég veit ekki hvort það verði gert eitthvað í þessu, þar sem að það er oft horft framhjá svona hlutum, mig LANGAR að geta lært í tímum. Ekki þurfa að hlaupa yfir í næstu stofu þar sem enginn er til að læra í friði og ró.
Ætla bara að hafa þessa færslu svona stutta, vann frá 8 til 11:30 í dag, nokkuð gott. Fór auðvitað snemma í rúmið til að vera ekki vondur starfskraftur. Ætla að hjóla út í búð til að kaupa mér smá gotterí og örugglega nýta daginn til lærdóms. En ekki hvað!
Eigið góðan laugardag
Svo á Laufey frænka mín afmæli í dag, til hamingju Laufey
!
E.S. Ég var ekki búin að átta mig almennilega á dagsetningunni, en mér finnst magnað að geta sagt ykkur það að í dag er einn mánuður þangað til að við Rafn höfum verið saman í 2 ár....
Ég veit ekki hvort það verði gert eitthvað í þessu, þar sem að það er oft horft framhjá svona hlutum, mig LANGAR að geta lært í tímum. Ekki þurfa að hlaupa yfir í næstu stofu þar sem enginn er til að læra í friði og ró.
Ætla bara að hafa þessa færslu svona stutta, vann frá 8 til 11:30 í dag, nokkuð gott. Fór auðvitað snemma í rúmið til að vera ekki vondur starfskraftur. Ætla að hjóla út í búð til að kaupa mér smá gotterí og örugglega nýta daginn til lærdóms. En ekki hvað!
Eigið góðan laugardag


Svo á Laufey frænka mín afmæli í dag, til hamingju Laufey


E.S. Ég var ekki búin að átta mig almennilega á dagsetningunni, en mér finnst magnað að geta sagt ykkur það að í dag er einn mánuður þangað til að við Rafn höfum verið saman í 2 ár....



Athugasemdir
Littla Rauð Beið Og Beið Og Beið ..........
Ómar Ingi, 6.9.2008 kl. 12:38
Æjjjji Ómar, blessaður vertu....


Frostaveturinn mikli, ég veit ekki sjálf líkurnar, það eru allavega helmingsslíkur eins og alltaf við öllu. Reyndar er það 99% líkur á því að ég svari póstinum mínum. Hef sent svo mörgum póst svo ég er hætt að svekkja mig á því hvort mér sé svarað eða ekki - annað hvort hefur fólk nóg að gera ef það vill einfaldlega ekki svara mér. Ég sætti mig við það, en svekki mig kannski á því til að byrja með og vænti of mikið. - Svo fæ ég hnút í magan þegar ég sé að ég eigi eitt ólesið bréf!
En takk kærlega fyrir þessi orð, ég veit ekki hvað ég get sagt annað en bara takk!
Og takk sömuleiðis - njóttu daganna
Róslín A. Valdemarsdóttir, 6.9.2008 kl. 14:35
Og hvað sagðir þú í bréfinu?
Halla Rut , 6.9.2008 kl. 16:01
Halla, ég benti henni á færslurnar mínar, bæði um hana og Bejing-málið og síðustu færslu sem ég skrifaði. Um skólamálin og vildi endilega fá hennar álit, - mig langar rosalega að það sé gert eitthvað í þessu.
Róslín A. Valdemarsdóttir, 6.9.2008 kl. 16:05
Ég les þetta betur í kvöld en ég er að vinna....
Þú hefðir átt að spyrja um leið af hverju hún fór ekki til Kína núna þegar fatlaðir eru á Ólimpíuleikunum. Hún fór tvisvar til að sýna hinum virðingu sína en sýnir fötluðum enga.
Forsetin fór ekki einu sinni í þetta skiptið.
Halla Rut , 6.9.2008 kl. 16:08
Halla mín, ég hefði átt að spyrja hana að því. En mér finnst þetta rosalega mikil óvirðing gagnvart þeim!
Svo ég tali nú ekki um það að það hefur ekkert eða lítið verið talað um þau í fréttum!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 6.9.2008 kl. 16:13
"Mig LANGAR að geta lært í tímum. Ekki þurfa að hlaupa yfir í næstu stofu þar sem enginn er til að læra í friði og ró."
Elsku Róslín mín, þú veist ekki hversu oft ég hef, í starfi mínu, hlustað á sambærilegar kvartanir nemenda, sem fá engan frið fyrir órólegum bekkjarfélögum. Nemendur sem langar að læra og fá vinnufrið.
Sjálf myndi ég nú varla geta unnið mikið ef alltaf væri einhver með hávaða eða læti í kringum mig.
Nám er vinna. Það hljóta allir að eiga heimtingu á að fá vinnufrið á sínum vinnustað. Líka þú fröken fix.
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 6.9.2008 kl. 16:39
Ég á fatlaðan son (hann er 26 ára), hann keppti á Ólimpíuleikum fatlaðra í Sydney fyrir 8 árum, lítið sem ekkert var fjallað um þá leika, ég hafði samband við fjölmmiðla og kvartaði, en sé að ekkert hefur breyst, þetta er sárt fyrir okkar keppendur
Svanhildur Karlsdóttir, 6.9.2008 kl. 18:49
usss mín bara dugleg vinna frá 08:00 - 11:30 en samt ekki eins dugleg og stóra rauðhærða og örfhenta frænka þín sem vann frá 06:00 - 19:00
Hulda Björg (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 20:09
Jóga, það er allt of mikið um þetta, mig langar svo mikið að geta lært. Þetta er bara eigingirni í öðrum og ekkert annað!
Ég mun á endanum segja eitthvað um þetta og missa mig mjög líklega... oft á línunni við það að missa mig, verða brjáluð. Hef nokkrum sinnum sussað og fengið ,, hmm, erum við eitthvað að trufla þig Róslín?" í kaldhæðnum tón. Mér finnst það mjög óþægilegt...
Svanhildur, ég hefði svo sannarlega viljað að sjá svona framfarir, ÉG persónulega hef meiri áhuga á Ólympíuleikum fatlaðra, þar sem að þar er fólki tekið eins og það er. Og verðlaunin sem okkar fólk hefur unnið er allt of vanmetið. Ég verð að viðurkenna að ég veit ekkert um Ólympíuleika fatlaðra, þar sem ég hef ekkert frétt og ekkert séð fréttir um þá. Ég man þegar sundkona vann frekar mikið, og það að hún hafi ekki m.a. verið kölluð upp á svið ásamt hinum í að heiðra strákana okkar fékk ég mig alveg fullsadda. Athöfnin fyrir þá kostaði eflaust mikið meira en útlandarferðir Forsetans og frú og Þorgerðar og herra samanlagt.
Ég fékk ógeð af því að heyra þetta á hverjum degi minnst 5 sinnum ,, Strákarnir okkar, silfurverðlaun, Ólympíuleikar ". Þjóðarstoltið var flott, en af hverju ekki að sameinast svona og fagna gulli?...
Hulda, það þurfti ekki fleiri í vinnu eftir hádegi svo að þeir sem eru nýbyrjaðir voru látnir fara heim.....
Róslín A. Valdemarsdóttir, 6.9.2008 kl. 20:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.