Kallið mig bara kennarasleikju...

... því mér er alveg sama hvað ég er kölluð, ég veit betur og get talað við alla aldurshópa manna og þess vegna dýra líka ef þess þarf.

En ég er með smá svona kvartfærslu. Ég er komin með yfir mig nóg af því að sitja inn í bekknum mínum, því miður, þar sem við höfum flest setið saman frá því í 1. bekk. Ég er ekki komin með leið á krökkunum í bekknum, heldur því að það er mjög sjaldan vinnufriður í bekknum.
Ég veit að eflaust fæ ég þetta margfalt til baka frá bekkjarfélögum mínum, en það gæti verið þess virði, því að í mínum augum er þetta algjör vanvirðing gagnvart þeim sem vilja læra; og ekki síður kennaranum.

Ég trúi því ekki að þetta viðgangist ekki annarsstaðar á landinu, því þetta er alveg agalegt fyrir þá sem hafa metnað fyrir því að læra og þurfa að hafa fyrir því til að fá háar einkannir - til að komast inn í skólann sem þeim langar í. Eins og einhverjir nemendur er ég lengi að lesa, og þarf helst að lesa efnið tvisvar ef til vill þrisvar til að skilja almennilega fyrirmælin - og er frekar lengi að lesa 30 blaðsíðna kladda og glósa. Þar sem ég er orðin vinnandi manneskja frá og með morgundeginum þá get ég ekki eytt dögunum í það að læra, tala nú ekki um það þegar fótboltinn fer að spila inn í og Leikhópurinn Lopi einnig.
Hef ekki hugmynd um það hvort ég sé að sökkva mér á kaf í vinnum og verkefnum, en peninga er fínt að hafa við höndina - jólin fara að nálgast og margt annað framundan, afmæli mömmu og bróður míns þar á meðal. Eftir jól afmælið hans Rafns. Mig langar að gefa fyrir minn eigin pening - sem ég vann inn sjálf.

Nú skora ég á stjórnvöld að þessi skólamál verði rædd. Mig langar til að geta náð samræmduprófunum - og að geta klárað lærdóminn sem á að lærast í skólanum á ásettum tíma.

Hafið það annars sem best, ég veit ekki hversu mikið ég verð í tölvunni næstu tvo daga, þar sem ég verð að vinna eftir skóla og eitthvað svoleiðis! En við sjáum til, við sjáum til.

Knús þangað til næstHeart

E.s. Ég byrjaði að vinna í humri í dag ( föstudag ) í Bestfisk og er heldur þreytt eftir skólann til þrjú og vinnu frá fjögur til sjö. Vakna í fyrramálið kl. hálf átta í vinnu.
Mér finnst magnað á þessum 4 árum sem ég hef "unnið" hef ég kynnst svo mörgu, ef ég tel allt upp þá er það frekar mikið miðað við þessi fjögur ár sem ég hef lært af þessu. Ég vann við að passa stelpu í viku, 8 tíma á dag. Mjög krefjandi þar sem ég kunni ekkert á börn og lærði helling á þessari einni viku. Vann í bæjarvinnunni eitt sumarið, og í sumar vann ég á Menningarmiðstöðinni. Ég var kölluð kennari í barnastarfinu, afgreiddi á bókasafninu og lærði á allt það kerfi, sat yfir á myndlistasýningu, þar sem enginn kom inn, og á Byggðasafninu og um leið yfir minni eigin sýningu, síðast en ekki síst lærði ég á myndakerfið og skráði inn eldgamlar myndir í tölvu og skráði útilistaverkin hér á Höfn. Núna er ég að vinna út mánuðinn í humri, og það mun án efa vera vinnan sem ég fæ mest útborgað fyrir - ekki slæmt það!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Littla rauð sleikir Kennara !

Ómar Ingi, 4.9.2008 kl. 22:37

2 identicon

jahá  svo mikið að gera hjá þér.....  reyndar þekki ég ekki þessi læti því hjá mér var alltaf friður.   Mér  finnst samt gott að sleikja....

En ég gleymdi að svara spurngingu frá þér um daginn um hve gömul ég er....    borin í maí 2001.

Brúnkolla (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 22:49

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Já hafðu það bara eins og þú vilt Ómar....

Kýr eru óborganlegar, og þú svona vel skrifandi Brúnkolla. Ekki furða að kýr sé uppáhalds dýrið mitt!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 4.9.2008 kl. 22:52

4 Smámynd: Helgan

kannast við þetta frá því ég var í grunnskóla held þetta sé nú víða svona... aldrei flóafriður.

Þetta snýst nú líka um kennarann, hvernig aga hann beytir og hversu mikla virðingu bera nemendur þá fyrir honum/henni. Maðurinn minn var að kenna og það múkkaði aldrei í liðinu inn í tíma hjá honum en svo var kannski sami bekkurinn flokkaður sem vandræðabekkur meðal annarra kennara. Hann kenndi mest á unglingastigi.

Fúlt fyrir þá sem vilja læra.

Kallaðu þig bara pinna miklu skemmtilegra en kennarasleikja ég er pinni=sleikipinni hehe

Helgan, 5.9.2008 kl. 07:16

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ég kalla þetta nú ekki að sleikja kennarann, þetta var líka vandamál í fyrra í þínum bekk var það ekki? algjörlega óþolandi, á ekki að eiga sér stað.
Kennarinn er bara ekki að valda því að halda uppi aga í bekknum, eru ekki fleiri krakkar óánægð, þá er að taka sig saman og kvarta, það gerðum við er ég var í gaggópældu í því gaggó.
Knús til þín Rósin mín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.9.2008 kl. 08:50

6 identicon

Flott hjá þér framtíð Íslands að láta í þér heyra og þú sýnir ágætan skilning á vandamálinu því hann liggur ekki hjá kennaranum heldur nemendunum.  Allir þeir sem hafa reynt að láta 20 30 krakka og unglinga gera eitthvað sem nokkrir þeirra vilja ekki gera, aðrir gera ekki vegna þess að þeir eru undir áhrifum þeirra sem vilja ekki gera það og svo nokkrir sem er eiginlega alveg bíbsama.  Ímyndið ykkur barnaafmæli með 25 krökkum sem stendur í nokkra klukkutíma - hvurs vel upplagður er maður eftir þá samkomu?  Hvernig gengur foreldrum yfirleitt að hafa stjórn á krökkunum sínum?  Hvernig gengur obbanum af fólki að fá krakka til að taka til í herberginu, vaska upp, fara með ruslið - raða skónum og allt þetta?  Margfalið svo með 25 og þá er kannski ekki von á því að alltaf gangi vel.  Ábyrgð á námi hvers og eins liggur hjá honum sjálfum - engum örðum.  15 ára unglingar eiga að vita hvað til síns friðar heyrir.  Þú átt rétt á því að geta sinnt þínu námi rétt eins og þú átt rétt á því að geta ferðast um í umferðinni án þess að eiga vona á því að annar hvor maður brjóti á þér.  Nú er bara að skapa samstöðu í nemendahópnum, leita eftir samstarfi við kennara og skólastjóra og skapa notalega stemmningu, hvetjandi námsumhverfi og leitast eftir því að láta öllum líða vel þannig að þeir nái að ljúka grunnskóla sáttir með góða sjálfsmynd  - vitandi að þeir hafa í raun gert vel.  Gangi þér vel að vekja mál á þessu - þú ert ekki ein um að líða svona - börnin mín töluðu líka um hið sama.  Ég held að samfélagið allt þurfi að skoða afstöðu sína til agamála og hvernig við ölum upp komandi kynslóð.  Við verðum öll að standa að því að skapa samfélag þar sem virðing er borin fyrir öðru fólki.  Kveðja Ingveldur sem er kennari, móðir og var jú vissulega einu sinni ódæll unglingur

Ingveldur (IP-tala skráð) 5.9.2008 kl. 10:53

7 Smámynd: Sunna Guðlaugsdóttir

Ég er í nákvæmlega sömu stöðu og þú, Róslín Alma, í augnablikinu. Ég var að byrja í alþjóðlegum menntaskóla, þar sem allt er á ensku, og maður þarf virkilega að einbeita sér til þess að skilja allt og fá allt með. Það er gjörsamlega óþolandi þegar nokkrir aðilar eyðileggja fyrir hinum, og espa oft aðra upp.

Ingveldur, mér finnst það hinsvegar ekki rétt að segja að vandamálið sé aðeins nemendanna. Kennarinn hefur völdin til þess að reka fólk úr tímanum ef það truflar hina, og getur talað við foreldra og skólayfirvöld o.s.fr. Auðvitað er það á ábyrgð hvers og eins að læra og einbeita sér, en það er hins vegar alveg á hreinu að það munu alltaf vera einhverjir sem taka það ekki nógu alvarlega og skemma þar af leiðandi fyrir hinum. Það er alveg ótrúlega ergilegt, sem nemandi sem er mættur í skólann til þess að læra, að heyra ekki hvað kennarinn er að segja og að maður nái aldrei því sem planað var, vegna óláta. Þess vegna verður kennarinn að grípa inn, og það er mjög oft sem þeir gera það ekki.

Ég skil þig svo vel Róslín! Eigðu góða helgi

Sunna Guðlaugsdóttir, 5.9.2008 kl. 11:08

8 identicon

Sæl Róslín.
Glæsileg grein hjá þér. Það er mjög þarft verkefni að fara yfir vinnuhætti í skólum. Þeir sem eru að trufla eru að eyðileggja fyrir hinum og hafa bara ekkert leyfi til þess. Við þurfum að læra að taka tillit til samferðamanna, hvort sem það er í skóla eða í umferðinni.
thorgerdur.katrin.gunnarsdottir@mrn.stjr.is er netfangið hjá Þorgerði menntamálaráðherra og hvet ég til að senda henni greinina þína. Hver veit hvað kemur út úr því?
Með kveðju,
Bjarki

Bjarki Jóhannesson (IP-tala skráð) 5.9.2008 kl. 12:25

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Góð grein hjá þér Róslín mín og þú ert svo dugleg kær kveðja.

Kristín Katla Árnadóttir, 5.9.2008 kl. 13:19

10 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég nenni ekki að vera að svara hverjum og einum, þar sem það sama kemur upp nokkrum sinnum.

 Ég skil það vel að þið haldið að þetta geti líka verið kennararnir, nei ekki svo, ekki svo. Það eru engin agavandamál innan bekkjarins, enginn með neitt þannig greint allavega. Virðingaleysi gegn kennurunum er held ég aðal málið.

Þakka ykkur Hallgerður og Katla

Bjarki, ég sendi Þorgerði Katrínu póst í dag, bíð spennt eftir svari!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 5.9.2008 kl. 19:43

11 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 5.9.2008 kl. 19:58

12 identicon

Það er ekki bara viriðingarleysi gagnvart kennurunum heldur og líka foreldrum, sjálfum sér og ekki síst þeim bekkjarfélögum sem eru að leitast við að reyna að læra í friði til að fá hærri einkUnnir.

Gamli kennarinn (IP-tala skráð) 5.9.2008 kl. 21:18

13 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Já, takk fyrir að bæta við það, gamli kennarinn.. ?

Ég með mína stafsetningu hef ekki enn samþykkt að það sé einkunnir, það hljómar hálfbjánalega finnst mér!

Knús á þig Linda mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 5.9.2008 kl. 21:23

14 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Róslín mín, þú skalt bara trúa gamla kennara......það er einkunnir.

Þú ert frábær eins og þú ert

Sigrún Jónsdóttir, 5.9.2008 kl. 23:27

15 identicon

Sæl Rósalín.

Frábært hjá þér.

Ef þú talar ekki---------------skeður ekki neitt.

Orð eru til alls fyrst.

Haltu áfram að tjá þig um það sem skiftir þig máli,

Kærar kveðjur.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 12:56

16 identicon

Einkunn, forkunn,miskunn.vorkunn

Kveðja 

Eilífðar nemandi (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 19:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband