31.8.2008 | 20:08
Af hverju kreppa?
Á meðan stjórnendur þjóðarinnar ( við lifum í lýðræði munið þið...) skjótast hingað og þangað um jörðina ýmist á allskonar þotum og flugvélum á peningum skattborgara, ríkir kreppa hér, til hvers og hvers vegna, af hverju er kreppa?
Ég spurði þessara spurninga við kvöldmatarborðið þar sem ég sat og borðaði of-vel grillaða svínasnitselið, og fékk það svar frá mömmu að ég ætti að spyrja hina og þessa. Allt einhverja stjórnmálamenn og banka. Getur lýður landsins ekki útskýrt ástandið fyrir mér hér á landi, eða verð ég að gerast svo háttvís og senda stjórnmálamönnum, jafnvel forsetanum okkar e-mail, eða handskrifað bréf, svo það berist pottþétt á Bessastaði?
Annars hef ég verið að skrifa oft og margsinnis sömu stafi og sömu tölur í dag, er að læra heimavinnu fyrir grunnteikningu og þurfti að skrifa langan texta, skrifaði stutta sögu sem ég set hérna inn, hún er alfarið á minni ábyrgð og mínu hugmyndaflugi. - Ég hef líka svoleiðis, og ég get svo vel ímyndað mér þetta!
Einu sinni, fyrir langa, langa löngu, á steinöld voru svokallaðar járnhænur uppi.
Ósköp sjálfbjarga en sjaldgæfar og sjaldséðar járnhænur. - Kannski ekki skrítið, enda aðeins 3 eintök. Allar bjuggu þær á Bermudaeyju, í einni kös í helli langt frá sjónum. Járnhænurnar voru rosalega mismunandi að lit, í skapi og hegðun.
Sú fyrsta var appelsínugræn og var rosalega flughrædd. Járnhæna nr. 2 var fjólugrá og mjög svo vatnshrædd.
Þriðja og síðasta járnhænan var skitublá og át ekki kjöt. Þær áttu eitt sameiginlegt, það var að þær voru allar með brynju sem náði niður að hnjám. Og Það kaldhæðnasta við nafnið járnhæna og brynjur þeirra var það að brynjurnar voru úr stáli og ekkert fannst járnið í hænunum.
Þegar grey hænurnar uppgötvuðu það, stökk sú skitubláa út í sjó og hinar tvær á eftir. Sú fjólugráa dó við magaskellinn og hinar drógu hana upp og suðu hana í raspi. Skitubláa sprakk í loft upp af fyrsta bitanum og sú appelsínugræna varð svo hneyksluð og einmanna að hún flaug upp í geim og klessti á Plútó og dó.
( Lét mömmu lesa söguna, og það kom mér á óvart að hún hló, sagan er ekki vitund fyndin heldur háalvarleg...)
- Hversvegna er ekki sérnámskeið fyrir örvhenta til að skrifa betur????
Þegar stórt er spurt, hefur margur ekki þor í að svara...
Gangið hægt í .... kreppunnar? dyr!
Athugasemdir
Heppin ertu samt að vera ekki pínd til að skrifa með hægri. Systir mín sem er fædd 1951 var pínd til að nota þá hægri í skóla og þessvegna er hún jafnfær á báðar, skrifar mjög vel, skiptir bara á milli handa ef hún þreytist. Það er sjaldnast til gott svar við gáfulegum spurningum, það fælist of mikill sannleikur í svarinu. Knús aftur


Ásdís Sigurðardóttir, 31.8.2008 kl. 20:14
Ómar Ingi, 31.8.2008 kl. 20:15
Ásdís, núna er ég bara að reyna að vera rétthent á trommusett - mér gengur rosalega illa..
Ef ég er ekki búin að móðga þig svo mikið!
En það væri rosalega gott að reyna að læra að nota hægri, ég er bara svo ótrúlega "hreyfihömluð" á hægri helmingi líkamans. Þegar ég sparka bolta með hægri dett ég oftast í leiðinni..
Knús
E.s. Kannski ég kíki á Selfoss, ætti þá að nýta ferðina og heilsa ættingjum mínum þar. Á helling af þeim þar, sem ég hitti allt of sjaldan! Kannski þekkir þú eitthvað af þeim.
Og Ómar þú mátt alveg koma á Selfoss í kaffi ef þig langar...
Róslín A. Valdemarsdóttir, 31.8.2008 kl. 20:32
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 31.8.2008 kl. 20:34
Móðga mig ?
Þú þarft fyrst að byrja að móðga mig Littla Rauð
Ómar Ingi, 31.8.2008 kl. 20:58
Huld S. Ringsted, 31.8.2008 kl. 22:12
Þú ættir að verða rithöfundur. Það er ótrúlega gaman að lesa það sem þú skrifar. Greinilega með rosalega mikið ímyndunarafl og kemur því vel frá þér. Glaður að hafa rambað hingað inn og fengið eitthvað við sunnudagsþunglyndinu.
Sigurgeir (IP-tala skráð) 31.8.2008 kl. 22:40
Knús á þig Linda mín


!
Ómar, ég var orðin stolt yfir því að hafa móðgað þig..... greinilega tekst það ekki!... reykjavíkurplebbi!
Sæl Huld mín!
Þakka þér kærlega fyrir þessi orð Sigurgeir, ég met þau til mikils
Mín var svo sannarlega ánægjan.
En ég sé til með rithöfundastarfið, ég hef reynt það fyrir mér, reyni aftur seinna!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 31.8.2008 kl. 22:59
Halla Rut , 31.8.2008 kl. 23:03
Hahaha ... sko ... það eina sem þú þarft að vita er að þetta byrjaði allt með Davíð Oddsyni og sjálfstæðisflokknum. Handviss um að Bláa Járnhænan er ætt-hænan hans.
Annars - þú ert bara brilljant penni skottið mitt og bara gaman að lesa þig alltaf. Ætlaði nú ekkert að vera að kvitta um eitt eða annað á meðan ég er í fríi en mátti til með að henda á þig kveðju stubban mín .. lifðu heil, þú ert framtíðarpólitíkin okkar hinna og verður sennilega góð á þeim vettvang! Stattu þig og láttu aldrei neinn breyta þér - þinn tími mun koma - oftar en Jóhönnutíminn... knús frá Spáni.
Tiger, 1.9.2008 kl. 09:20
Hafðu ekki áhyggjur af örfhentunni, að öllu jöfnu eru örfhentir mun lægnari og í meira jafnvægi en rétthentir.
Þetta með kreppuna hér á Íslandi, þá held ég því fram að hún sé fyrir bankana, olíufélögin og tryggingafélögin og henni handstýrt af þeim sömu með hlutleysi (leyfi) seðlabankanns og ríkisstjórnarinnar.
Högni Jóhann Sigurjónsson, 1.9.2008 kl. 12:11
Því miður hef ég 0,000............1 % tíma til að svara, svo ég get ekki svarað ykkur - annars myndi allt fara þvers og kurs ( eins og að vanda..).

Fer á kosningavöku í félagsmiðstöðinni í kvöld, er að bjóða mig í "Þrykkjuráð" og aðeins 3 úr 10. bekk komast inn - Wish me luck... margir búnir að pína uppúr fólki til að kjósa sig, ég búin að pikka í einstaka nemanda 10. bekkjar og spurja hvort það yrði kosið mig og gef þau rök ( mjög góð rök! ) að það sé gáfulegast að hafa eina stelpu úr 10. bekk í ráðinu.. og afhverju þá ekki einhverja sem hefur áhuga fyrir því að gera menningarlíf ungmenna skemmtilegra?
Maður spyr sig!
Annars held ég núna áfram að læra í sögu fyrir morgundaginn, fer á æfingu eftir hálftíma og eftir æfingu ætla ég að gera mig aðeins fínni. Er í þessari hallærislegu extra lards gráu hettupeysu, merkt Grunnskóla Hornafjarðar - O M G....
Sem svo ræðuna mína einhverntíman í millitíðinni þarna.
Hafið það gott
Róslín A. Valdemarsdóttir, 1.9.2008 kl. 16:28
Ég hló mig máttlausa, sagan er bara fyndinn, allir eru búnir að svara þér með kreppuna, en Tiger svarar best að vanda.
Knús á þig Rósin mín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.9.2008 kl. 19:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.