30.8.2008 | 00:41
Þorgerður Katrín og Bejing-málið!
Þar sem ég er að mestu leiti mjög stjórnmála-pólitíkusarfötluð manneskja ( já, ég veit að ég tel mig vita eitt og annað...) þá rakst ég á frétt á Vísi.is. Ég veit ekki, og er ekki búin að kanna hvort sama frétt, eða svipuð frétt sé hér á mbl.is enda nægir þessi heimild mér. Allavega hingað til.
Þorgerður Katrín - eitt af nöfnunum sem ég man og þekki hana á andlitinu. Sú fræga kempa, er núna þekkt fyrir að fara tvisvar til Peking á Ólympíuleikana, þá sömu. Á andvirði 600 þúsund án hótelgistingar og Guð má vita hvað og hvað - svo fylgdi maðurinn með, muniði. Á kostnað þjóðarinnar, eða allra yfir 18 ára aldri sem eru vinnandi menn og konur og borga í skatt. Er ég ekki enn að tala um það sama og allir aðrir? Þið verðið að láta mig vita ef ég færi mig yfir á vitlausa teina, þar sem það gæti valdið járnbrautarslysi!
Íþróttamálaráðherra, skírir sig alveg sjálft. Það er Þorgerður Katrín, sem sýnir dygga aðdáun, sem er hreint út sagt aðdáunarverð ( að mínu mati allavega ), á íslenska handknattleiksliðinu okkar. Strákunum "okkar".
Ingibjörg Sólrún, Utanríkisráðherra, eða hvað sem það heitir nú, ferðast hún ekki út um allan heiminn á okkar kostnaði líka. Til að segja hæ og ræða um einhverja af og til mjög svo ómerka hluti?
Stoppið mig ef þetta er eitthvað rangt hjá mér. Í fyrstu var gert mál úr þessu, svo hvarf þetta bara með vindinum í fullan haug af svona sandkornum - sem skipta engu máli.
Ég píndi mig naumast til þess að horfa á móttöku íslenska landsliðsins okkar í handknattleik, heimkoman sem átti alfarið að vera stutt og snúast einungis í kringum strákana "okkar". Ótrúlegasta lið var kallað upp á svið, svo LOKSINS komu strákarnir upp á svið, aðalatriðin takk fyrir pent. Gleðin skein úr andliti þeirra, og sem meira var, var andlitið á Þorgerði Katrínu eins og á lítilli stelpu sem hefði aldrei áður farið í svona risastóra bleika dótabúð. Ég var ekki alveg viss hvor var ánægðari, hún eða strákarnir. Reif þá nánast til sín og smellti rembingskossi á kinn þeirra, já, ekki hliðarkoss. Hún var sko engan veginn að spara varalitinn eða glossið!
Ég held að það hafi bjargað mér að horfa á hana þegar strákarnir hoppuðu upp á svið, því allt sem fór fram þar áður var langdregið og ég segi ekki meir.
Meginmálið er það, að í augum mér er Þorgerður Katrín manneskja, manneskja sem var skipað í það verk að standa með íþróttamönnum, og hún gerir það svo sannarlega!
Mín skoðun þarf ekki að endurspegla mat þjóðarinnar...
Eigið góða helgi, pólitíkusar sem og anti-pólitíkusar!
Athugasemdir
Ég styð Þorgerði Katrínu í þessu máli og þó maðurinn hennar hafi farið með þá er það aukaatriði í mínum huga.
Róslín:Ég fæ ekki betur séð enn að þú farir með rétt mál í öllum atriðum.
Magnús Paul Korntop, 30.8.2008 kl. 01:34
He, he, .....
þú ert góð
...en fyrir mér var ekki málið að hún færi út ... og tæki karlinn sinn með.. alveg sjálfsagt. EN að hún skyldi koma heim og fara aftur út með karlinn sinn - þar bregst hún mér og væntanlega fleirum - gjörsamlega!!
Ég er alveg sammála þér að hún er aðdáunarverð... en þarna fór hún yfir strikið að mínu mati!! En hvað ert þú að bulla um þetta elskulega stelpa? ...þú ert allt of ung til að hafa skoðanir á þessu!!
- 

Edda (IP-tala skráð) 30.8.2008 kl. 03:05
Maður er aldrei of ungur til að hafa skoðanir á einhverju!
Sunna Guðlaugsdóttir, 30.8.2008 kl. 08:04
Já mér finnst fáránlegt að hún hafi komið heim og farið aftur sorry.... Það eru margir sem hefðu getað gert eitthvað fyrir peninginn eins og t.d. fatlaði bóndinn sem er búinn að missa sín sérútbúnu tæki vegna smá skuldar. Ég hefði frekar viljað að peningurinn sem hún notaði hefði farið til hans.
En hún er greinilega ágætur ráðherra en þetta er mín skoðun og þarf ekki að endurspegla skoðanir annara.....
Vona að dagurinn verði ánægjulegur dúllan mín og það er gott að hafa skoðanir á málunum. kv. Ragga
Ragga hans Rafns..... (IP-tala skráð) 30.8.2008 kl. 08:57
Ég var hérna eitthvað að skoða, og sá þá að þú ert með lagið "the story" með Brandi Carlile. Þetta er uppáhalds lagið mitt, og mikið varð ég glöð að sjá það hérna :) Ég held við eigum mjög margt sameiginlegt. Annars þá langaði mig bara að segja að ég les alltaf bloggið þitt, þótt ég kvitti ekki alltaf. Keep up the good work, duglega stelpa! Og góða helgi!
- s
Sunna Guðlaugsdóttir, 30.8.2008 kl. 10:20
Takk fyrir þitt svar Magnús.

( kaldhæðni..) 


!
Edda, Edda, Edda, Edda... ég hef farið út í þetta áður, og vil helst ekki ræða um þetta aftur. Aldur skiptir ekki máli - á meðan maður getur haft skoðun á þessu!
Einmitt Sunna!
Við erum alltaf svo sammála Ragga mín
Sömuleiðis mín kæra
En skemmtilegt Sunna!
Það er eitt af mínum uppáhalds lögum, ótrúlega flott.
Fyndið hvað við eigum margt sameiginlegt
En takk kærlega fyrir það, met það til mikils og góða helgi sömuleiðis
Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.8.2008 kl. 10:29
Soldið mikið til í þessu hjá þér allavega , var eins og liðið með silfrið væri aukatriði en einhverjir andsk pólitískusar að troða sér fyrir framan brosandi og syngjandi pifffft
Þess vegna fannst mér Óli bestur tók ekki í hendina á neinum og þegar hinum var beint á það sagði hann bara isss og kastaði veifandi kveðju á pakkið.
Thats my man
Eigðu helgina góða Lína Rós
Ómar Ingi, 30.8.2008 kl. 10:54
Af hverju hættum við ekki að setja okkur í stellingar og ræða spaklega um þessa pólitík? Hún er ómerkileg og yfirleitt stunduð af ómerkilegu fólki. Keisarinn er alltaf að reyna að sýna okkur nýju fötin sín en yfirleitt í gömlu görmunum sínum eða þá fatalaus. Alltaf er verið að segja okkur að hlutirnir séu ekki eins og þeir sýnast vera en það er bara lygi. Hlutirnir eru oftast eins og þeir koma okkur fyrir sjónir.
Þú átt að skrifa miklu meira um pólitíkina elskan mín.
Árni Gunnarsson, 30.8.2008 kl. 11:20
Ómar það var allskonar lið að troða sér upp á svið!
.

Óli var bara flottur og var án efa með flottustu innkomuna
Eigðu sömuleiðis góða helgi.
Árni - það er varla hægt að tala ekki um pólitíkina því annað hvert kvöld er meira en helmingur af fréttatímanum sem fer í það að fjalla um pólitík.
Fólkið er bara mismerkilegt, orðum það frekar þannig, ég þekki til flotta pólitíkusa, og veit um nokkrna óflotta - þekki ekki til þeirra samt.
Er eitthvað þá varið í þessi skrif mín??
Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.8.2008 kl. 17:42
Rósin mín þú ert ekki of ung til að ræða pólitík og hafa skoðanir á henni.
Það sem fólk er að meina að það fóru 5 miljónir í þessa ferð þeirra, en þau voru fimm sem fóru fyrst á kostnað ríkisins, en síðari ferðina fóru þau bara tvö.
Einhver leiðréttir mig ef ég fer með rangt mál.
farðu eftir þínu innsæi og hjarta leyfðu okkur að vera með.

Þú átt örugglega oft eftir að skipta um skoðun og það er bara allt í lagi,
ég var svoleiðis líka, en er ég var að alast upp var manni bara stjórnað það mátti ekki tala um neinn flokk nema þann bláa, að undanskildum útásetningum.
mig minnir að ég hafi verið 11 ára er ég fyrst vann fyrir flokkinn í kosningum.
Munurinn á þeim tíma og nú er sá að fólk getur haft sínar skoðanir, skipt um skoðun, og engin skiptir sér af því.
Í dag finn ég gott fólk í öllum flokkum, en því miður get ég eigi kosið það
heldur verð ég að kjósa bara einn flokk, og svei mér þá það verður erfitt næst.
Knús kveðjur Rósin mín.
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.8.2008 kl. 19:01
Það er mikið varið í skrifin þín Róslín. Það er nauðsynlegra en flest annað að fá að vita hvernig greind og hugsandi ungmenni sjá samfélagið fyrir sér. Og þó ekki síður hvernig þið viljið sjá það samfélag þróast sem þið eigið eftir að taka við og þróa fyrir næstu kynslóðir. Við þessi eldri eigum að fá að heyra það umbúðalaust frá ykkur hvaða mistök við höfum gert.
Haltu ótrauð áfram því enginn geri þær kröfur til þín að þú sért alvitur.
Árni Gunnarsson, 30.8.2008 kl. 19:20
Það er okkur íslendingum mikið stolt að Þorgerður Katrín þessi sjarmur sé bara fáanleg til að fara í tvígang fyrir okkur til peking. Ekki finnst mér skipta máli þó við skattborgarar borgi fyrir hana Áfram Ísland Áfram Þorgerður

X-D (IP-tala skráð) 30.8.2008 kl. 22:54
Sæl Rósalín
Flottur Pistill hjá þér,og ég tók líka eftir því að þú sagðir" svo líður það hjá".
Stjórnmálamenn/konur vita.... að öll umræða fellur fljótt frá, steindauð, því enginn virðist hafa þrek til að pota í vitleysuna nema í stuttan tíma.
Æji.þetta er bara svona....... er hugsanaháttur svo margra ,..þess vegna komast þeir/þær upp með það ótrúlega (stjórnmálamenn/konur ).
Haltu áfram að tjá þig.
Takk fyrir.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 30.8.2008 kl. 23:48
Flottur pistill hjá þér, þjóðin þarf á skoðunum fimmtán ára manneskju að halda!
Knús
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 31.8.2008 kl. 01:13
Takk elsku Milla fyrir þitt innlegg,
knús





Takk kærlega Árni!
Man það Hallgerður, afsaka aldrei skoðun mína..
Sömuleiðis til þín Sigga mín
Þú segir það X-D
Þetta er ótrúlegt Þórarinn hvað allt er fljótt að gleymast í samfélaginu, þó að niðurstaðan hafi aldrei verið fundin!
Takk fyrir mig.
Jóga, takk takk
Knús
Róslín A. Valdemarsdóttir, 31.8.2008 kl. 12:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.