Annasamasti dagurinn minn lengi brátt á enda!

Ég afrekaði margt í dag!

Skóladagurinn minn virtist meira fyrir hreyfingu en lærdóm - ég er að segja ykkur það!
Þið sem þekkið Hornafjörðin sjáið að þetta verður að fimmtudagsrölti Róslínar. Ég fékk reyndar far hjá mömmu í skólann, gekk þaðan yfir í Hafnarskóla og úr Hafnarskóla aftur í Heppuskóla. Gekk út á Kaffihorn, þaðan út í Nettó, í Nettó í sundlaugina og synti 26 ferðar fram og til baka að mig minnir. Gekk úr sundi í skólann, og úr skólanum í Tónskólann og þaðan út í FAS.

  1. Afrek dagsins voru þessvegna mörg, byrjaði í tíma sem heitir Hugmyndasmíði. Þar lærum við að koma með fáránlegustu hugmyndir á blað og ég veit þó ekki hvort þær verði framkvæmdar eður eigi. Þar fékk ég bæði hugmynd að ljósmynd - sem ég teiknaði upp á blað og skírði vel út og stuttmynd sem mig langar rosalega að framkvæma! Reyndar eru þetta tvær rosa góðar hugmyndir, finnst mér allavega. En þarna munum við læra um hugmyndasmíði allavega!
  2. Ég borðaði blómkálssúpu og brauð með!
  3. Ég fór í sund, eitthvað sem ég hef ekki gert í meira en ár, fór aldrei, ekki EINU sinni í 9. bekk, og þar af leiðandi ekki búin að klára það prófið....
  4. Fór í tónskólann, og var ekki að meika það, enda byrjandi!
  5. Ég fór í fyrsta tímann minn í framhaldsskóla, grunnteikningu sem við fengum að velja úr. Mikið erfiðara en ég hélt - ég þarf að fara í eitthvað sem við lærðum í 1. bekk. Að herma eftir stöfunum, freeekar erfitt!Blush
Gekk svo heim, klukkan að ganga hálf fimm. Úr einni blokkinni hljómaði mér kunnugt lag ,, Ríðum og ríðum og rekum yfir sandinn, ríðum sem fjandinn. Sláum í gandinn, þett'er stórkostleg reið. Glóð er enn í öskunni oog flatbrauðsneið í töskunni, lögg'er enn í flöskunni, við komum öskufullir heim! " og einhverjar smástelpur syngjandi með. Frekar fyndið!

Þegar heim var komið bauðst mér ekkert annað en að drífa mig á æfingu, og þegar heim var komið var haldið til lærdóms! Grunnteikning, ekki það léttasta í heimi!

Núna ætla ég að græja mig fyrir morgundaginn og fara að sofa einu sinni á Kristilegum tíma!Heart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Sigga, það eru alveg heilir 4!
Reyndar uppskipt, en það þarf ekki að fylgja. 1-3. bekkur heldur sig útí Nesjahverfi, þar er Nesjaskóli hýstur undir þau. 4-7. bekkur er í Hafnarskóla, sem er bara rétt hjá Heppuskóla, en samt smá spölur. Heppuskóli er hjá íþróttahúsinu og þar eru 8-10. bekkur. Undir einu nafni og nokkrum skólastjórum heitir þetta Grunnskóli Hornafjarðar, með 3 byggingum.
Svo er það framhaldsskólinn, Framhaldsskóli Austur-Skaftafellssýslu - FAS. Svo í sömu byggingu er Háskólasetrið!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 28.8.2008 kl. 22:05

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég gleymdi að svara þér alveg, heyrðu við erum um 2000 manns hérna að ég held!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 28.8.2008 kl. 22:06

3 Smámynd: Ómar Ingi

200 mann ekki satt

Ómar Ingi, 28.8.2008 kl. 22:22

4 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég er ekki viss um það Sigga, ég veit bara alls ekki.

Ómar, ég held að einhver þurfi að fara að sofa núna sko...

Allavega er ég farin að sofa! Góða nótt

Róslín A. Valdemarsdóttir, 28.8.2008 kl. 22:30

5 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 29.8.2008 kl. 20:18

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Æ, Rósin mín illa farið með þig
Knús kveðjur
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.8.2008 kl. 20:23

7 identicon

Samt ekki mjög annasamur dagur, þú hafðir jú tíma til að blogga ekki satt?

Eggert Ólafur Sigurðsson (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 21:51

8 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Eggert, ég var að blogga bara rétt áður en ég fór að sofa!....

Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.8.2008 kl. 00:03

9 identicon

Var bara að spauga, þú ert alveg þrældugleg

Eggert Ólafur Sigurðsson (IP-tala skráð) 30.8.2008 kl. 06:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband