Ég lif'í voninni....

... að ég geispi ekki golunni?

Nei ég man ekki textann, annars lif ég heldur í blekkingu frekar en í voninni - eitthvað vitlaust og snúið, ég veit. En ég með mína fyndni og ómótstæðulega blogg er greinilega ekki jafn fyndin og ómótstæðuleg og ég held.
Ég er meira svona í " hina " áttina held ég.

Samkvæmt skoðunum þessa bloggs hér á síðu Karls Tómassonar, þá er ég allavega ekki búin að fá eitt atkvæði... eða jú, eitt ógilt að vísu, enda kýs maður ekki sjálfan sig í svona lýðræðisstefnu...pakki..GetLost

Svo er leikferill minn senn á enda greinilega, af fólki að dæma er ég svo hrikalega vitlaus að ég fæ bara nokkur komment á þennan fyndna leik minn af 150 áhorfumCrying ..

Nú segi ég stopp við þessari vitleysu og fer í verkfall......

Ég vil ekki vera vitlaus, ég vil ekki vera vitlaus, ég vil ekki vera vitlaus........Angry

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Snúllan mín þú ert yndislegust!!

Hrein og bein og flottust!

kv.

EDS

stígvélakötturinn (IP-tala skráð) 7.8.2008 kl. 00:22

2 Smámynd: Anna Guðný

Já Róslín mín, við verðum bara að taka því að vera ekki tilnefndar. Ég vissi ekki einu sinni af þessu fyrr en ég sá það hér. En við verðum bara að trúa því að við verðum orðnar nógu þekktar eftir ár að við sjáum okkar nöfn á þessu lista.

Hafðu það gott dúllan mín.

Anna Guðný , 7.8.2008 kl. 00:42

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

til þín Sigga!

Takk kærlega fyrir það EDS, þú gerðir mig sjúklega forvitna því mér dettur engann í hug!

Anna Guðný mín, annað hvort erum það við sem lifum í blekkingu - eða þau.....
Hafðu það sömuleiðis gott.

Róslín A. Valdemarsdóttir, 7.8.2008 kl. 00:49

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Von er allt sem þarf Róslín mín 

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 7.8.2008 kl. 13:22

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Svo er líka með eindæmum yndislegt þegar fólk bregst svona við, þú ert æði Jóga mín Takk kærlega fyrir!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 7.8.2008 kl. 15:01

6 Smámynd: Anna Guðný

!!!!!! Þú ert komin á listann. Ég bíð bara rólega þangað til á næsta ári.

Anna Guðný , 7.8.2008 kl. 15:12

7 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Anna Guðný, ef ég skildi þetta rétt, þá fara 10 mest kosnu á listann, svo ég á séns

Róslín A. Valdemarsdóttir, 7.8.2008 kl. 15:19

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Róslin, ég sá að þú ert komin með atkvæði, svo þú getur glaðst í dag dúllan mín.  Það er best að lifa alltaf í vonínni, þá er maður sko ekkert vonlaus.   Heart Beat  Heart Beat Heart Beat 

Ásdís Sigurðardóttir, 7.8.2008 kl. 17:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband