24.7.2008 | 16:36
Að horfast í augu við óttann!
Ég verð að viðurkenna það fúslega að ég er sjúklega hrædd við tannlækna. Í dag fór ég í skoðun, heilt ár síðan ég fór síðast að ég held. Í síðasta tíma sem var 5. desember skrópaði ég eins og stóð á miðanum, mamma var látin vita. Ég komst upp með það í það skiptið, en núna þurfti ég að hjóla út á tannlæknastofu.
Ég hjólaði og gekk rakleiðis inn í biðstofuna. Óheppilega vildi til að ég gekk inn á skónum, en maður fer nú úr skónum í forstofunni eins og allir vita. Ég settist niður í fyrsta stólinn sem ég sá, tók eftir stuttu seinna að þarna væru skórnir, enn á löppunum á mér. en forstofan innan eins meters fjarlægð svo ég dreif mig úr skónum á mettíma og kastaði þeim fram.
Þetta var bara ein af þessum skoðunum, sem ég þoli hvort sem er ekki. Fékk að vita það að ég væri með tvær smáskemmdir í jöxlunum einhverstaðar tveimur. Sem hægt væri að halda aftur - sem betur fer!
Loftljósið er orðið betra heldur en ég mundi eftir, ég þarf ekki að pýra augun lengur.
En ég verð að játa það, að þetta var í annað skipti á minni lífsævi sem ég fer til tannlæknis ein og sjálf, og þarf ekki einhvern sem situr yfir mér - hvorki mamma, pabbi, systkini mín, né einhver vinur!
Er nefnilega óttalegt smábarn hvað það varðar, þurfti helst alltaf að hafa einhvern með mér til tannlæknis, til læknis og ekki má gleyma klippingu!
Reyndar er ég ekkert hrædd við fólk sem klippir hár, en ég er sjúklega hrædd við tannlækna og ekkert síður hrædd við lækna. Því að þeir eru þeir sem segja manni ef það er eitthvað að tönnum eða líkama manns. - Ég tala nú ekki um þegar við þurfum að fara til skólahjúkkunnar og fá að heyra að maður er í "yfirþyngd" eða ætti að passa sig....
Mér líður bara engan vegin vel við að heyra það, ég er bara eins og ég er og HANANÚ.
Í gær var haldið í hina árlegu vinnuskólaútilegu. Veðrið var gott fram að kl. 4, þá fór að rigna og rigndi fram til morguns.
Ég eyddi þessum degi með Rafni mínum, fórum í fótbolta og ég í kýló. Eins og fólk veit vinn ég ekki beint fyrir vinnuskólann en fyrir bæinn þrátt fyrir það, og má þess vegna fara í bæjarvinnuna.
Svo ég þekki bara einn flokkstjórann og einn sem er yfir öllum flokkstjórunum, svo að í fótbolta fannst sumum töggur vera í stelpunni. Reyndar var ég bara ill á móti, enda læt ég ekki stráka vaða yfir mig og ýti bara harkalega á móti...
Skoraði meira að segja eitt mark.....
Ég hljóp eins og vitleysingur á eftir boltanum og með boltann, svo að ég varð bara að gera eitt sem ég hef aldrei í lífi mínu gert áður né áætlað mér að gera. Ég gat ekki lyktað eins og skunkur svo að....
Ég stökk út í hyl, reyndar náði hann mér bara upp yfir brjóst, en samt. Ég stökk út í hyl og varð þar af leiðandi rennandi blaut!
En ég sem er ein mesta kuldaskræfa, stökk út í ískalt vatn, enda var ég komin í þá stöðu að detta fram á einhverja steina, eða stökkva út í hylinn!
Auðvitað var ég með föt til skiptanna, annars hefði þetta nú farið illa..
Það var líka KUBB mót, og það vildi svo heppilega til, að þegar kosið var í lið, vorum við Rafn kosin í sama liðið. Sem betur fer má segja, enda unnum við líka kubbmótið, ekkert annað hægt..
Jæja, mig langaði bara til að kveðja ykkur bloggvini og aðra lesendur og bið ég kærlega að heilsa ykkur. Þið megið ekki gleyma mér í þessa næstum 10 daga sem ég er í burtu, ég er að fara til Álftaness á morgun og næstu nótt höldum við bæði kvenna og karlalið 3. flokka Sindra til Osló á Norwaycup.
En, ég hugsa um einn dag í einu, og í dag hugsa ég um morgundaginn, fyrir leikinn á móti Álftanesi, áhugasamir mega mæta á Bessastaðavöll og á leikurinn að hefjast kl. 17.00 ANNAÐKVÖLD ( föstudagskvöld!)
RISA knús á ykkur Og hafið það sem langbest
Athugasemdir
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 24.7.2008 kl. 17:51
Rósin mín ég er svo hrædd við þá að það er óhugnanlegt, Dóra mín fór til tannsa í vikunni og ég þoldi ekki einu sinni lyktina út úr henni er heim hún kom, Uss við erum nú meiru kjúklingarnir.
Bless elsku Rósin mín, hafðu það æðislega gott og skemmtu þér vel,
Hvernig dettur þér í hug að ég gleymi þér skjóðan mín.
Risa risa knús
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.7.2008 kl. 19:45
Þú ert fín eins og þú ert ekki láta aðra segja þér neitt annað.... Svo vona ég að leikurinn á morg vinnist.
Góða ferð til Noregs, farðu varlega og góða skemmtun
Já ég er rosalega hrædd við tannlækna....
Kv. Ragga Rabbamamma
Ragga (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 20:15
Æi, ég er á kvöldvakt annað kvöld, annars hefði ég sennilega bara mætt á völlinn
Það eru mörg ár og margir dagar síðan ég var í stuðningsliði einhvers fótboltaliðs
Gangi ykkur vel í leiknum á morgun og góða ferð og skemmtun í Norge
Sigrún Jónsdóttir, 24.7.2008 kl. 20:30
Mér finnst ferlega leiðinlegt að fara til tannsa, er ekki beint hrædd .. en bið alltaf um að það sé deyft eins mikið og hægt er. Aðferðin við að sigrast á ótta, er auðvitað eins og þú segir; að horfast í augu við hann.
Góða nótt ,,frænka" ... fer að líða að brottför!!!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 24.7.2008 kl. 21:23
Knús á þig Linda



...

Það er ekki kjúklingur að vera hrædd við tannlækna, en að vera hræddur við gúrkur. Það er að vera kjúklingur - sá úr þætti sem kona var nefnilega hrædd við gúrku!
Takk Milla mín,
risaknús til baka
Takk fyrir það Ragga mín.
Erum við það ekki öll, a.m.k. innst við beinið?
Heyrðu Sigrún, leikurinn er kl. 17 ef það breytir einhverju, ég hef bara verið að ruglast held ég. Er viss um að hann sé kl. 17. Það stendur á ksi.is ...
Takktakk
Jóga, ég einmitt þoooli ekki deyfisprautuna. Og alls ekki tilfinninguna eftir að það er búið að gera við
Góða nótt frænka! Ég hlakka til að sjá þig vonandi, du har min gsm er det ikke?
Róslín A. Valdemarsdóttir, 24.7.2008 kl. 21:41
Er með gsm-inn þinn, ég óttast að vísu smá að við verðum of sein til að ná í skottið á þér. En sjáum hvað setur.
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 24.7.2008 kl. 22:00
Þið verðið að vera snögg Jóga, það þýðir ekkert annað
.....
Róslín A. Valdemarsdóttir, 24.7.2008 kl. 22:03
Ekki séns að ég gleymi þér krúslan mín
Góða ferð til Noregs
Guðrún Hauksdóttir, 25.7.2008 kl. 11:08
Ég líka hrædd við tansa en góða ferð dúlla.
Kristín Katla Árnadóttir, 25.7.2008 kl. 17:50
Ég var einu sinni hrædd við tansa en ekki lengur. 4 tímar í stólnum og 8 sinnum deyfð, tvær tennur fjarlægðar af röngum stað jakkk eftir það er ekkert mál að hitta tansa og ein og ein viðgerð bara ekkert mál
Endajaxlarnir voru svo teknir 3 í einu fyrir nokkrum árum ég vildi láta taka alla fjóra en það mátti víst ekki því neðri voru svo skakkir og þurfti að skera og brjóta þá til að ná þeim þannig annar var bara tekin og ég var eins og fílamaðurinn í framan múhahahaha en það var allt í góðu ég borðaði bara 1 líter af sheik á hverjum degi í nokkra daga á eftir
tannlæknirirnn minn er reyndar svo góður og skiptir það líka höfuð máli. Læknar eru misgóðir eins og þeir eru margir.
Gangi þér vel í Noregi frænka
Helgan, 1.8.2008 kl. 06:56
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 2.8.2008 kl. 20:55
Góða skemmtun í noregi og gangi ykkur vel.
Magnús Paul Korntop, 2.8.2008 kl. 21:42
Eg er komin til landsins, vorum ad koma fra leifsstöd, erum a leidinni heim i sindrarutunni:)
knus til ykkar, eg kemst i tolvu i kvold!
Róslín! (IP-tala skráð) 3.8.2008 kl. 16:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.