22.7.2008 | 22:31
Vitleysingjafærsla....
Í dag var ég látin vakta Byggðasafnið, m.a. mína eigin sýningu í tvo klukkutíma. Á þessum tveimur klukkutímum komu tveir menn, annar eldri kom hálf tíu og hinn yngri hálf ellefu. Báðir mennirnir báru til mín kveðju, báðir með þetta sama ,, Hæ ". Þeir áttu það líka sameiginlegt að vera erlendir - og örugglega hingað til lands komnir til að skoða.
Þeir gengu báðir rakleiðis að afgreiðsluborðinu og spurðu ,, há möts? ", ég svaraði þeim um hæl með einu ómerkilegu óskýru orði ,, noþþing ". Ég held að báðir hafi verið í vafa, enda svöruðu þeir mér strax ,, noþþEing? ", eins og einhverjar þvílíkar hermikrákur sem vildu hafa þetta rétt sagt..
Við fórum í Barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar út á Melatanga í fjársjóðsleit. Auðvitað gekk sú ferð ekki slysalaust fyrir sig - með skotturnar Ylfu og Salóme nálægt. Ég nefnilega fékk sár á hnéð, ekki þægilegt það, en ég lifi þetta alveg af... vonandi.
Ég var með vinkonum mínum Ylfu og Arney í hóp að leita að fjársjóðnum, og auðvitað var ekki sleppt mér, nema rétt til að taka myndir - sem allar heppnuðust misjafnlega illa. Þessar þrjár stelpur eru auðvitað bestu vinkonur mínar eins og allir vita, þó ég reyndi að segja þeim að ég væri besta vinkona sjálfs mín, fékk að heyra að það væri ekki satt....
Bað Björgu um að taka mynd af okkur þremur vinkonunum, Ylfu, mér og Arney, svo ég vil endilega sýna ykkur hvað við erum góðar vinkonur!

Svona var hangið á mér mestalla ferðina - eða í rétt rúmlega 4 klukkutíma, en það er bara ágætt svona eftir á
..

Þær eru algjörar krúttlur....
Og bara til að bæta upp á myndabloggið læt ég fylgja hér skemmtilega frásögn af okkur mæðgum.
Hundurinn neitar alltaf að fara í búrið sem keypt var handa honum, enda að verða 5 ára greyið og ekki vanur því að vera í búri. Ég eins og alltaf varð bara að prófa búrið ( prófaði einmitt "rúmið" hans á sínum tíma..), Sædís systir hafði víst verið að reyna að troða sér þarna inn að sögn mömmu. En hætti við þegar hún sá að rassinn á henni gæti fest.
Ég eins og algjör villingur rauk inn í búrið þrátt fyrir að hafa fundið að rassinn á mér var næstum nógu stór til að fylla upp í þennan litla inngang sem er á þessu blessaða búri. Ég lá þarna inni og fann það út að það væri alveg hægt ef þörf myndi krefja, að sofa í rimlalöguðu búrinu.
Auðvitað verð ég að láta myndina fylgja;

Mamma einmitt bað mig að vera grimmileg á svipinn svo þar hafið þið það... sést ekki einu sinni í andlitið mitt fyrir rimlum, en allt í lagi!
Áfram að sögunni, þá auðvitað þurfti ég að vera svona vitlaus og fara inn í búrið, og átti nógu erfitt með það. En svo kom að því að koma sér út, og nei. Út vildi rassinn ekki!!!
..
Svo þá tók mamma upp myndavélina, sem hún var að læra á þegar hún tók myndina hér fyrir ofan og sagðist verða að taka mynd af þessu, svo ég læt hana fylgja með líka....

Jább, rassin fastur .... og ég brosandi!!!
Hel. hundurinn tók hraða ferð inn í búrið og út aftur, stökk svo upp á það með tveimur löppum þegar mamma var að reyna að koma honum inní.....
Vitleysingurinn...
Núna ætla ég að undirbúa mig fyrir útilegu, farið verður kl. 9 svo ég hef engan tíma til að græja mig í fyrramálið!
Knús á ykkkkuuur

Athugasemdir
Æðislegar myndir og yndisleg færsla hjá þér Róslín mín
Góða nóttina Róslín mín

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.7.2008 kl. 00:50
Held að þú sért bet geymd í búri Róslín bara aðeins stærra en þessu.
Skattborgari, 23.7.2008 kl. 00:56
Já tölvan hennar þyrfti nú allavega að komast inn líka .. hún er nú límd við hana ..
Sædís sys (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 15:31
Hahaha ég þarf að fá mér 4 svona búr!!!!!! Hrikalega sniðugt...
Have a nice time camping baby....
Ragga (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 17:05
Hahaha
Þú ert ótrúleg Róslín mín,.
Annars flottar myndir af flottri stelpu
Guðrún Hauksdóttir, 23.7.2008 kl. 20:46
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 23.7.2008 kl. 23:28
Ég er komin heim - heil!

Ekki þægilegt að vera í svona litlu búri!!

Takk fyrir það Linda mín
Skattborgari...........
Já og tölvan Sædís, og kannski nokkrar kexkökur og vatnsbrúsi!
Ragga hafðu þau það misstór líka...
Góð, ég veit það nú ekki Sigga.....
Takk Guðrún mín
Vitleysingur, ég? Ég vitleysingur, Jóga???.... Neeeeeihhh aaaldrei
Róslín A. Valdemarsdóttir, 24.7.2008 kl. 12:12
Neei..nei, skemmtilegar myndir af þér, myndi aldrei kalla alvöru vitleysing vitleysing, hann kynni ekki að taka því.
.. Vitleysingur er gæluyrði hjá mér..
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 24.7.2008 kl. 13:04
Hahahaha, þú ert mögnuð Jóga mín!
Þótt ég skildi ekki eitt orð ....
Róslín A. Valdemarsdóttir, 24.7.2008 kl. 13:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.