21.7.2008 | 21:40
Só jú þeink jú ken dens!
End spík enGlissj....
Mér finnst þessir þættir ekki skemmtilegir, nema að fólk er alveg glatað, svona eins og ef ég væri að reyna að dansa. Eða þá að það detti á andlitið - þá hlæ ég bara í kjánaskapnum í þeim að reyna að geta eitthvað sem þau geta ekki betur en þetta
...
Ég lenti í því um daginn að afgreiða jú einhvern enskumælandi mann, ég held ég hafi sagt þessa sögu hérna en finn hana ekki svo ég segi hana aftur, eða í fyrsta skiptið.
Ég er svo vel gefin og gáfuð manneskja að ég var látin, eins vel dressuð og ég var, í afgreiðsluna á bókasafninu í kannski 3 mínútur. Það kom já, til mín enskumælandi maður og bað um að fá að ljósrita úr einni bók. Ég skildi allt sem hann sagði - panikkaði rosalega og sagði hratt og hvíslandi ,, kan jú veit a sekkont? ".
Trítlaði hálfhlæjandi að mér fyrir þessa vitleysu og náði í gáfulegri starfsmann.
Samstarfsfólkinu fannst voða sniðugt að hafa mig þarna til sýnis, enda ég rosa vel uppklædd - klæddi mig á mettíma, hafði aldrei á ævinni verið svona hrædd um að systir mín myndi rota mig eða eitthvað!
Aftur á móti var ég látin sitja yfir bókasafninu aftur í dag, ekki jafn sæt og ég var á föstudaginn, alls ekki. Bara engan veginn. Í hallærislegri, grárri, risastórri hettupeysu með ótrúlega misskildu merki Grunnskóla Hornafjarðar með nafnið Róslín A. vinstra megin. Reyndi að bjarga andlitinu mínu í gær, tók það algjörlega í gegn, og það misheppnaðist svona allhrikalega að bólurnar komu bara enn betur fram....
En, en, en! Ekki eins og það hafi verið eitthvað slæmt, þar sem ég er óskaplega sæt inni í mér ef ég er með ljótuna. Reyndar ógeðslega stríðin þegar ég er með ljótuna og reyndar bara alltaf, enda bara gaman af því.
Ég skilaði inn fullt, fullt af allskonar bókum og lánaði út líka. Tók frá bók ( og fann hana algjörlega sjálf ) fyrir mann og skráði strák í Fjársjóðsleitina á Melatanga á morgun.. stolt hélt ég svo í hina vinnuna mína þennan daginn, að hjálpa til að pakka niður listaverkum! Reyndar fann ég bara mynd af myndinni á blaði, annað ekki
....
Annars er að færast yfir mig einhver spenningur, skanna ekki inn myndir á morgun svo ég viti, fjársjóðsleit með krökkunum, alltaf gaman í barnastarfinu sko, á miðvikudaginn fer ég í útilegu með vinnuskólanum og verð með Rafni, fimmtudaginn fer ég til tannlæknis sem ég þooooori engan veginn, föstudaginn verður keyrt í bæinn og keppt á móti Álftanesi og út á laugardaginn og verð þar með 3. flokkum Sindra í fótbolta í 8-9. daga
. Það má segja að ég sé útbókuð!
Eigið góða daga, ég fer núna að fara upp í rúm ( loksins fer ég snemma að sofa!!) og horfi á INGULÓ, þar fer Sólveig Arnarsdóttir með aðalhlutverkið og má segja að ég hlakki nú svolti til að sjá hvernig myndin er, hef aldrei séð hana!
Ætla að gera það að föstum liðum að horfa á íslenska mynd með reglulegu millibili, þær eru til margar úti á bókasafni
!!
Knús á ykkur

Athugasemdir
Hvað segiru Róslín! .. Ertu ekki góður dansari ???? .. Mér finnst nú svolítið gaman að þessum dansþáttum. Mér sýnist þú hafa bjargað þér vel á bókasafninu.
Knús ..
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 21.7.2008 kl. 22:01
Hello beibí... long time no sí. Ég kemst svo lítið í tölvu þessa dagana, að ég er komin með fráhvarfseinkenni frá tölvunni. Er að reyna að kíkja á ykkur bloggvini mína í skömmtun.
Ég er alveg viss um að þú ert að brillera þarna á bókasafninu. Efast sko ekkert um það.
Skemmtu þér vel yfir íslensku myndinni, hef reyndar ekki trú á henni þar sem að mér finnst hún Sólveig Arnarsdóttir leiðinleg leikkona.
En hafðu það gott sæta og sofðu vel.
Linda litla, 21.7.2008 kl. 23:43
Ég kann ekki að sofna snemma - það er ill og sönn staðreynd!

Jóhanna danshæfileikarnir koma með aldrinum, ég er að segja þér það!
Knús
Ég reyni mitt besta að vera dugleg Sigga, ég held ég sé bara önnum kafin frekar en dugleg!
Ég var alveg eins og ég veit ekki hvað á bókasafninu Linda, hafði bara fylgst með fólkinu gera þetta, annað ekki.
En ég er ekki sammála þér, Sólveig Arnarsdóttir er góð leikkona og ekki orð um það meir - hún er ein af mínum uppáhalds og mínum fyrirmyndum í leiklist.....
Fólk er jafn mismunandi og það er margt.....
Róslín A. Valdemarsdóttir, 21.7.2008 kl. 23:50
Innlitskvitt og kveðjur.
Magnús Paul Korntop, 22.7.2008 kl. 00:47
Veistu elskan mín að ég á dóttur á sama aldri og þú og hún er rauðhærð með miklar krullur og svona lifandi eins og þú og svo er hún með þennan svaka skemmtilegan húmor,henni finnst fátt skemmtilegra en að teikna og hún teiknar svo sannarlega flottar myndir og mér finnst svo gaman að fylgjast með ykkur báðar því þið eruð á sama aldri
en annars elskan mín,
Góða nóttina elsku Róslín mín og megi allar góðar vættir yfir þér vaka og vernda elskan mín

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 22.7.2008 kl. 01:17
Þú veist að það er komið nýtt Bermudalag? Eða ölluheldur ný útgáfa af lagi af plötunni Nýr Dagur. Þetta lag þarfnast kynningar og innhringingar á útvarpsstöðvarnar. :-)
Kveðja,
Dax
Bermuda (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 04:16
Takk fyrir innlitið Magnús!

Takkkk kærlega fyrir það Linda Linnet mín
Nei Dax, ég vissi það ekki! Ég verð að heyra það!
Góðan daginn Hallgerður mín
Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.7.2008 kl. 09:24
Ég sem kom á bókasafnið í gær, en ekki sá ég þig, reyndar stóð ég allt í einu í myrkri, það var verið að loka og konan vissi ekki af mér, hefði nú ekkert á móti því að vera læst inni á bókasafni heila nótt
Svanhildur Karlsdóttir, 22.7.2008 kl. 09:51
Þá var ég áreiðanlega farin Svanhlidur, ég fer yfirleitt 10 mínútur í eða korter í 4

Núna er ég reyndar á Byggðasafninu, áttu ekki eftir að kíkja á sýninguna mína, sit hérna held ég í klukkutíma í viðbót
Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.7.2008 kl. 09:53
Þú ert bara menningarleg Róslín mín, bókasafnið og byggðasafnið! .. þetta lofar góðu.
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 22.7.2008 kl. 10:19
Ég er að sitja á eldgömlu safni og segja ; Noþþing þegar fólk spyr hvað kostar inn... og ekki nóg með það, þá sit ég yfir á minni eigin sýningu í leiðinni - geri aðrir betur
!
Menningarleg, ekkert betra en það!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.7.2008 kl. 10:34
Þú hefur verið glæsilegur bókasafnsvörður og örugglega skemmtilegri en magir,
en maður getur nú panikkað er maður á að leysa eitthvað sem ekki hefur komið upp áður.
Ég horfði heldur aldrei á þáttinn: ,, So jú þeink jú ken dens"
en hvað horfir þú á í afþreyingarefni?.
Knús knús
MIlla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 22.7.2008 kl. 12:13
Finnst voða gaman að horfa á So jú þeink jú ken dens
En það er alveg svakalega mikið að gera hjá þér sem er gott mál leiðist ekki á meðan
Mikið verður gaman fyrir ykkur að fara til útlanda
hafðu það gott sæta skvís
Brynja skordal, 22.7.2008 kl. 14:03
Gleymdi alveg hvernig fannst þér svo myndin Ingaló? Mér finnst hún góð á hana á spólu og Sólveig brillerar í þessari mynd frábær leikona
Brynja skordal, 22.7.2008 kl. 14:58
Hæ Róslín mín, langt síðan síðast.
Hahaha sé þig alveg fyrir mér í panikki þarna
Hlakka til að sjá þig þegar ég kem heim :)
knúús :)
Eva kristín (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 16:36
Mér Finns þeir ágætir þessir þættir knús duglega stúlka.
Kristín Katla Árnadóttir, 22.7.2008 kl. 19:31
ég myndi nú segja að það væri betra að segja þetta hratt og hvíslandi en að segja þetta hægt og hátt
Rafn (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 22:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.