18.7.2008 | 18:07
Förum aftur í tímann - 20.08.93
( Ath. ég á ekki afmæli!!!)
Í Morgunblaðinu á þessum merka degi fyrir nær 15 árum, voru að koma mjög líkar fréttir upp.
Á forsíðunni stendur með stórum stöfum ;
Og með minni stöfum neðarlega til vinstri;
Það sem ég undra mig mest á við þetta er hvað alþjóð er lengi að þroskast, alltaf sjáum við sömu fréttirnar - og þetta var fyrir fimmtán árum sjáið þið til!
Mér finnst ótrúlegt að engin innlend frétt hafi leynst á forsíðunni, en sú sem var næst heimalandi okkar var að bankarnir sameinuðust í Þórshöfn... var ekkert merkilegt á Íslandi að gerast á þessum degi???
Jú reyndar var eitt merkilegt að gerast, það bættust við mannverur í heiminn og þar á meðal þessi unga dama hér á blogginu - sem er að breytast í allsherjar frekju. Mjög gott efni í stjórnmála manneskju en stefnir samt á leiklistina... hvar endar þetta allt saman!
Ég leit á stjörnuspána mína þennan daginn og hún kom mér nú frekar mikið til að hlæja heldur en annað, hún hljómaði svona 20. ágúst 1993;
Eins og heimurinn er nú skrítinn..... knús inn í helgina
Minni ykkur á ljósmyndasöluna mína
Í Morgunblaðinu á þessum merka degi fyrir nær 15 árum, voru að koma mjög líkar fréttir upp.
Á forsíðunni stendur með stórum stöfum ;
Myrti rússneskur háseti áhöfnina?
Vestræn ríki vilja sjá Rússland falla
Írakar mótmæla árás á skotpall
Óróleiki í Norður-Kóreu
Og með minni stöfum neðarlega til vinstri;
Bankarnir sameinast
Það sem ég undra mig mest á við þetta er hvað alþjóð er lengi að þroskast, alltaf sjáum við sömu fréttirnar - og þetta var fyrir fimmtán árum sjáið þið til!
Mér finnst ótrúlegt að engin innlend frétt hafi leynst á forsíðunni, en sú sem var næst heimalandi okkar var að bankarnir sameinuðust í Þórshöfn... var ekkert merkilegt á Íslandi að gerast á þessum degi???

Jú reyndar var eitt merkilegt að gerast, það bættust við mannverur í heiminn og þar á meðal þessi unga dama hér á blogginu - sem er að breytast í allsherjar frekju. Mjög gott efni í stjórnmála manneskju en stefnir samt á leiklistina... hvar endar þetta allt saman!
Ég leit á stjörnuspána mína þennan daginn og hún kom mér nú frekar mikið til að hlæja heldur en annað, hún hljómaði svona 20. ágúst 1993;
Truflanir draga úr framkvæmdum í dag. Láttu ekki mikilvæg atriði framhjá þér fara. Þér hættir til að eyða of miklu.
Eins og heimurinn er nú skrítinn..... knús inn í helgina

Minni ykkur á ljósmyndasöluna mína

Athugasemdir
Til hamingju með afmælið Róslín
. Haðu það gott um helgina og skemmtu þér vel.
Skattborgari, 18.7.2008 kl. 19:31
Ég á afmæli eftir mánuð og tvo daga Skattborgari - 20. ágúst sjáðu til, en takk samt
....
Og takk sömuleiðis.
Róslín A. Valdemarsdóttir, 18.7.2008 kl. 19:33
Eigðu góða helgi vina
Svanhildur Karlsdóttir, 18.7.2008 kl. 20:34
Knús sömuleiðis sæta
njóttu helgarinnar :)
Guðrún Hauksdóttir, 18.7.2008 kl. 22:44
Sæl og til hamingju með daginn. Í marga áratugi voru aldrei innlendar fréttir á forsíðu Morgunblaðsins, nema um stórviðburði væri að ræða eins og t.d. eldgos eða stórslys. Það eru ekki mörg ár síðan það var ákveðið að hafa innlendar fréttir á forsíðu í bland við erlendar. Það er einmitt athyglisvert að það eru nánast alltaf sömu "fréttirnar" aftur og aftur. Það er hægt að fara ansi langt aftur og sjá í rauninni alltaf það sama.
Þóra Guðmundsdóttir, 18.7.2008 kl. 23:39
Takk sömuleiðis Svanhildur



Sigga, mér finnst ótrúlega leiðinlegt að leiðrétta þig, en ég á afmæli eftir tvo/einn dag og mánuð, en aftur á móti á systir mín afmæli á sunnudaginn
Sömuleiðis Guðrún
Nei ég einmitt Þóra, ég grúskaði í nokkrum gömlum blöðum hérna á netinu, ótrúlegt, frekar talað um Færeyjar heldur en Ísland á forsíðunni!!!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 19.7.2008 kl. 00:09
Takk fyrir það Anna!
Ég ætti að fá nóbelsverðlaun fyrir að vera misskilin manneskja.....
Róslín A. Valdemarsdóttir, 19.7.2008 kl. 00:25
Til hamingju með daginn.
Þú ert svo skemmtileg.
Halla Rut , 19.7.2008 kl. 00:40
Þú ert þá greinilega merk kona Anna!


Úff, ég veit ekki hvernig ég verð úti frá heimilinu í 10. daga, reyndar verður Rafn líka úti svo þetta er í lagi!
En mikið var það gott að þú keyptir miða heim, maður saknar alltaf landsins síns, þó svo að maður reyni að ljúga að sjálfum sér!
En annars veit ég ekki hvaða mynd þetta er, skammast mín....
hahaha, Halla takk
Róslín A. Valdemarsdóttir, 19.7.2008 kl. 00:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.