Sala á ljósmyndunum mínum í fullum gangi ! / Myndir frá Lúruveiðum!

Ég gerðist engin ljóska í dag, núna fáið þið að sjá myndir af mínu skapiLoL , bókstaflega meira að segja!

Lúruveiðar 2008 008

Eins og dæma má á svipnum á mér þarna þá var ég rennandi blaut, en þarna var þetta bara mun skárra en í seinni ferðinni!



Hér er ég að deila mínu yndislega skapi með Lúrunni Guffa, smellti á hann koss og úff hvað hann var klístraður greyið!
Við urðum hinir bestu vinir, litlu stelpunum til mikillar óhamingju - algjörar pjattrófur, hefði átt að senda mér myndina af þeim líka þegar þær voru að fylgjast með mér halda á Lúrunni - eða Lúðunni eins og þær kölluðu fiskinnLoL
Sjáið ermarnar á peysunni minni, rennandi blaut!!!!

Lúruveiðar 2008 052

Ég vona að ég verði ekki kærð fyrir misnotkun á fiski, en ég small einum kossi á greyið og viti menn hann breyttist ekki í fallegan prins. Enda ekki froskur - svo hef ég líka minn fallega prins fyrir og það er nú allt of erfitt að toppa hannInLove Heart



Sala á ljósmyndunum mínum er hafin, áhugasamir geta gengið, hjólað, flogið, keyrt eða jafnvel skriðið á Byggðasafnið ( Gömlubúð) og fjárfest sér í einni mynd, stærðin er A4 og ég sel aðeins 3 stk. af hverri mynd. Þegar er búið að panta sér mynd, uppáhalds myndina mínaWink....

KnÚsAr á ykkur
Heart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Rósin mín kystir þú lúruna, þú sem borðar bara Humar.
Flottar myndir. Vonandi selur þú sem mest af myndunum þínum.
Knús á þig
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.7.2008 kl. 19:39

2 Smámynd: Skattborgari

Tekurðu Mastecard? sendirðu í pósti það myndi kosta mig um það bil 10.000kr að koma til Hornafjarðar og taka mig heilan dag.

Skattborgari, 17.7.2008 kl. 20:39

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég borðaði ekki Lúruna, og veit vel hversvegna ég geri það ekki, grey fiskurinn er hrikalega ljótur!
Knús

Hallgerður mér datt það í hug, eða á ryksugunni!
En Lúra er fiskur sem finnst á botni í grunnum sjó, og ótrúlega ljótur fiskur líka!
Lúra heitir líka Rauð- eitthvað, man ekki hvað. gat ekki gúglað þetta, allir að tala um að taka sér lúr...

Ester þær eru að finna hér ; http://www.flickr.com/photos/roslinv/sets/72157606034080490/

Ég er samt ekki að selja eina mynd af ungri stúlku, Díönu, ekki af mér og ekki Vorhátíðarmyndirnar, svo að það eru 15 myndir í boði! Kosta 5000 eða minna!

Skattborgari það er alveg eins hægt að leggja bara inn á mig, en það gæti sko verið vel þess virði að koma hingað einn dag..

Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.7.2008 kl. 20:46

4 Smámynd: Skattborgari

Ester Ég er vel yfir kjörþyng þannig að ég myndi enda á spítala ef ég myndi reyna að ganga eða hjóla alla leiðina. Ég myndi kannski keyra 100km fram og til baka en kostnaðurinn við að keyra fram og til baka frá reykjavík er of mikill. Myndi fara á mótorhjólinu ef það væri ekki tjónað.

Kveðja Skattborgari 

Skattborgari, 17.7.2008 kl. 20:46

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Einmitt Skattborgari, hlustaðu á Ester!
Þú mátt líka láta þig fjúka hingað, held að það virki ef þú ert með sterka regnhlíf og vind sem blæs austur!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.7.2008 kl. 20:47

6 Smámynd: Skattborgari

Er verið að reyna að drepa mig? Ég er bara 150kg þannig að ég gæti ekki gengið meira en 15km. Gæti notað regbhlíf Róslín en þarf bara að líftryggja mig áður.

Skattborgari, 17.7.2008 kl. 20:54

7 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Skattborgari, hvernig vissirðu?
Já endilega lífryggðu þig og svo máttu reyna!

Ester þá verð ég að mæla með því að þú komir líka yfir á Flickr, þar eru fullt af frábærum og flottum komum samankomnar í eina grúbbu. Vel yfir 400 íslenskar konur sem hafa áhuga á ljósmyndun og hittast af og til !
EN takk kærlega fyrir það!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.7.2008 kl. 21:04

8 Smámynd: Skattborgari

Ég sem var að tala um að taka upp dauðarefsingu síðast vill ekki sjá þig fá hana Róslin allt of góð stúlka til að fá hana.

Skattborgari, 17.7.2008 kl. 21:10

9 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Það væri ekki mér að kenna að þú myndir prófa þetta með regnhlífina, það væri á þinni ábyrgð.....

Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.7.2008 kl. 21:11

10 Smámynd: Skattborgari

Einmitt Skattborgari, hlustaðu á Ester!
Þú mátt líka láta þig fjúka hingað, held að það virki ef þú ert með sterka regnhlíf og vind sem blæs austur!

 Skattborgari, hvernig vissirðu?

Var þetta ekki hvatning? Ef þú hvetur til aðgerða sem kosta mannslíf þá ertu samsek.

Hafðu eingar áhyggjur ég hef vit á að reyna þetta ekki svo að þú þarf ekki að óttast refsinguna sem ég bloggaði um.

Skattborgari, 17.7.2008 kl. 21:13

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Takk elskan fyrir þetta og gangi þér allt í hæginn. Knús

Kristín Katla Árnadóttir, 17.7.2008 kl. 21:21

12 Smámynd: Skattborgari

Margar mjög fallegar myndir hjá þér hugsa málið.

Þú verður örugglega góður atvinnuljósmyndari í framtíðinni. 

Skattborgari, 17.7.2008 kl. 21:43

13 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Skattborgari, ég meina allt vel... ég hvet engan til þess að gera eitthvað sem stofnar fólki í hættu!

Knús og takk fyrir Katla mín

Knús til þín Sigga mín

Takk Skattborgari, ég stefni ekki á það að verða atvinnuljósmyndari og titla mig ekki sem einn slíkan í dag - enda ekki vinsælt að titla sig eitthvað sem maður er ekki...

Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.7.2008 kl. 21:46

14 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Til hamingju með þetta allt saman Róslín mín.

skemmtilegar myndir af þér og lúrunni.  

Jóna Á. Gísladóttir, 18.7.2008 kl. 00:26

15 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

til þín Helga

Takk fyrir það Jóna mín, þær eru einstaklega góðar nefnilega, ég bara kreppti saman vörunum og kyssti lúruna örugglega í 1/10 úr sekúndubroti svo það var ómögulegt að ná mynd af því mómenti...

Róslín A. Valdemarsdóttir, 18.7.2008 kl. 00:50

16 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Flotta myndir af þér Róslín mín.  En ég verð að spyrja eins og Hallgerður, þótt ég sé bara vestfirðingur.  Hvað er Lúra?  Rauð...eitthvað, Rauðspretta???

Gangi þér vel með myndasölu

Sigrún Jónsdóttir, 18.7.2008 kl. 10:18

17 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk fyrir það Sigrún.
Já þar kom það, Rauðspretta!
Takk

Róslín A. Valdemarsdóttir, 18.7.2008 kl. 12:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband