Ég heimta tvær klukkust. í viðbót í sólarhringinn!

Ég á mín ljósku móment, eins og við flest öll.
Í dag ætlaði ég að vera rosalega sniðug og sýna ykkur flottu myndirnar sem Gulla tók af mér úr Lúruveiðinni í gær, bæði með "ógeðssvip" og með Guffa Lúru.
Sendi mér myndirnar í tölvupósti og tók svo aðeins til í póstinum mínum og henti úr ruslinu, þar sem að adminin kvartaði um plássleysi.
Ég hugsaði ekki meira út í þetta fyrr en ég fór að skoða tölvupóstinn minn hérna heima, og sá að ég hafði hent tölvupóstinum frá sjálfri mér með myndunum í. Svo að engar urðu myndirnar eftir allt saman, hlakkaði svo til að fá nokkur ojj og knús um leiðLoL ..

Á leiðinni heim reyndi ég að hringja í hana Millu bloggvinkonu, en engin Milla svaraði mér. Seinna fékk ég símtal og talaði við Millu í langan tíma skal ég segja ykkur. Flott kona þar á ferðGrin Heart
Eyddi svo klukkutíma í að skrifa póst, geri ekkert annað þessa dagana, en samt finnst mér það alltaf gaman. Sá póstur var nú frekar langur, og örugglega leiðinlegur, en allt í lagi með þaðLoL !!!
Sofnaði líka á ókristilegum tíma, ég lofaði að kenna engum um, og ég held áfram að lofa því, enda sjálfri mér að kenna....LoL

Kemur fyrir að mér þykir fólk skemmtilegt, það er gaman að þvíWink

Ég sendi ykkur knús og þið sjáið myndirnar á morgunHeart

E.s. ég er ekki með 26 tíma í sólarhringnum þó ég haldi það sjálf, allt of lítill tími sko, ég bara get aldrei klárað allt sem ég ætla að gera yfir daginn....
Ég hef ekki nægan tíma einu sinni til að fara blogghringinn og skrifa inn komment, og hvað þá að fylgjast með fréttum til að skrifa einhverja vitleysuna!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja skordal

Já það hefur örugglega verið gefandi að spjalla við hana Millu okkar hlakka til að sjá myndir hafðu það gott sæta skvís

Brynja skordal, 16.7.2008 kl. 20:46

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Fegin að heyra að það geta fleiri verið ljóskur en ég, hefðir átt að heyr í tvíburanum öðrum er ég hringdi og bað um hjálp við blómastúlkuna, en sko á meðan hún var að rausa um ljóskuminni og svoleiðis gat ég þetta sjálf, mundi það allt í einu, svo þetta small.
Knús Rósin mín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.7.2008 kl. 20:53

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Sömuleiðis mín kæra Hallgerður

Já Brynja það var mjög gefandi

Milla þetta er bara eitthvað sem þarf að lærast, ég veit að þú nærð því á endanum!
Knús

Andrés........ ég sko bara segi pass, þú talar algjörlega í hringi!!

Sigga ég bara meika þetta ekki, sérð hvað kl. er núna og ég á enn fullt eftir að gera!

Knús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.7.2008 kl. 00:21

4 Smámynd: Gúnna

Hæ skvísa

Er ekki verið að pæla í því fyrir austan að breyta klukkunni og hafa sumar og vetrartíma. Ef að það má - getum við þá ekki bara bætt nokkrum klst. við okkar sólarhring....eða þannig. Þú sérð kl. hvað ég er að skrifa þetta. Allt komið í ró - og ég að moldvarpast við tölvuna, flickrast, skoða póst, blogga....osfrv.osfrv.

Knús til þín flotta stelpa.

Gúnna, 17.7.2008 kl. 01:10

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég er ekki viss Gúnna með það, svo bý ég á Suð-Austurlandi, Austurland og Suð-Austurland eru tveir ólíkir menningarheimar.

Ég einmitt er núna vön að vera á fótum til að minnsta kosti 2 svo ég geti gert allt sem ég á eftir að gera

Knús á þig Gúnna mín!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.7.2008 kl. 01:43

6 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Róslín min - líttu á björtu hliðina, ef við höfum mikið að gera leiðist okkur alla veganna ekki á meðan.

Bréfið sem ég fékk hefur örugglega tekið langan tíma í skrifum,  en var langt í frá leiðinlegt. Ég er enn að ,,vinna úr því" .. eins og ég skrifaði þér.

Við þurfum auðvitað að reyna að sortera og setja í forgang það sem er mikilvægast. Allir skilja ef þú, ung stúlkan, hefur ekki tíma til að koma með athugasemdir á þeirra bloggi og alls ekki hafa áhyggjur eða samviskubit af því.

Smá hér um orðanotkun um notkun á tíma:

Það er eitt að eyða tíma og annað að verja tíma í eitthvað. Tíma er ekki eytt í vini, tíma er varið í vini. en það er hægt að eyða tíma í eitthvað ef manni finnst það ómerkilegt. Stundum er tímanum vel varið en stundum erum við bara að eyða tíma eða jafnvel eins og sagt er, að drepa tímann, þegar við höfum alls ekkert að gera og erum bara að bíða. Þú þarft augljóslega ekki að drepa tímann ..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 17.7.2008 kl. 12:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband