Lúruveiðar!

Í dag var farið í ferðalag með barnastarfinu, krakkar eldri en 7 ára fóru að flykkjast að, eða fyrri hópurinn rétt fyrir eitt. Lagt var í ferð á spíttbát að ég held að þetta sé kallað, 7 krakkar + 4 fullorðnir ( ég sko í þeim hópGrin ).
Gusaðist vel af sjó framan í suma, og mikið voru strákarnir ( þar sem þetta voru bara strákar í fyrstu ferð ) ótrúlega ánægðir að sjá alla þessa Lúru!
Lenti í smá rifrildi við einn þeirra, en bara gaman af því hvað sumir geta endalaust drifið sig áfram á einhverjum sjálfslygum...LoL

Seinni ferðin einkendist mest megnis af stelpubát og strákabát, við í stelpubátnum fengum ekki að fylgjast með veiðunum nema úr fjarlægð, því miður. En mikið var um fjörið hjá okkur enda geta stelpur talað mikið, og þeim vantaði nú ekki hugmyndunarflugið né ímyndunaraflið skal ég segja ykkur!
Það voru sungin "sjóara" lög og samið Gamla Nóa sem hljómaði að mig minnir svona;

Gamli Nói, gamli Nói, er að veiða fisk.
Hann kann ekk'jað veiða,
lætur fiskana deyja.

Mig langar svo, mig langar svo að kunn'að veiða fisk.


Þegar hinn báturinn var búinn að draga upp Lúrurnar, fengum við smá í körfu í okkar bát og það kætti stelpurnar nú ekki mikið þegar ég spurði hvort ég ætti nú að kyssa eina Lúruna.
Auðvitað ég í mínu kjánaskapi hélt á Lúru, alveg rennandi blaut í gegn og ísköld, lét Gullu smella einni mynd af okkur Lúrunni saman og gaf Lúrunni nafnið Guffi eftir hamstrinum mínum heitnum og small svo koss á varir þessa skakka fisks!LoL
Þá heyrðist nú í þessum fjóru stelpum sem voru með okkur ,, oooojjjjj! "W00t ... Algjörar pjötturófur, þær þorðu nú varla að snerta þessa blessuðu fiska!!

Er við komum upp að bryggju stóð ég þarna ísköld, blaut og skjálfandi úr kulda, enda gusaðist allt framan í mig og á mig!

KnúsHeart

Svo vil ég enda færsluna á að óska yfirmanni mínum henni Björgu hjartanlega til hamingju með nýja aldurinn ( 15. júlí), 38 ára, eða var það 28? Nei ég man það ekki, en ég man að hún kom í sjónvarpið í kvöld ef þið sáuð hana...Wink

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skattborgari

Ég kann alltaf best við fiska á matardisknum eins og svín og kýr. Vonandi færðu ekki lungnabólgu. Kveðja Skattborgari

Skattborgari, 16.7.2008 kl. 01:16

2 Smámynd: Helgan

Hæ frænka

bara að skella einu kvitti á þig.

Ég er nú of mikil pjattrófa fyrir svona lagað hehe hefði líka heyrst ójjjj í mér

kveðjur

Helgan, 16.7.2008 kl. 06:13

3 Smámynd: Guðrún Hauksdóttir

 Þú ert nú meiri krúttkjéllan, kyssandi slímuga fiska  hehe....OJJJJbarasta :)

Hafðu það sem allra best Róslín mín

Guðrún Hauksdóttir, 16.7.2008 kl. 14:10

4 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk fyrir það Skattborgari, ég kann enganvegin við fisk á disknum mínum, nema að hann sé harðfiskur.

Hæ frænka!

Bíddu bara þangað til ég set myndirnar, þær koma inn eftir vinnu!!

Guðrún, fiskurinn var mega slímugur og saltur Ég finn bara bragðið af honum þegar ég hugsa út í þetta!

Hafðu það sömuleiðis sem allra best Gurðún mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.7.2008 kl. 14:30

5 Smámynd: Skattborgari

Viltu þá frekar hafa þá í búri?

Skattborgari, 16.7.2008 kl. 16:55

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég vil þá helst ómögulega ekki, takk fyrir.

Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.7.2008 kl. 16:58

7 Smámynd: Skattborgari

Mæli með að þú fáir þér hákarl alltaf jafn góður viltu kannski frekar hafa hann lifandi í baðinu hjá þér?

Skattborgari, 16.7.2008 kl. 16:59

8 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Oj barasta, hákarl er ógeð.... og nei takk!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.7.2008 kl. 17:01

9 Smámynd: Skattborgari

Viltu bara ekki fá mjólkur shake ala Skattborgara? Bragðast virkilega vel.

Skattborgari, 16.7.2008 kl. 17:18

10 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mikið hefur verið gaman hjá ykkur Róslín mín.knús á þig

Kristín Katla Árnadóttir, 16.7.2008 kl. 19:29

11 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Nei takk Skattborgari, ómögulega...

Já Katla, það var æðislega gaman, samt kalt en gaman! Knús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.7.2008 kl. 19:32

12 Smámynd: Skattborgari

Þegar maður gefur fólki svona mjólkur shake þá lætur maður það ekki vita innihaldið fyrr en eftir á.

Skattborgari, 16.7.2008 kl. 19:35

13 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég þakka fyrir gott boð en nei takk....

Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.7.2008 kl. 19:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband