14.7.2008 | 20:51
Símhringingar ofl.!
Ég veit voða lítið hvað ég get sagt annað en ; ÉG ER Á LÍFI.
Var eins og flestir vita í bænum, og ef þið sáuð Sindrarútu, litla rútu vel merkt Sindra og Hornafirði, þá var ég örugglega þar. Mikið voruð þau heppin sem sáu rútuna, saga til næsta bæjar alveg hreint!
Ég og Árdís gengum Berserksgang yfir allar helstu búðir Kringlunnar og tókst bara nokkuð vel, allir sem sáu eitthvað gult og örlítið svart, sem minnti helst á býflugu ef eitthvað var, með eldkastaníurauðbrúnt hár. Á hælum sem heyrðist vel og mikið í, hlaupandi á eftir hausnum minni manneskju, þá var það alveg pottþétt ég!
Annar hefur mér tekist að verðsetja myndirnar mínar og þetta verður vonandi allt tilbúið á morgun.
En í gærkvöldi var ég mönuð ( mönnuð? ), oftast tek ég ekki þessum tilteknu mönunum, en í þetta skipti var það eitthvað sem ég myndi þá sigrast á. Já, ég er haldin SÍMAFÆLNI held ég hreint alveg. Ég þoli ekki að hringja í fólk og alls ekki yfir höfuð að tala við fólk í síma, ég bara hélt ég gæti það ekki!
En ég var búin að lofa að hringja klukkan um 16.00, stökk eftir vinnu og út í búð til að kaupa mér smá til að borða fyrir æfingu. Þegar ég var komin aftur að ganga í gegnum Menningarmiðstöðina, þá hringdi ég í eina vel valda bloggvinkonu, eða þá sem manaði mig nú til þess að hringja.
En ég sko tæklaði ég þessa skemmtilegu áskorun, við töluðum í heilar 40 mínútur sem er örugglega met hjá okkur báðum, allavega mér. En lengi, lengi, allt of lengi hefur ekki verið hlegið svona mikið að mér og með mér í svo laaangan tíma!!
Ólíkt mér gekk ég heim með síma við vinstra eyrað og var brosandi, ekki oft sem það gerist heldur úti á götu....
En þetta kætti upp á mig þó ég náði ekki að borða almennilega fyrir æfingu.
Ég get líka sagt ykkur það að ég hljóp eins og vitleysingur á æfingu, ólíkt mér, þá var ég ekki að kafna!!!
KNÚÚÚS

Athugasemdir
Til hamingju með að hafa ekki verið að kafna!!!
En mikið rosalega geturu talað í síman stelpa! Þetta er svakalegt...
Signý, 14.7.2008 kl. 21:37
Þú ert nú algjör ,, til hamingju " týpa Signý
!!!
Heyrðu, þú verður að passa þig, þú talar enn meira..
Róslín A. Valdemarsdóttir, 14.7.2008 kl. 21:39
Veistu, það er nú bara alveg stórmál að vera yfirleitt á lífi. Það eru bara ekki allir.
Hafðu það gott í dag.
Anna Guðný , 15.7.2008 kl. 11:15
ÉG ER LÍKA Á LÍFI ..
... Jæja Róslín, nú er fyrsti formlegi sumarfrísdagurinn minn en ég skrapp í sumarbústað um helgina svo ég hef hvorki bloggað né sett inn athugasemdir, hvað þá svarað bréfinu þínu sem þú sendir um daginn almennilega. Sest niður fljótlega og geri það.
Til hamingju með góðan árangur í íþróttunum!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 15.7.2008 kl. 11:40
Já Anna Guðný, ég hélt kannski að fólk væri farið að sakna mín...

Úff, Jóhanna, ég sko var farin að efast!!
Ég hlakka hálfgerðlega til að fá svar, mér finnst alllllltaf gaman að fá ímeil!
En þú ætlaðir að koma hingað austur fyrir 24. júlí er það ekki?
EN takk takk fyrir það
Já Sigga, ýmsir, það eru nokkuð margir sem betur fer!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 15.7.2008 kl. 16:39
Ég er líka á lífi krúttið mitt
hafðu það nú mjög gott.Knús
Kristín Katla Árnadóttir, 15.7.2008 kl. 18:56
þess vegna var ekkert eftir í búðum kringluna, þú varst búin að vera þar.

Hæ krúsin mín ég er líka á lífi en drullu þreytt, enda orðin gömul og lúin
Knús til þín skjóðan mín
Milla.
Ps Mér hugnast vel endurnýjunar bryggjuframkvæmdir ykkar á Hornafirði
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 15.7.2008 kl. 19:42
Gott Katla mín og sömuleiðis

Jább þessvegna Milla, reyndar keypti ég nú ekkert á útsölu svo að það reynist rangt!
Það kemur fyrir að maður verður gamall!...
Knúsknús
Heyrðu já, þetta var hún Björg yfirmaður sem var að tala, hún á meira að segja afmæli í dag!!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 15.7.2008 kl. 20:14
Ekki, veistu að ég segi ætíð að ef mig vantar ekki föt rétt fyrir útsölu þá vantar mig þau ekki er kemur að henni.
leiðist að fara þangað.
Ég var reyndar ekki í kringlunni, fer helst ekki þangað.
Knús knús.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 15.7.2008 kl. 20:48
Var að senda smá email, góða nótt superwoman!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 15.7.2008 kl. 23:08
Elsku Milla mín, okkar á milli þá hreint út sagt HATA ÉG FATAKAUP OG BÚÐARRÁP.

Kringlan er meira svona "hittingarmiðstöð" í mínum augum, hitti oft vinkonur mínar og fólk þar bara, bara til að hitta þau
Já takk fyrir það Jóhanna mín, ég er aaalveg að fara að svara þér
Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.7.2008 kl. 00:17
Gott að þú gast talað og talað og talað í Símann
passaðu bara símreikninginn ef þú ætlar að tala svona lengi næst
Hafðu það ljúft sæta og góða nótt
Brynja skordal, 16.7.2008 kl. 00:17
Brynja þetta var nú ekki bara ég að tala.......
Ég talaði helmingi minna!

Ég gáði sko að því hvort ég ætti næga inneign, og greinilega ekki þar sem síminn skellti sjálfkrafa á, hefði talað í einhvern tíma í viðbót og líklega orðið svolti sein á æfingu....
Góða nótt
Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.7.2008 kl. 00:20
Ég er líka á lífi
. Mun fylgjast með "Sindrarútum" á götum borgarinnar í framtíðinni
. Knús á þig Róslín mín
Sigrún Jónsdóttir, 16.7.2008 kl. 00:57
Eða stórum býflugum Sigrún

Knús
Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.7.2008 kl. 01:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.