Mér var ofboðið!

Ég veit vel að ég er nú ekki alveg eins hugsandi og allir aðrir jafnaldrar mínir, og hegða mér kannski aðeins öðruvísi. En í dag vorum ég og mamma búnar að keyra framhjá hóp í bæjarvinnunni sem var að raka gras. Allt í lagi með það, en ég sá svo aðila sem ég hafði nú ekki séð áður. Stuttu seinna stoppuðum við aðeins og þarna stóð heldri maður og var einn að raka grasið og gera þetta aðeins betra, og raka grasið í stærri hrúgur.
Ég held að krakkarnir hafi verið í kaffi, en þarna ofbauð mér hrikalega og æsti mig strax yfir þessu þegar mamma kom inn í bíl aftur. Ég veit ekki hvað maðurinn er gamall, en hann var örugglega yfir sjötugt.Angry

Persónulega finnst mér þetta ekki eiga að vera svona, og maðurinn á nú frekar að skipa þeim fyrir heldur en að gera þetta sjálfur. Þó svo að hann geri þetta örugglega betur fyrst hann vildi hafa þetta svona fínt.

Aftur á móti út í aðra sálma! Sýningin mín setti sig nú ekki sjálf upp, svo við mamma gerðum það. Hún er tilbúin, svo að á morgun er það bara að setja gestabókina upp, kaupa eitthvað fyrir opnunina og laaaagggó!Grin
Humarhátíðin er öll að stíga upp, byrjaði í gær, en bryggjustemningin og hverfahátíðarnar byrja á morgun. Sem betur fer var ég að hjálpa mömmu og Rigmor að plasta stóran leiðavísi, sem segði til um hvar hvað væri. Því að ég var merkt í Pakkhúsinu takk fyrir pent, ekki í Gömlu búð! Það var samt ekkert annað hægt að gera en að líma og krota yfir punktinn og gera bláan í staðinn.

Að lokum fékk ég í gær fyrsta tölvupóstinn sem berst til mín vegna bloggsíðu minnar, en mér finnst hrikalegt að geta ekki svarað því. Ég hef reynt oft og mörgu sinnum og fæ alltaf póst til baka að pósturinn hafi ekki senst. En það var gömul vinkona mömmu og pabba, sem bjó hliðina á mömmu og pabba áður en ég fæddist!
Ég biðst forláts á þessum óþekktargangi í tölvupóstnum hjá mér, ég ætla að reyna aftur!

Knús til ykkarHeart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er skelfilegt!

Brúnkolla (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 18:56

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Heyrðu Rósin mín stjórna þú nú bara bæjarvinnunni er eldri verður
þetta með mailið, gerist oft hjá mér, reyndu bara aftur.
Knús til þín og þinna.
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 3.7.2008 kl. 19:00

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Já, það finnst mér allavega Brúnkolla!

Nei takk Milla mín, það vil ég alls ekki. Þó svo að ég sé nú örlítið menningarleg...
Ég sendi örugglega 6 sinnum, og það kom alltaf aftur og aftur, prófaði svo annað e-mail sem ég á.
Knús á þig Milla mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 3.7.2008 kl. 19:13

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Gekk það upp? sko hitt e-malið.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 3.7.2008 kl. 19:16

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Já, það held ég, hef ekki fengið neitt til baka um að það hafi ekki gert það allavega.

Róslín A. Valdemarsdóttir, 3.7.2008 kl. 19:27

6 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Pff mér finnst þetta algjör óvirðing við unglingana.  Það er óþolandi hvernig er komið fram við ungt fólk út af fyrirfram mótuðum hugmyndum.  Sigga hver segir að þessir krakkar hafi verið latir, hvernig færðu það eiginlega út?

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 4.7.2008 kl. 10:15

7 Smámynd: Brynja skordal

Hafðu ljúfa og skemmtilega helgi sæta skvís

Brynja skordal, 4.7.2008 kl. 12:03

8 identicon

Sko í fyrsta lagi þá kom þessi gamli maður útaf því að honum fannst svo gaman að raka. Hann var búinn að raka í 77 ár !  og þetta vildi hann gera. Í öðru lagi þá fórum við í pásu og þá talaði flokkstjórinn við hann en gamli maðurinn vildi halda áfram að raka afþví að honum finnst það gaman. Svo þetta er ekki okkur að kenna og við vorum ekkert að fara illa með þennan gamla mann eða hvað það er sem þú varst að blogga um.  Takk fyrir og vertu blessuð

Ég svara fyrir bæjarvinnuna (IP-tala skráð) 4.7.2008 kl. 14:05

9 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Var hún rosalin ekki að gagnrína manninn fyrir að fara inn á ykkar svið?

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 4.7.2008 kl. 14:23

10 Smámynd: Hulda Sigurðardóttir

Ég vildi bara óska þér góðs gengis með sýninguna um helgina.

Hulda Sigurðardóttir, 4.7.2008 kl. 16:08

11 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Sigga, ég var ekki að tala um að þau væru löt. Mér fannst óþægilegt að horfa upp á gamla manninn raka á meðan krakkarnir væru í kaffi, en ég er búin að fá útskýringu á því svo ég æsi mig ekki meira yfir þessu. Ég sá þetta bara frá þessu sjónarhorni og afsaka að hafa gagnrýnt þau strax. Ég gerði mér vel grein fyrir því að þau væru í kaffipásu.

Nanna Katrín ég var að tala um krakkana í bæjarvinnunni, þessi maður er eins og ég segi á áttræðis - jafnvel níræðis aldri.

Takk sömuleiðis Brynja mín

Ég afsaka fyrir að hafa gagnrýnt þetta fyrirfram, hefði vel getað spurt að þessu. Takk fyrir leiðréttinguna, þú sem svarar fyrir bæjarvinnuna.

Takk kærlega fyrir það Hulda mín

Annars var ég að koma af sýningunni, hún er opin til 6 í dag, og frá 1 til 6 á morgun fyrir þá sem eru áhugasamir. Svo get ég montað mig af því að það komu fleiri á opnunina mína en hjá Borgþóri....

Róslín A. Valdemarsdóttir, 4.7.2008 kl. 16:34

12 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Ó Rósalín, þá ertu haldin miklum fordómum gagnvart jafnöldrum þínum.  Reiknaðir með því versta án þess að vita neitt um málið.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 4.7.2008 kl. 16:35

13 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Nanna Katrín, ég er búin að biðjast afsökunar, og ef þessir krakkar vilja hafa eitthvað á móti mér, þá er það þeirra. Ég sá þetta með öðrum augum. Ég er ekki haldin miklum fordómum gagnvart jafnöldrum mínum, ekki búa til það. Ég fann bara til við að horfa á manninn, en ég gerði mér GREIN fyrir því að þau væru í KAFFITÍMA, þá skildi ég þetta. Gerðu það að vera ekki að klína þessu svoleiðis upp á mig.

Maðurinn var að hjálpa þeim og mér finnst það gott hjá honum, hann vildi greinilega bara veita þeim hjálparhönd sína, og það er ekkert við því að gera. Krakkarnir mega vel vera reið út í mig og mér finnst það skiljanlegt ef svo verður. En ég ætla ekki að eyða helginni í að hugsa um þetta, merkilegri hlutir eru að gerast í kringum mig og heimafólk, hann vildi kannski bara hjálpa því það er mikið af ferðafólki hér.
Ég get alveg eins tekið þessa færslu út ef hún fer svona í brjóstið á þér mín kæra Nanna, ég vil nú ekki gera fólki illt..

Jack, það var kona í vinnunni sem ÞURFTI að hætta að vinna, vegna aldurs, hún varð sjötug um daginn, og hún má EKKI vinna lengur.
Sumir vilja gera gott, og þessi maður hjálpaði þeim og svoleiðis er það, ég vil taka orð mín til baka, ég fékk skýringu á þessu svo að ég er góð.

Róslín A. Valdemarsdóttir, 4.7.2008 kl. 16:54

14 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Nei mín vegna geriru það sem þú vilt.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 4.7.2008 kl. 16:58

15 identicon

Halló dúlla!!! Frábær sýning hjá þér, takk fyrir að bjóða mér og mínum á opnunina(komum kanski fleiri en áttum en...) Já þetta var mjög gaman, haltu áfram á þessari braut.

Humarhátíðarkveðjur, Ragga

Ragga Rabbamamma!!!!! (IP-tala skráð) 4.7.2008 kl. 22:30

16 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk fyrir Ragga mín, og takk kærlega fyrir komuna með allt þitt lið, það er bara gaman að fá svona marga gesti

Róslín A. Valdemarsdóttir, 5.7.2008 kl. 10:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband