Hvalnesferð, heimsókn og enn annar skrítinn draumur..

Ég fór í Hvalnesferðina með barnastarfi Menningarmiðstöðvarinnar og var krökkunum til sóma. Óð út í sjóinn með þeim og fór upp í vitann. Magnað hvað við eigum fallegt landslag hér á Íslandi, ég mæli með að fara í Hvalnes, sandurinn þar er flottur og fullt af steinum og skeljum sem hægt er að týna.
Stelst til að setja hér inn mynd af mér og vinkonum mínum litlu Ylfu og Salóme.
Fjöruferð á Hvalnes 166

Þær tvær voru alltaf með mér, enda bestu vinkonur mínar, það vantaði ekkiLoL. Þær voru í því að ýta mér út í sjó, og Kári litli bróðir Rafns tók þátt í því einu sinni. Ótrúlega gaman hjá okkur öllum, ég mæli sterklega með þessum barnastarfsferðum á vegum Menningarmiðstöðvarinnar.

Á þriðjudaginn förum við í fjársjóðsleit á Melatanga og hægt er að skrá sig í bókasafninu.

Annars var ég að vinna í dag - og það er ekki frásögu færandi hvað verður heitt þarna inni. Var ein í mest allan dag inná skrifstofu. Og vonandi að Björg eða einhverjir úr vinnunni lesi þetta ekki, en ég var sko LÖÖÖT í dag. Skannaði inn nokkrar myndir og fékk heimsókn frá mömmu og pabba.
Fékk svo óvænta-vænta heimsókn frá bloggvinkonu minni henni Svanhildi, hún er búin að eiga heima hér frá því 2002 og ég hef bara aldrei séð hana svona meðvituð allavega.
Það létti upp á vinnudeginum hjá mér, og skemmtilega frá því sagt var ég nýbúin að kíkja á stjörnuspána mína til gamans á mbl.is áður en hún kíkti við og þar stóð :

LjónLjón: Vinir þínir reikna með að þú takir þátt í stuðhelginni þeirra. Hún er einmitt það sem þú þarft til að hrista upp í þér. Ekki reyna að vera feiminn, það fer þér ekki.

Og viti menn, mikið rosalega var ég feimin! Ég meira að segja skalf úr feimni, kannski jú af því ég var búin að vera að vinna. Föst með augun við tölvuskjáinn og svo heyri ég nafn mitt nefnt og ég áttaði mig ekki alveg á þessu straxBlush..
En takk fyrir heimsóknina Svanhildur, það var gaman að sjá framan í þig og vonandi gerist það nú aftur, en ekki eftir önnur 6 árTounge.

Eftir þá heimsókn fór ég að spekúlera hve marga bloggvini ég hef hitt og komist að því að það eru nú ekki það margir.
9 af 48 bloggvinum hef ég nú hitt.
6 af 48 hef ég hitt oftar en einu sinni.
7 af 39 ( - s.s. þeir sem ég hef hitt ) langar mig virkilega til að hitta. Og ég mun reyna að hrinda því í framkvæmdir er ég hef tíma og er á leið þangað eða hingað.

Að lokum langar mig rosalega að segja frá skemmtilega draumnum mínum sem mig dreymdi í nótt. Ég veit að mig dreymir ótrúlegustu hluti, en þessi var nú ískyggilega drungalegur. Þannig var mál með vexti að ég sat í flugvél með mörgum sem ég þekkti, og við vorum sífellt að reyna að lenda en það var svo vont veður að á endanum varð bara flugslys. Ég komst alveg heil úr því og var með einhverju fólki sem komst lífs af líka. En þar sem við brotlentum var svona hálfur 17. júní á móts við Humarhátíðina á Hóteltúninu. Þarna man ég nú bara eftir tveimur andlitum, en ótrúlegt en satt sat Sólveig Arnarsdóttir leikkona með sitt rauða hár og manni á bekk ásamt öðru fólki. Þarna gekk svo önnur rauðhærð stelpa sem ég geri mér ekki grein fyrir því hver hefði átt að vera niður hólinn.


En svo vaknaði ég bara, en ég veit vel af hverju mig dreymdi Sólveigu Arnars, þar sem ég er að bíða eftir tölvupósti frá henni. Hlakka nefnilega svo til að heyra svarið hennar um pælingar mínar um rauðhærðra málið. Humarhátíðin er nú í vændum og ég held mína fyrstu ljósmyndasýningu þá, og er ekkert smá stressuð yfir því að velja kannski ekki réttu myndirnar. Bara stressuð!

Þeir sem gera sér fært að mæta af bloggvinalistanum mínum hingað á Humarhátíð eru sko meira en velkomnir á ljósmyndasýninguna mína og gæti vel verið að ef ég býð í svona Opnunarboð þá eru ykkur bloggvinum mínum líka boðið í þaðGrin..

En nú er ég farin að hoppa með mömmu á trampólíninuGrin!

Knús á ykkurHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 27.6.2008 kl. 22:18

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Draumráðning (bara grín): Það á eftir að taka nokkrar tilraunir að lenda þínum draumum, sem virðast tengjast því að innst inni langar þig að verða leikkona á sviði (og mjög fræg auðvitað). Lendingin verður síðan óvænt og hávaðasöm og einhverjir verða sárir en þú stendur uppi sem sigurvegari og hittir Idolið þitt; Sólveigu og jafnvel Margréti Vilhjálmsdóttur líka (enda rauðhærðar báðar) og fetar sömu leið og þær... það er að segja í leikhúsið!

... knús, annars geta draumar líka bara verið eitthvað sem við erum að hugsa í undirmeðvitundinni og kemur svona skringilega fram...

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 28.6.2008 kl. 16:57

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

á ykkur Huld og Sigga..

Nei mikið ROSALEGA lýst mér vel á þessa draumaráðningu Jóhanna, nú er að bíða og sjá
Knús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 28.6.2008 kl. 17:10

4 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Róslín mín, ég var örugglega meira feimin en þú, en við sjáumst aftur

Svanhildur Karlsdóttir, 28.6.2008 kl. 19:20

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Það er allt í lagi, já við sjáumst

Róslín A. Valdemarsdóttir, 28.6.2008 kl. 19:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband