Knattspyrna og ljósmyndasýning

Afsakið bloggleysið hjá mér, hef ekki haft mikinn bil á milli "laga"LoL ..
( og reyndar kommentleysið líka..Blush )
Annars er ég að horfa á leikinn, enda ekki annað hægt úr svona fjarlægð. Ef leikur er, þá er ekki annað mögulegt en að horfa á hann, svo mikið er víst.
Ísland eru nú mikið betri hingað til og staðan 3-0 í þessum töluðu orðum. En það er ekki neitt áhyggjuefni, enda þurfa þær bara að halda og þá eru þær í góðum gír.


Það sem ég er núna að stressa mig á ( ég er alveg í stresskasti hérna ), er það að ég fékk sýningarpláss, JÁ sýningarpláss fyrir ljósmyndirnar mínar!
Ég sýni í Byggðasafninu yfir Humarhátíð, svo það er eins gott að ÞÚ mætir á svæðiðGrin !

Ég þarf að halda áfram að finna myndir og ég bið bara að heilsa ykkurHeart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Flott hjá þér, og elsku vertu ekkert að stressa þig

Svanhildur Karlsdóttir, 26.6.2008 kl. 18:24

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Nei, allt í lagi, allt í lagi!
En þú mætir ef þú verður hér, er það ekki?

Róslín A. Valdemarsdóttir, 26.6.2008 kl. 18:44

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk fyrir Sigga
Humarhátíðin er nú bara um þarnæstu  helgi ( ekki núna heldur næstu sko).. Fyrstu helgina í júlí!!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 26.6.2008 kl. 18:58

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Til hamingju, auðvitað fékkstu sýningarpláss, hvað annað flotta snót.
Mundi sko koma ef ég gæti, það væri ekki dónalegt að slá tvær flugur í einu höggi
humarhátíð og sýning, en það bíður betri tíma.
                     Knús kveðjur
                      Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.6.2008 kl. 19:06

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk Milla mín.
Það hefðu nú bara verið heilar þrjár flugurnar sem þú myndir slá! Mig nefnilega líka myndirðu hitta mín kæra! En þú sagðist koma næsta sumar er það ekki?
Knús knús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 26.6.2008 kl. 19:27

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Það þurfti nú ekki að taka það fram að ég mundi hitta þig og þína,
hefði nú aldrei farið að Höfn án þess að hitta ykkur, jú ef guð lofar þá langar mig að fara þessa leið næsta sumar.

Knús á þig besta rós.
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.6.2008 kl. 19:34

7 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Þú kemur vonandi, þá skal ég með glöðu geði sýna þér fallegu staðina á Höfn..

Knús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 26.6.2008 kl. 19:36

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk krúsin mín

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.6.2008 kl. 19:40

9 Smámynd: Brynja skordal

Innlitskvitt eftir langt frí hafðu ljúfa helgi sæta skvís

Brynja skordal, 26.6.2008 kl. 22:46

10 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Til hamingju með sýningarplássið! Þú ert náttúrulega bara að klífa frægðarstigann ...

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 26.6.2008 kl. 23:00

11 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Aldeilis frábært hjá "stelpunum okkar"að "afgreiða"(staðgreiða)hinar grísku stöllur sínar 7-0,og nú viljum við bara fá þær í lokaúrslitin að ári.

                                       ÁFRAM ÍSLAND.

Magnús Paul Korntop, 26.6.2008 kl. 23:20

12 Smámynd: Anna Guðný

Til hamingju með sýningarplássið. En týndi þér út af msninu hjá mér, Viltu adda mér inni aftur.

Anna Guðný , 27.6.2008 kl. 01:45

13 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Knús á ykkur Milla og Brynja

Takk Jóhanna, ég geri hvað ég get

Eitt skil ég ekki Magnús, af hverju þú gerir gæsalappir við stelpurnar okkar, strákarnir eru ekki kallaðir svoleiðis.

Takk Anna Guðný, ég tók þig útaf og lét aftur inn, þú varst inná hjá mér.

Róslín A. Valdemarsdóttir, 27.6.2008 kl. 09:08

14 identicon

Ég mæti!!!

Ragga (IP-tala skráð) 27.6.2008 kl. 09:20

15 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Til hamingju með væntanlega sýningu á verkunum þínum Róslin mín.

Sigrún Jónsdóttir, 27.6.2008 kl. 10:25

16 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk Ragga
Ég býð þér ef það verður einhver sérstök opnun!

Takk Sigrún

Róslín A. Valdemarsdóttir, 27.6.2008 kl. 10:29

17 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til hamiingju með það Róslín mín það væri gaman að sjá sýninguna.

Kristín Katla Árnadóttir, 27.6.2008 kl. 14:01

18 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk Katla Það væri gaman að sjá þig mæta.

Róslín A. Valdemarsdóttir, 27.6.2008 kl. 16:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband