23.6.2008 | 18:46
Spurning til almennings á Íslandi
Hvað finnst þér um unglinga á Íslandi í dag?
Allir sem treysta sér til að svara, þá endilega deilið með mér svarinu, því ég vil vita.
Ekki vera hrædd, ég er á forsíðublogginu, og því mega allir hafa sína skoðun og allir mega segja sitt. Ég þakka bara fyrir það.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Síðustjórnandi

Ég er 17 ára gömul, rauðhærð, fædd og uppalin á Hornafirði, en ættuð m.a. frá Selfossi, Neskaupsstað og Færeyjum. Ég er nemi á fyrsta ári í FAS. Ég geri mér sterkar skoðanir á hinum ýmsu málefnum, og læt sjaldan vaða yfir mig. Mér þykir gaman að taka þátt í málefnum sem tengjast þjóðinni og enn skemmtilegra að bulla í fullorðnu fólki. Þó innan kurteisismarka.
Mig langar mest til að verða leikkona og rithöfundur þegar ég verð eldri.
Ég er framtíð Íslands, svo leggið nafn mitt á minnið.
Ég á góða fjölskyldu, sem og yndislegan kærasta, vinir eru heldur fáir en frábærir.
Þið finnið mig á facebook;
www.facebook.com/roslinv
roslinvaldemars@gmail.com
roslin-valdemars@hotmail.com
Ekki hika við að senda mér línu!
Ég tek líka ljósmyndir;
www.flickr.com/roslinv
Spurt er
Efni
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Góð lög!
Bloggvinir
-
Jóhanna Magnúsdóttir
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Guðrún Emilía Guðnadóttir
-
Isis
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Embla Ágústsdóttir
-
Guðrún Hauksdóttir
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Halla Rut
-
Dúa
-
Garún
-
Gúnna
-
Huld S. Ringsted
-
Helgan
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Elín Katrín Rúnarsdóttir.
-
Birna Rebekka Björnsdóttir
-
Anna Guðný
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
-
Anita Björk Gunnarsdóttir
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Anna Vala Eyjólfsdóttir
-
Baldur Kristjánsson
-
Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir
-
Brynja skordal
-
Einar Indriðason
-
Ellý Ármannsdóttir
-
Halla Vilbergsdóttir
-
Hannes
-
Heimir Tómasson
-
Hulda Rós Sigurðardóttir
-
Hulda Sigurðardóttir
-
Hólmfríður Guðlaug Einarsdóttir
-
Inga Sig
-
Ingibjörg Helga
-
Jóhanna Kristín Þorvarðardóttir
-
Jóhanna Vala Jónsdóttir
-
Jón Svavarsson
-
Katan
-
Kristlaug M Sigurðardóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Aprílrós
-
Landssamband ungra frjálslyndra
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda litla
-
Maddý
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Skattborgari
-
Sunna Guðlaugsdóttir
-
Svanhildur Karlsdóttir
-
Svetlana
-
Sæmundur Bjarnason
-
Tiger
-
Íris Hólm Jónsdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Þórarinn Þ Gíslason
-
Stefanía
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Inga Helgadóttir
-
Jens Guð
-
Sigríður Ólafsdóttir
-
Sigurður Einarsson
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
Athugasemdir
Unglingar í dag eru það fyndasta sem ég veit um. Aðallega vegna þess að þegar ég sé unglinga eða hlusta á þá, þá man ég svo eftir sjálfri mér og ég bara trúi því ekki að ég hafi verið jafn hallærisleg og unglingarnir í dag
En annars, fyrir utan það þá eru unglingar snillingar. Þeir eru misjafnir eins og þeir eru margir en ég held og hugsa að svona 80% unglinga séu hin bestu skinn og sjaldan, ef einhverntíman til vandræða. Það er einfaldlega bara þannig og hefur alltaf verið að það fer mikið mun meira fyrir vandræðagemsunum innan hópsins sem síðan litar álit almennings á "unglingum" yfir höfuð.
Það hefur alltaf farið í taugarnar á mér, og fer enn, þegar að fullorðið fólk finnur sig knúið til að tala niður til ungs fólks. Hvort sem það er beint við unglinginn sjálfan eða bara svona í saumklúbbnum, og unglingar fá aldrei sanngjarna umfjöllun neinsstaðar. Enda stimplaðir sem "vitlausir" og "hafa enga skoðun"
Ég hef oftar en ekki lent í því að verða algjörlega kjaftstop þegar ég fer í bónus eða hagkaup eða eitthvað þar sem mikið er af unglingum sem vinna á kassanum, og fullorðið fólk alveg hellir sér yfir þessa krakka eins og enginn sé morgundagurinn útaf engu og klikkar síðan nánast undantekningalaust út með "þetta unga fólk í dag"... eins og allt sem miður fer í heiminum sé ungu fólki að kenna.Og unglingurinn á kassanum segir ekkert. Enda getur hann það ekki, þar sem hann fyrir það fyrsta þarf að vera kurteis alltaf, og í öðrulagi hann veit að hann er "bara unglingur" og því átómatískt dæmdur til þess að allt sem hann kæmi til með að segja yrði dæmt sem dónaskapur. Sama hversu kurteisislegt það væri.
En... bottomline... unglingar eru snillingar. Kannski að unglingar ættu að láta meira í sér heyra en þeir gera. Svona eins og þú gerir t.d. Mér finnst þú algjör snillingur
og eflaust eru til fullt af ungu fólki sem er að gera góða hluti líkt og þú. Spurning um að virkja þá bara og kaffæra minnihlutahópnum sem er alltaf í blöðunum eftir hverja einastu helgi....
Ok.. nú er ég hætt.. ég lofa
Signý, 23.6.2008 kl. 19:06
Róslín mín það er hægt að flokka niður unglinga í nokkra hópa, vonandi flest bara flott, sum eru hortug, ósvífin, drekka eða dópa, en þar tel ég vera eitthvað mikið að. Vona ég að þjóðfélagið fari að skilja að þarna er hjálp nauðsynleg, það hefur brugðið við að það er ekki nægur skilningur á vandamálum þessara barna, og
Milla.
ýmislegt slæmt gerist hjá þeim. Mörg eru í Íþróttum og spjara sig vel, jafnvel þó að það séu vandamál heima hjá þeim. Önnur eru bara venjuleg og flott.
það er hægt að segja svo margt, ætla bara að láta þetta duga.
Yfirhöfuð finnst mér unglingar skemmtilegir.
Knús
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.6.2008 kl. 19:12
Erum við svona hallærisleg Signý??
...



Það er mjööög margt sem ég er sammála þér í þessum langa texta, sem ég bjóst alveg eins við frá þér. Finnst hrikalegt hvað margir vandræðaunglingar komast í fréttir. Svo fæ ég aldrei að spreyta mig á því sviði, bara fúlt
En þakka þér fyrir hrósið, nú veit ég að ég er ekki svo mikil sleikja fyrst þú segir þetta
Já Milla, það eru til ýmsar persónur í unglingum, það er hægt að hjálpa þeim sem vilja, og eru í veseni. Venjulegu og flottu unglingarnar eru yfir höfuðtölunum, það er bara þannig!
Knús knús
Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.6.2008 kl. 19:49
Elsku Róslín mín ég tek undir með þeim sem fyrir ofan mig eru
og eins og Sigga segir Njóttu unglingsárana,,, þau eru vegurinn út í lífið..
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.6.2008 kl. 21:02
Sko, ég veit ekki hvort hallærisleg sé alveg rétta orðið svona þegar ég hugsa þetta til baka, en samt, veit ekki hvað maður ætti að kalla það. En þú veist, þú sérð þetta sjálf þegar þú verður tventísomþeing, maður var óttalega asnalegur þegar maður var 14 - 17 ára en það eru það allir og held að það sé bara eðlilegt
En jú, þú ert samt alveg sama sleikjan þó að mér finnist þú snillingur! Enda hefur enginn sagt að það að vera sleikja sé eitthvað slæmt
Signý, 23.6.2008 kl. 21:19
Já þetta er nokkuð satt hjá henni Siggu

!!!

..

Knús á ykkur tvær, og takk takk, Linda og Sigga
Ég veit Signý, WANNABE hallærisleg, oh hvað ég er svööööl....
Á þessum aldri erum við að mótast og þroskast, þessvegna virkum við svona asnaleg, og ótrúleg wannabe.
Af hverju er ég sleikja, ég bara skiiil það ekki...
En það er í lagi, mér er alveg sama, dúdídííí, í alvöru talað ég skal segja þér Signý mín, að ég er ótrúlega hreinskilin manneskja. Passa að segja sannleikann og vill flestum vel ( nema þeim sem vilja mér illa, þá er mér rosalega sama um..)
EeeeN! Það sem meira er, að þú ert líka snillingur, hvenær stofnum við svo samfélag rauðhærða, örvhentra, örfættra og lesblindra?
Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.6.2008 kl. 23:46
Þau eru bara frábær, mikklu opnari og upplýstari enn við vorum mín kynslóð. Það hafa alltaf verið einstaklingar á kanntinum, á öllum aldri.
Högni Jóhann Sigurjónsson, 23.6.2008 kl. 23:53
Unglingar eru frábærir enda höfum við flest verið frábærir unglingar ekki satt
Jón Aðalsteinn Jónsson, 24.6.2008 kl. 00:07
Unglingar er upp frekar skemmtilegir finnst mér. Ég á tvo unglinga núna og viðurkenni fúslega að við erum ekki alltaf sammála og stundum brýst út smá valabarátta á heimilinu með tilheyrandi æsingi og stöku hormóna-hurðaskelli.
En mér finnst þau og vinir þeirra endalaust sniðug og klár, ég held að þau séu miklu opnari og hugmyndaríkari en við vorum (fyrir 30 árum u.þ.b.) þá var í tísku að vera alvarlegur, lesa sorgleg ljóð og hörmungasögur.............og hafa áhuga á pólitík.
Það eina sem ég get sett út á unglinga er að mér finnst eins og þau hafi minni orðaforða en þau þurfa til að koma frá sér öllum þessum frábæru hugmyndum. Það var sagt mér, eða hvað!
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 24.6.2008 kl. 00:20
Þeir unglingar sem ég hef þekkt í gegnum tíðina hafa verið svona upp og ofan
, en langflestir þeirra hafa verið yndislegt fólk
, en það eru líka til leiðindafrekjur í þessum aldurshóp eins og öllum öðrum aldurshópum, ekki satt?
.
Sigrún Jónsdóttir, 24.6.2008 kl. 00:22
Takk fyrir ykkar svör!

( Búin að reikna það út að það verði einhverntíma eftir 2030!)
..
...
Matthildur, ég bara verð að spyrja þig, er það þá ekki sniðugt að hafa áhuga á pólitík í dag?
Ég er svona lítill pólitíkus, og örugglega í hópi vitlausustu pólitíkusa, hlakka bara til að sjá hvernig ég verð í framtíðinni - því fyrst ætla ég að fara í skóla, svo ætla ég að verða leikkona og svo ætla ég að verða forseti Íslands
Og með orðaforðann, þá er þetta mjög svo satt hjá þér. Ég litla lesblindurófan, sem ég nú er, er að reyna að bæta mig í íslensku. Alltaf að finna ný orð og tek inn flottar setningar og nota óspart. - Finnst líka ótrúlega gaman að vitna í Síðasta bæinn í dalnum. ,, Réttu mér nú kistilinn a tarna " og fullt, fullt!
Svo er það mjög mikið þannig að það eru ensku sletturnar út í eitt, ég nota þær eins sjaldan og ég get reyndar, og núna þegar ég færði mig yfir á blog.is hætti ég því alveg réttara sagt. - Enda hrikalega illa á mig komin í enskunni
Oh, það er sko aðalega unglingaárin og fólk yfir 45 ára sem eru frekjur og leiðindaskjóður, Sigrún!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 24.6.2008 kl. 00:33
Nei nei við vorum ekkert hallærisleg, vorum bara að þroskast, á mínum unglingsárum var ekki í tísku að lesa ljóð og svoleiðis, þó maður hugsaði nú kannski eitthvað um pólitík, en það var bara gaman að lifa.
Það var rokkið, kókið, ísinn, tiggóið þetta Ameríska, það var dansað á daginn milli
3-6 að ógleymdum rúntinum og flottu köggunum, bara gaman.
Mér fannst ég ekki hallærisleg, en kannski fórum við í taugarnar á fullorðna fólkinu,
bara rétt eins og í dag. skil það ekki því ef unglingar fara í taugarnar á fullorðnum
hver á þá að tala við þau er þau þurfa að spjalla?
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.6.2008 kl. 07:28
Persónulega tek ég á mig krók ef ég sé hóp unglingsstráka (ca. 13-15 ára), þar sem þeir virðast flestir halda að þeir séu voða sniðugir ef þeir ná að garga eitthvað á eftir vegfarendum. Einir á vappi eru þeir voða meinlausir, en martröð í hóp. Síðan er ég að vinna með krökkum á milli 17 og 20 og þau virðast komin yfir þessa stæla.
Þegar ég var unglingur þótti mér verst að vera ekki jafn "scary" og unglingar voru þegar ég var krakki. Nú virðast unglingar aftur orðnir scary í augum krakka (ég heyrði á tal tveggja sex ára drengja um daginn; annar stakk upp á því að þeir spyrðu unglingsstrák sem stóð hjá hvort hann vissi hvenær sjoppan opnaði. Hinn svaraði "Nei, þetta er unglingur! Hann lemur okkur bara!")
Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 24.6.2008 kl. 08:22
Vitanlega er alltaf sniðugt og gott að hafa áhuga á pólitík, mér finnst þó að við höfum verið meira að spá í þessa hluti og verið alvarlegri. Pönkið gekk mikið út á að rakka niður og textar Bubba og annarra frá þessum tíma sýna vel hvað við vorum að spá í.
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 24.6.2008 kl. 09:14
Hef því miður ekki haft mikil samskifti við unglinga undanfarin ár. En unglingar í dag eru oft opnari en áður fyrr. Flestir alast upp því miður við litla eða enga málverndun og er það áhyggjuefni, þannig að orðaforðinn er alltaf að minnka.Þessu tekur maður stundum eftir. Einnig finnst mér unglingarnir oft á tíðum meira einmana en áður, of lítil samskifti við fullorðið fólk. Þó hef ég ekki áhyggjur af þeim, nema á stundum. Með beztu kveðju.
Bumba, 24.6.2008 kl. 10:49
Það er svo margt hér fyrir ofan sem ég get tekið undir. Unglingsaldurinn er í raun dásamlegur aldur ... en líka svolítið erfiður með öllu hormónaflæðinu og skapsveiflunum sem því getur fylgt. Sjálf átti ég í svona tilfinningabasli sem unglingur .. var mjög sveiflukennd í skapi. Annað hvort voða glöð og kát, eða frekar þung.
Unglingar, á öllum tímum, endurspegla þjóðfélagið og umhverfið sem þeir eru í.
Fyrst og fremst er félagsmótunin á heimilunum, síðan leikskólum/skólum og á unglingsárunum mótumst við mjög af félögunum líka. Þess vegna er mjög mikilvægt að velja sér góðan félagsskap. Félagsskapurinn á ekki að velja þig - þú átt að velja félagsskapinn. Krakkar með sterka sjálfsmynd geta þetta en hin sem eru með lélega sjálfsmynd fljóta oft með straumnum og þar kemur hætta á að þau geri eitthvað sem þau eru í raun alls ekkert sammála.
Því er það okkar foreldra og annarra í umhverfinu að byggja upp trausta sjálfsmynd einstaklinganna.
Ég var einu sinni að kenna í fermingarfræðslu í Hafnarfirði. Krakkarnir mínir sem voru árinu eldri ,,vöruðu" mig við að margir unglingar væru ókurteisir og erfiðir og ég myndi eflaust fá sjokk. Einnig kynnu þau mörg ekki að sýna virðingu í kirkjunni. Sjálf hef ég alltaf lagt ríka áherslu á kurteisi og mannasiði við mína krakka og koma vel fram svo þau vissu hvað þau voru að segja.
Þetta voru engar ýkjur, því miður. Nokkrir af þessum unglingum voru gjörsamlega ,,óalandi og óferjandi" hvað kurteisi varðaði EN flest voru þau bara allt í lagi og sum mjög fín.
Stutt seinna fór ég að vinna i tvær vikur fyrir austan, nánar tiltekið á Eiðum og Egilsstöðum og hitti þá krakkana þar. Viðhorf þeirra var allt öðruvísi, þau voru kurteis og alveg til fyrirmyndar, öll sem eitt.
Þetta er ég að segja vegna þess að unglingar læra það sem fyrir þeim er haft. Ef við fullorðna fólkið hegðum okkur eins og dónar, erum ókurteis og óstundvís verða unglingar þannig líka. Því miður.
Ég er viss um að þú ert ,,fyrirmyndarunglingur" og að mínu skapi!
..
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 24.6.2008 kl. 11:58
unglingar eru alveg frábærir og skemmtilegir ég á einn slíkan.Knús á þig Róslín mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 24.6.2008 kl. 12:25
Unglingar eru náttúrlega eins og allt annað fólk ljómandi góðar manneskjur. En þau sýna það misvel eins og annað fólk. Unglingum hættir enn frekar en öðrum til að draga dám af sínum sessunaut og haga sér kannski ekki alltaf nógu vel þegar þau eru í hóp. Unglingurinn í dag er ekkert verri með það í dag en hefur áður verið. En yfirhöfuð er hægt að höfða til skynseminnar í unglingunum sem stundum getur verið verra hjá fullorðnum.
Unglingurinn í dag er samt oft mjög skýr og fylgjast oft vel með. Þau hafa oft ákveðnar skoðanir og liggja ekkert á þeim. Sem mér finnst mjög gott svo lengi sem þetta eru sömu skoðanir og ég hef
nei, smá grín hjá mér.
Það er gaman að lesa bloggið þitt. Þú ert greinilega skýr einstaklingur.
Trilla (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 13:29
Takk kærlega fyrir þetta, langar að svara öllum, en sum eru svo samrýnd.
Er mjög sammála mörgu af þessu, takk fyrir!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 24.6.2008 kl. 20:40
Tek undir það sem sagt hefur verið hér fyrir ofan
Svanhildur Karlsdóttir, 25.6.2008 kl. 09:34
Elska unglinga, enda var ég unglingur frekar nýlega
Það er hinsvegar alveg þrautaganga að vera unglingaforeldri... þekki nokkra í þeim sporum sem eru hreinlega að missa geðheilsuna
I have my moments too. 
Gallinn við unglingsaldurinn er sá (vísindalega staðfest) að á þessum árum snýst lífið algerlega um eigin tilvist. Þetta stafar af ýmsum líkamlegum breytingum og hormónastarfsemi og veldur því að margir unglingar tileinka sér frávikahegðun sem svo eldist af þeim. Auðvitað brýst þetta út á mismunandi hátt en, eins og ég sagði, er þetta sannað og viðurkennt.
Hinsvegar eru unglingsárin tími fyrir foreldra til að tala almennilega við börnin sín og mér finnst þetta mjög skemmtilegt. Unglingar halda reyndar oft að foreldrarnir skilji þá ekki og ég verð að viðurkenna að margir foreldrar gera það ekki heldur. Úff hvað ég MAN eftir eigin unglingsaldri og vil ekki fara til baka!!! Kræst!
En þú ert frábært eintak af unglingi og líka unglingurinn minn og hinna sem ég þekki... sumir bara verða alltaf að testa hluti sem best er að sleppa og lenda þá í vandræðum.
JUST SAY NO
Ég er hérna komin í flokk með Signý hvað langlokur varðar.
Laufey Ólafsdóttir, 25.6.2008 kl. 11:34
...og til að bæta á langlokuna þá eru íslenskir unglingar alls ekki slæmir. Breskir unglingar valda mér t.d. miklum áhyggjum og er ég nú mjög fegin að hafa flutt þaðan. Veit að vinkonur mínar í Bretlandi eru mjög áhyggjufullar.
Laufey Ólafsdóttir, 25.6.2008 kl. 11:38
Unglingar eru yndislegir og upp til hópa mikið skynsamari og betri en þekktist hér áður fyrr. Ef við viljum læra eitthvað þá hlustum við á þau, því unglingar eru ennþá fullir af eldmóði, trú, vilja og orku til að breyta hlutunum rétt og hafa augun opin fyrir lausnum.
Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 25.6.2008 kl. 13:42
Að sjálfsögðu eru unglingar alltaf unglingar, eins misjafnir og þeir eru margir - sem betur fer. Sumir eru góðir, aðrir betri og svo enn aðrir ennþá betri - og svo einstaka sem er bara langbestur. Unglingar í dag eru ekkert betri né verri en hefur ætíð verið - í dag erum við bara fleiri og aðgengi að drykkjum og vímuefnum auðveldara þannig að það verður meira og meira áberandi ef eitthvað er miður.
Annars mættu margir fullorðnir pæla meira í því að vera meira með unglingunum sínum - kenna þeim betur á lífsleiðirnar og hjálpa þeim að læra rétt frá röngu. Við erum alltof mikið úti á vinnumarkaðinum og bara yfir höfuð of lítið með unglingunum sem eru alin upp sem "lyklabörn" ..
Tiger, 25.6.2008 kl. 17:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.