22.6.2008 | 17:24
Ósnert trampólín í 2 ár!
Í dag var sett upp eitthvað sem er uppi í öðrum hvorum garði hér allstaðar á Íslandi, tvær ágiskanir fáið þið.
Nei, það var ekki sett upp heitan pott en hann kemur þó seinna meir. Við settum upp trampólín ( finnst alltaf jafn asnalegt að skrifa það), eftir meira en tveggja ára bið. Litla trampólínið mitt, eða reyndar miðlungsstórt sem ég fékk sumarið 2004 eða 2005 þegar þessi bóla var að stækka.
Þá bjuggum við á Kirkjubrautinni og það var mjög glatt á hjalla þá, nágrannarnir þustu að til að prófa og allir svaka ánægðir.
Eins og margt sem ég fæ ( þið eruð örugglega farin að halda mig MIKLA dekurrófu..) þá fékk ég leið á því eftir sumarið 2006, eða mitt sumar frekar. Enda vorum við flutt og alltaf einhver að koma og spyrja hvort sá eða sú mætti ekki hoppa á trampólíninu. Ég var náttúrulega svolítið eigingjörn eins og ég er stundum ( þó aðallega á mat núna), og þóttist af og til ekki vera heima eða sagðist vera að fara á það sjálf.
Algjör frekja og ótrúlega skemmtileg við foreldra mína bað ég þó um svona litla sundlaug úr Byko 2006. Sundlaugin var notuð fyrir okkur Árdísi á góðum sólardegi og við hoppuðum af trampólíninu ofan í sundlaugina. Það var reynt með sömu sundlaug en í öðrum garði aftur held ég í fyrra eða svo, og reyndist okkur sem rennibraut.
Reyndar var svo sundlaugin notuð hálft sumarið undir fiska sem ég veiddi með vinum mínum, sem annað hvort frömdu sjálfsmorð ( já, greyið fiskarnir líða ekki svona dekur). Með því að hoppa þaðan uppúr og á grasið, eða þá að vondu hjartlausu kisurnar höfðu sótt þá uppúr!
Þetta víðfræga trampólín hefur ekki litið dagsins ljós frá því herrans ári 2006, ótrúlegt en satt, enda fékk ég svo allsvakalega í bakið þegar ég hoppaði að það var ekki hægt!
Í dag var svo slegið og fundið hlutina úr trampólíninu og skellt því upp, ég auðvitað litla frekjan byrjaði að hoppa á þessu æðislega trampólíni. Reyndar bað ég um að láta teypa öll samskeytin, enda vil ég ekki lenda í því að fæturnir detti af greyinu!
Mamma byrjaði svo að hoppa og notaði þá afsökun fyrir því að hoppa ekki hærra að hún þyrfti að finna jafnvægisskinið fyrst
!
En þessi trampólín geta verið stórhættuleg, en þar sem ég get ekki einu sinni farið í kollhnís á jörðu niðri, fer ég nú ekki að gera einhverjar æfingar. Annað en að detta á rassinn og hnén, kannski seinna kemur að loftfimleikum!
Annars hef ég afrekað það að mála gluggakistu í fyrirtækishúsinu fyrir HOPP fyrirtækið sem pabbi á í, þrifið ofnana þar líka og græjað kartöflur fyrir grillið í kvöld.
Sædís kemur heim á morgun og ég býst ekki við því að fá neitt frá henni, svo kemur held ég Rafn heim líka á morgun, æðislegt bara!
Knús á ykkur
E.s. Vonandi að þetta sé ekki of persónulegt blogg fyrir forsíðuna, enda varð ég bara að skrifa um þetta
!
Og til að gera þetta OFUR persónulegt blogg vil ég benda fólki á að kíkja endilega á þetta flotta lag http://uk.youtube.com/watch?v=aKR0NkRbgng , þar sem æskuvinkona mín, sem býr núna í Danmörku er að syngja. Reyndar í bakrödd, en hvað um það, hvað um það, hún er þó betri söngkona fyrir vikið. En krakkar frá hennar skóla ásamt henni unnu keppni á milli skóla þarna í Danmörku með lagakeppni og söng. Vinkona mín heitir Þórdís Imsland, frábær karakter og ég get ekki sagt ykkur hvað mér þykir vænt um þessa flottu stelpu. Þó við séum svo oft ósammála þá erum við alltaf vinkonur. Hún flytur heim bráðum og mikið rosalega verður gott og gaman að hafa þessa æðislegu vinkonu mína nærri mér. Enda búin að búa í Danaveldi í einhver ár.
Vonandi njótið þið þess að hlusta á þetta lag, og hlustið vel á bakröddina!
GJÖRÐU SVO VEL ÞÓRDÍS MÍN

Athugasemdir
Jæja það er þá komið upp trampólínið, og svo ertu búin að vera svo dugleg
Milla.
Svo tekur vinnan við á morgun hjá þér gaman gaman.
Knús
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 22.6.2008 kl. 18:12
Það týndi sig sjálft upp, þetta grey!
!!!!
Ég reyni hvað ég get að vera dugleg, tekst bara misvel
Vinnan já á morgun, og æfing kl. 5.30, á allt of ókristilegum tíma
Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.6.2008 kl. 18:18
Þetta er ekkert persónulegt blogg fyrir forsíðuna bara flott hjá þér mín kæra Róslín mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 22.6.2008 kl. 20:19
Hjúkket!

Takk fyrir Katla mín
Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.6.2008 kl. 20:26
Mér þykir líka vænt um þig Þórdís mín
Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.6.2008 kl. 20:43
Farðu varlega á trampólininu!! ..
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 22.6.2008 kl. 22:11
Já þökk fyrir það! Segðu það þó frekar við móður mína
!!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.6.2008 kl. 22:12
Rósin mín ætla nú bara að svara þér hér svo þú lesir þetta.
Ég tek því aldrei þannig að þú sért að skamma mig, þú mátt segja hvað sem er,
ég er ekki spéhrædd skjóðan mín, ég var nú eigin lega að segja þér hvað ég væri vond við Engilinn minn, hafði ekkert sinnt honum allan daginn.
Um morguninn vorum við reyndar bæði að snúllast í litla ljósinu, er hún var farin heim þá settist ég bara niður og var í tölvunni, þar til hann spurði hvort ég vildi nýlagað úti á palli, auðvitað varð ég að þiggja það.
Mér þykir undur vænt um þig skjóðan mín og þú þarft ekki að halda að ég móðgist yfir hvorki einu eða neinu.
Eigðu góðan dag í vinnunni. Og kemur ekki Rafn í dag?
Knús kveðjur
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.6.2008 kl. 07:21
Ég passa mömmu mjög vel Sigga mín, hún hoppar hvort eð er ekki svo hátt!
. Allavega meina ég ekkert illt!
.

Milla, mér dettur ekki í hug að segja hvað sem er við þig, ekki vott af illsku allavega
Það var fallegt af honum að hella upp á kaffi, var ekki gott veður hjá ykkur þá ?
Mér þykir líka vænt um þig Milla mín, að ég vil ekki móðga þig
Þakka þér fyrir, og jú Rafn kemur heim í kvöld!
Knús á þig
Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.6.2008 kl. 12:26
Þú móðgar nú engan, en ef þá látum við þig vita
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.6.2008 kl. 13:33
Farðu varlega á þessu hoppisloppidótaríi, þetta er stórhættulegt ef ekki er öryggisnet. Og í guðanna bænum passaðu líka mömmu þína ef að hún er að skoppa á þessu.
Bestu kveðjur til þín sætust.
Linda litla, 23.6.2008 kl. 15:22
Gaman að lesa svona skemmtilegt og persónulegt blogg þó svo að við þekkjumst ekki neitt
en þó eru þarna tvær setningar sem eru í hróplegu ósamræmi við restina af textanum (málfræðilega séð) og langar mig til að benda þér á þær.
Ég er að vona að þú sjáir betur núna hvað er svona rangt við þessar setningar því þú lærir meira á því heldur en ef ég bara leiðrétti þig
Endilega haltu svo áfram ótrauð að blogga og vera þú sjálf, gangi þér vel.
Kær kveðja
Ísdrottningin
Ísdrottningin, 23.6.2008 kl. 15:48
Krakkarnir mínir eru búnir að suða um tranbolín í 3 ár og það er sko ekkert á leiðinni í garðinn okkar. Við búunm í roklandi og ég er ekki tilbúin að henda 20-30 þús. kr. út í vindinn, nei við fengum okkur bara heitann pott og þar er krökkunum velkomið að svamla þegar veður leifir.
Hulda Sigurðardóttir, 23.6.2008 kl. 16:26
Takk Milla, endilega gerið það!

Það er ekkert öryggisnet á mínu Linda, enda geri ég lítið annað en að hoppa á því ( engin flikk flakk heljarstökk). Og ég vona að mamma fari ekki að gera neitt slíkt heldur!
Takk fyrir þetta Ísdrottning, annars á ég það oft til að skrifa bandvitlausar setningar, en það er bara gaman af því. Tala fólk oft í hringi svo þetta er nú ekkert
Já einmitt Hulda, en það er hægt að kaupa svona lítið og sætt eins og ég á. Hérna kemur af og til vont veður en í garðinum mínum er oftast logn. Það er bara þá að negla það niður eða eitthvað svoleiðis!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.6.2008 kl. 16:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.