Kvennafótbolti / Ísland 5 - Slóvenía 0

FÓTBOLTI er í lífi margra stúlkna, sumar stefna hátt, aðrar eru bara upp á félagsskapinn. Tökum Margréti Láru sem dæmi, hún kom til okkar í sumar með fyrirlestur og æfingu. Hún var á hverjum degi úti í fótbolta með strákum að æfa sig. Hún er núna ein besta fótboltakona sögu Íslands. Stelpur taka t.d. Eið Smára eða Beckham sem fyrirmynd og líta ekki við Margréti Láru, Þóru B. Helgadóttur og Ásthildi Helgadóttur svo einhverjar séu nefndar.
Ég hef reynt að fylgjast með Landsbankadeild kvenna og er frekar ósátt við hvað leikirnir hafa verið auglýstir lítið og fáir sýndir í sjónvarpi. Íslenska landsliðið hefur staðið sig með prýði, mjög lítið er talað um það. En það er verið að grobba sig af því að strákarnir hafi farið upp um frekar mörg sæti á meðan stelpurnar eru efstar í sínum riðli.
En ég er stolt af Ríkissjónvarpinu að sýna frá kvennafótboltanum. Ég reyni að fylgjast með leikjunum og þar eru margar mjög góðar stelpur. En ég ef æft fótbolta frá 6 ára aldri og er orðin 14 ára. Ég er í marki og má glöð segja frá því að í fyrrasumar urðum við stelpurnar frá Hornafirði Íslandsmeistarar í 4. flokki kvenna í 7 manna bolta.
Mig langar að koma því á framfæri að fólk eigi að vera mjög stolt af sínum stelpum og að það eigi að auglýsa kvennaboltann meira.


Þessa grein skrifaði ég í fyrra, ótrúlega ósátt með það hvað fáir standa við bakið á flottu stelpunum okkar í landsliðinu. Ekki svo margir fylltu upp í stúkuna og ég er hrikalega ósátt með fólk sem kemst á leikina en fer ekki.
Ég fylgdist með úr fjarlægð, 500 km fjarlægð. Horfði á þessar flottu dömur sem við eigum í sjónvarpinu og lifði mig inn í stemninguna á vellinum, klappaði með og kallaði á þær..

Mætti snemma á æfingu, eða kl. 10 í morgun og skrapp heim og út í búð og aftur út á völl fyrir 12. Þetta gerði ég allt hjólandi á hálftíma alveg að svelta úr hungri Tounge . Um hádegi var svo knattspyrnudagur stúlkna, knattþrautir fyrir stelpur og konur reyndar líka. Hitti þarna litlu vinkonu mína hana Arney, systur Bríetar sem er að spila með mér í fótboltanum. Skvísan er 9 ára í dag!
Skemmti mér konunglega og dreif mig reyndar hægt heim. Leikurinn var svo stilltur á eftir sturtu, og áður en ég fór í sturtuna faldi ég nammið mitt undir koddanum. Þóttist svo vera að laumast í töskuna og renna henni svo mamma héldi að ég skildi við nammið þarLoL ..
Auðvitað spurði mamma þegar ég kom út af baðinu með handklæðið vaðið utan um höfuðið á mér, hvort ég hefði nú falið nammið. Hún sagði að ég væri ljót við mömmu mínaLoL !

Eftir daginn í dag held ég að ég sé komin með sólsting, enda erum við sólin langt frá því að vera bestu vinkonur. Er líka ótrúlega rauð og sæt í framan og var að reyna að sannfæra mömmu um að ég hafi fengið lit á hendurnar. Það gengur ver heldur en að fela nammið fyrir henni.

P6210771

Skelli hérna mynd eftir smá af listaverkum við ljóð sem ég skreytti og ritaði niður á blað held ég alveg örugglega. Síðan ég var í 3. bekk, bara krúttlegtJoyful !Heart

Hér stendur orðrétt fyrir þá sem ekki sjá það ( mikið krúttlegra svona beint upp úr bókinni heldur en að vera að leiðrétta);

Vorið er fallegt
Vindurir feikir vorinu burt
og sólin varað fara. Og krakkarnir
í níu stígvélunum.
    og svo kemur vorið.


Höfundur Róslín Alma Valemars

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þú ert nú meiri Rósin, krúttlegt.

Fótbolti eins og allar aðrar Íþróttir er snerta kvenfólk, börn og fatlaða komast ekki að í sjónvarpi, nema til skammar sé.
En við eigum flottar fótboltastelpur og gaman að þær skildu vinna, það er miklu meiri kraftur og við höldum það út sem við ætlum okkur.

Skömmin þín gafstu mömmu þinni ekki neitt nammi, fékk hún ekki einu sinni með þér yfir leiknum? Trúi þessu alveg á þig, mínar láta líka svona, þær kaupa heldur aldrei neitt sem mér líkar annars eru þið ágætar fyrir því.
                             Knús kram
                             Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.6.2008 kl. 18:05

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk

Já einmitt, allflest sem karlmenn keppa ekki í, er ekki sýnt, því miður.
Núna eru þær svo stutt frá því að komast á EM að við þurfum að sýna þeim allan stuðning sem þær þurfa á að halda. Ef ég gæti og mætti, þá hefði ég bæði mætt á leikinn í dag og á leikinn á fimmtudaginn. Því miður er ekki einmitt besti tíminn svo ég fylgist með úr þessari miklu fjarlægð.

Milla mín, vertu salla róleg, ég gaf auðvitað mömmu nokkur stykki, enda borðaði hún flest súkkulaðið mitt og svoleiðis gotterí. Ég og mamma erum með allt of líkan nammi smekk, svo við getum setið sælar með sama pokann..

Róslín A. Valdemarsdóttir, 21.6.2008 kl. 18:17

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þóttist nú alveg vita það mátti bara til að stríða þér svolítið, snúllurnar mínar kaupa nú yfirleitt handa ömmu sinni osta og svoleiðis gott gott vill það frekar en sælgæti, nema ef ég fæ eðalkonfekt, nammi namm.
Við fylgjumst með stelpunum okkar úr fjarlægð.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.6.2008 kl. 19:16

4 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Mér datt það svosem í hug.
Ostar eru rosa góðir með ritz kexi, m m m!
Ég er ekkert sammála með eðalkonfekt, oj oj oj!

Já, það er betra en að fylgjast ekki með þeim!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 21.6.2008 kl. 19:50

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þær stóðu sig vel stelpurnar. Skemmtileg færslan þín Róslín mín

Kristín Katla Árnadóttir, 21.6.2008 kl. 20:29

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk Katla mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 21.6.2008 kl. 20:48

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Rósin mín allter betra en að gera ekki neitt.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.6.2008 kl. 20:51

8 Smámynd: Róbert Þórhallsson

Íslensku stelpurnar eru að standa sig mun betur en strákarnir. Ég er alveg sammála þér að þær eiga skilið meiri athygli, enda eru þær að rúlla upp sínum leikjum.

Þú átt augljóslega eftir að gera stóra hluti í framtíðinni, ég vona að þú haldir áfram að láta skoðanir þinar í ljós - mjög flott blogg hjá þér!

Róbert Þórhallsson, 21.6.2008 kl. 22:40

9 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég er alveg sammála þér Milla mín

Já, þær eiga það svo sannarlega skilið stelpurnar okkar.
En kærar þakkir fyrir hrósið!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 21.6.2008 kl. 22:45

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Kvennalandsliðið er að gera góða hluti og standa sig vel.  Það gerir þú líka Róslín mín

Sigrún Jónsdóttir, 21.6.2008 kl. 22:45

11 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk æðislega Sigrún, en er þetta alltsaman ekki orðið alltof væmið?
Nei, ég segi svona, ég kann vel að meta svona góð orð, og væmnina vil ég frekar heldur en eitthvað annað..

Róslín A. Valdemarsdóttir, 21.6.2008 kl. 22:47

12 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ég ætla að halda áfram að vera væmin til hamingju þú ert bara alltaf á topp 10
birtist bara á skjánum er maður fær upp moggann.
Ekkert skrýtið þú ert bara frábær Rósin mín.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 22.6.2008 kl. 09:29

13 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Já, takk æðislega fyrir Milla mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.6.2008 kl. 09:36

14 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég get svo svarið það, mér finnst fótbolti svo miklu skemmtilegri íþrótt heldur en fimleikar.
Ekki myndi ég nenna að sitja yfir þeim í sjónvarpi, það er allt í lagi með ólympíuleika og slíkt, en að sýna þá jafnt og þétt, þá myndi ég taka sjónvarpskapalinn úr sambandi, eða reyna að losa mig við þá stöð!

Með fyllstu virðingu fyrir fimleikum og fimleikafólki, þá er ekki hægt að sitja yfir sjónvarpinu, klappandi eða öskrandi á liðið, það bara passar engan veginn saman!
E.s. Svo þegar ég var í fimleikum þegar ég var lítil, var ég bara sett þangað vegna hreyfinga. Átti vandamál með fínar hreyfingar og mér fannst ekkert svakalega gaman. Svo skammast ég mín ekkert fyrir það en;
ÉG KANN EKKI EINU SINNI AÐ FARA Í KOLLHNÍS!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.6.2008 kl. 16:03

15 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Frábær sigur íslensku stelpunum á þeim slóvensku í gær,samt var ótrúlegt að sjá hvað slóvensku stelpurnar lágu oft á vellinum við minstu snertingu en okkar stelpur mun líkamlega sterkari en svo er bara að taka Grikkina á fimmtudaginn.

Góð færsla hjá þér Róslín mín.

Magnús Paul Korntop, 22.6.2008 kl. 17:01

16 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Sumar stelpur eru bara viðkvæmari en aðrar, ótrúlegt alveg hreint!
En þakka þér fyrir það

Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.6.2008 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband