20.6.2008 | 22:41
Á ALLRA VÖRUM
Núna sit ég við tölvuna með sjónvarp við hliðin á mér. Ég er að horfa á Á allra vörum. Þarna sitja margar og standa ótrúlega flottar konur, allar saman komnar. Svanhildur frá stöð 2 og Helga Braga okkar einlæga leikkona horfðu á fréttamanna Stöðvar 2 raka af sér skeggið.
Mikið rosalega er ég ánægð að hann gerði þetta, 100 þúsund krónur og skeggið fauk af. Maðurinn er nú mikið myndarlegri svona, það má karlanginn eiga!
Þarna sitja flottar konur við símann leikkonur, fyrrverandi forseti Íslands og stjórnmálakonur og alskyns konur bara! Vigdís Finnbogadóttir er búin að kíkja við á skjáinn og Sólveig Arnarsdóttir. Þær máttu voða lítið vera að því að tala, enda á fullu í símanum.
Þetta er gott framtak, Íslendingar og aðrir sem geta gefið, konur og karlar, gefið ef þið getið!
Svo vill svo skemmtilega til að ég þekki eina þarna í þættinum ágætlega, hana Dísu sem er á trommunum, hljómborðinu og tíng tong-inu!
Já sko mig, ég þekki tvær í þættinum, hún Hafdís sagði sína sögu, hún er með mér í ljósmyndagrúbbunni Konur og Ljósmyndir. Hún er einstakur ljósmyndari, og ótrúlega hlý kona. Ég kunni strax vel við hana þegar ég hitti hana. Tek vel undir mottóið hennar; Lifum lífinu lifandi.

Athugasemdir
Knús á þig ég er búinn að gefa í söfnunin.
Kristín Katla Árnadóttir, 20.6.2008 kl. 23:08
Flottur þáttur fyrir gott málefni.
Munum að sælla er að gefa en að þiggja.
Heidi Strand, 20.6.2008 kl. 23:11
Það er æðislegt Katla mín
Róslín A. Valdemarsdóttir, 20.6.2008 kl. 23:12
Ég tek undir orðin þín Heidi
Róslín A. Valdemarsdóttir, 20.6.2008 kl. 23:12
Enn og aftur sýndir Kolfinna Baldvins að hún getur alveg upp á eigin spítur gjörsamlega rústað góðu íslensku sjónvarpsefni.
S. Lúther Gestsson, 20.6.2008 kl. 23:14
Hey, hey!
Ekkert svona....
Róslín A. Valdemarsdóttir, 20.6.2008 kl. 23:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.