19.6.2008 | 20:38
"Sálfræðifærsla"
Á Íslandi eru nóg af fólki, allskonar fólki með ólíkar hliðar og skoðanir. Fólkið í kringum okkur er jafn mismunandi og það er margt, og til er fólk sem maður þarf að umgangast þó manni líkar ekki vel við.
Á lífsleiðinni kynnumst við hinum og þessum, þessi verður mjög góður vinur. En hinn verður bara kunningi, eftir nokkur ár verður góði vinurinn horfinn og kunninginn verður ávallt við hlið manns, sem góður vinur.
Fólk hverfur í burtu í einhvern tíma og hefur ekki samband, en kemur svo til manns alveg hrikalega ánægt að sjá mann. Þó vinir hittast ekki alltaf og fólk, veit það að það á einhvern til að treysta á.
En við í 3. flokki kvenna erum komnar aftur saman, þessi sterki hópur sem ekkert gat grandað árið 2006. Við fórum í gegnum fótboltasumarið með stæl, unnum Austurlandsriðilinn með glæsibrag, enginn tapleikur. Þegar við fórum til Grundafjarðar var það eina í huganum á okkur, við sáum fyrir okkur í einhverju blaðinu;
4. flokkur kvenna í Sindra ÍSLANDSMEISTARAR
Við komumst svona langt drauminum, að í einum leiknum vorum við 1-3 eða 0-2 undir og þrjár mínútur eftir. Stelpurnar stóðu sig eins og hetjur og röðuðu inn mörkunum, Sindraskvísur komust með sigur af hólmi í þeim leik!!
Í öðrum leik var sífelld sókn á mig, ég varði eins og mér væri borgað fyrir það, fékk spark í bakið en kláraði leikinn þó frekar meidd í bakinu. Og við unnum þann leik 4-1!
Í efri röð frá vinstri; Bríet, Guðlaug Margrét, Iðunn Tara, Lejla Cardaklija, Brynja Rut, Chakki.
Í neðri röð frá vinstri; Árdís Drífa, Bjarney Jóna, Karitas Björt, Kristjana Hafdal og Lára.
Í neðstu röð ; RÓSLÍN ALMA VALDEMARSDÓTTIR
4. flokkur kvenna með verðlaunin sín, sem við áttum svo sannarlega skilið. Tvær stúlknanna eru ekki meðal hópsins í dag, önnur flutt til Reykjavíkur og hin hætt að spila. Þjálfarinn hann Chakki er hættur að þjálfa og Jóna Benný og Sandra Sigmunds. komu í hans stað.
En á morgun mætum við Leikni Reykjavík, og þær eiga svo sannarlega sterkt lið, og ef við stelpurnar förum inn í leikinn með fullan áhuga og vilja, vitum við aldrei hvernig leikurinn endar.
Sendi ykkur öllum knús og til hamingju með daginn stelpur!!

Athugasemdir
Gangi ykkur alveg rosalega vel
Sömuleiðis
Sigrún Jónsdóttir, 19.6.2008 kl. 20:54
Svakalega er þetta flottur hópur!! ... og þú flott þarna fremst auðvitað.
Skemmtilegar pælingar hjá þér varðandi vini og kunningja. Suma vini eigum við alla ævi, sumum kynnumst við bara stutta stund. Sumir týnast en sumum týnir maður aldrei ...
Knús
.. og til lukku með daginn.
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 19.6.2008 kl. 21:06
Takk Sigrún mín

og takk sömuleiðis.
Takk fyrir það Jóhanna
Svona er lífið, við kynnumst alskonar persónuleikum, hvort sem þau eru ýkt, sár, góð, lygin og ég get talið lengi áfram. Það þarf bara að bregðast rétt við hverjum og einum, og þannig sýnir maður hvernig vinur maður er.
Knús
Róslín A. Valdemarsdóttir, 19.6.2008 kl. 21:09
Sjá þig þarna gellan þín, liggur bara fremst.... greinilega flottust
Til hamingju með daginn sætust
Linda litla, 19.6.2008 kl. 22:14
Ég er sko markkvenndi, svo endilega þarf sá leikmaður að liggja fremstur
Enda gegnir mikilvægu hlutverki, sú eina sem má taka boltann með höndum
...

Takk takk, sömuleiðis
Róslín A. Valdemarsdóttir, 19.6.2008 kl. 22:19
Hæ Róslín.
Áfram Sindri!!! hehe...
Skemmtilegt alltaf að koma hérna inn og lesa bloggin þín.
Ohh hvað rifjaðist upp góðar minningar þegar ég las um fótboltasöguna þína. Á sko margar góðar minningar þegar ég var í boltanum á Höfn fyrir "milljón" árum
Kvitt og knús á þig mín kæra.
Guðbjörg Valdís (IP-tala skráð) 20.6.2008 kl. 00:18
"við eigum markmann, já markmann, með snerpu boltann tekur......"við erum í liði Sindra, og enginn skal okkur hindra, að koma með sigur úr hverjum leik!!!"
Til hamingju með þetta.
Svanfríður (IP-tala skráð) 20.6.2008 kl. 04:28
Hæ Gugga mín!
.....

Takk fyrir það
Já, við Sindraliðið unga og gamla eigum öll margar góðar minningar, og líka einhverjar vondar. En já, þú ert eeeeldgömul
Knús
Einmitt það Svanfríður, þetta lag er ekki jafn vinsælt og það hefur verið, en flestir kunna það þó. Líka þessi "gömlu" greinilega
En takk fyrir!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 20.6.2008 kl. 08:10
Þú er flottust hafðu það gott Róslín mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 20.6.2008 kl. 16:04
Takk fyrir þetta hól elsku Hallgerður mín

Já takk Katla
Róslín A. Valdemarsdóttir, 20.6.2008 kl. 20:01
Þú ert sko "Framtíð Íslands!"
Þú ert flestum okkar yngst hér á blogginu og ert nú þegar mörgum númerum stærri en meiri hluti þeirra sem hérna láta ljós sitt skína.
Árni Gunnarsson, 21.6.2008 kl. 16:14
Nú skil ég ekki, ertu að meina að ég sé orðin "framtíð Íslands" eða er þetta kaldhæðni?...
Róslín A. Valdemarsdóttir, 21.6.2008 kl. 16:23
Unga mær. Þú setur þetta sjálf inn í kynninguna og ég er bara að segja þér frá því að ég er því svo hjartanlega sammála.
Mér finnst þú "alveg æðisleg" eins og þín kynslóð er vön að segja.
Árni Gunnarsson, 22.6.2008 kl. 19:55
Þakka þér kærlega fyrir það!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.6.2008 kl. 20:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.