Er innflutt sælgæti útrunnið?

Það er sagt að þegar fólki dreymir, er heilinn að taka til í huganum. Ýmsar myndir poppa upp með hljóðum og þessháttar í kollinum á okkur og við lifum okkur inn í drauminn.

Mig dreymdi fyrir nokkrum dögum að í fréttum væri verið að tala um að innflutt sælgæti væri útrunnið. Fréttatíminn var á Stöð 2 og í sama umhverfi og fréttamennirnir eru í, og mjög svo kunnugleg rödd. Þar birtust myndir úr Europrise og þeim keðjum sem flytja inn sælgæti, sælgætið sem flokkast undir " bland í poka " sælgætið.
Ég gekk þar af leiðandi inn í búð í einhverjum verslunarklasanum í Reykjavík, í draumnum, og fór og kannaði málið, reyndar lenti ég í því að kaupa bland í poka í staðinn fyrir að kanna þetta. En þá var ég vöruð við því að þetta væri útrunnið.
Seinna í fréttum kom svo í ljós að sælgætið sem var innflutt hafi verið selt áður í búðum í Danmörku og einhverju öðru landi. En það seldist ekki þar svo að það var beðið í nokkra mánuði og sent svo til Íslands í sölu. Fyrirtækjaeigendur áttu víst að hafa vitað þetta og voru ákærðir fyrir að hafa selt lengi útrunnin varning. Og var sælgætið gert upptækt og fyrirtækin yfirheyrð.

Ég held að ég hafi verið að hugsa mikið um nammi þennan dag og kveikt hafi verið á sjónvarpinu, á Stöð 2 um klukkan 06.00 um morguninn og ég sofandi. Þar af leiðandi flæktist þetta alltsaman í einn graut og varð að þessari útkomu.
Nú bíð ég bara og sé hvort ég sé berdreymin!

Annars af deginum í dag, þá var farið í fuglaskoðun í barnastarfinu og svo foreldrar barna hér á Höfn vita af því, þá er ég ein af þeim sem fylgir með í ferðirnar.
Við bjuggumst alls ekki við eins mikilli þátttöku, enda komu 19 krakkar, 5 sem voru búnir að skrá sig. Gengum um Óslandið og í gegnum kríuhrúguna, eins og í einni af fyrri færslum mínum líkar mér ekkert sérlega vel við þær. Og svo skemmtilega vildi til að ég var næst hæðst af öllum þarna.
Rétt í lok göngutúrsins við endann á þar sem kríurnar verpa, sáum við lítinn unga og krökkunum til mikillar skemmtunar var ég gogguð í hausinn. Sem betur fer var ég með tvær hettur á mér, en mikið svakalega brá mér!
Á leiðinni heim heilsaði ég þar tveimur strákum sem voru þarna fyrr um daginn í fuglaskoðuninni, og þeir voru sko á leið út í Akurey!
Rakst líka á yngri stelpu sem sat grátandi og hjólið liggjandi á gangstéttinni, ég gerðist djörf og stoppaði og gekk til hennar. Spurði hvort það væri allt í lagi, hvort hún hafi dottið af hjólinu. Hún sagði mér greyið að hún hafi rekið petalan í kálfann á sér. Ég spurði hana hvort hún vildi að ég gengi með henni og hjólinu það sem hún væri að fara, en hún afþakkaði það þóSmile ..

Svo að afrekin voru tvö í dag, svo reyndar það þriðja að segja frá draumnum, enda er ég ótrúlega skrítin þegar drauma er um að ræða.

Eigið gott kvöldHeart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hvaða hvaða, þetta er nú bara undirmeðvitundar-draumur.
                           Knús Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.6.2008 kl. 19:25

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Það væri svolítið fyndið ef þetta mál kemur svo upp seinna meir
Knúsknús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 18.6.2008 kl. 19:37

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Fallegt af þér að líta til stelpunnar sem meiddi sig á hjólinu.  Draumurinn þinn var augljóslega mjög sætur!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 18.6.2008 kl. 20:14

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gaman af pistlinum þínum. Knús

Kristín Katla Árnadóttir, 18.6.2008 kl. 20:17

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Jóhanna, hér þekkja flestir flesta, svo ég varð bara að gera þetta, ljótt að hjóla framhjá henni og láta eins og ég hafi ekki séð hana. Hún horfði líka á mig með tárin í augunum þegar ég hjólaði að henni...
Já hann var ekkert smá sætur, held að 17. júní sleikjóarnir höfðu verið að flækjast inn í hann

Takk Katla mín, knús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 18.6.2008 kl. 20:46

6 Smámynd: Signý

HAHAHAHAHA! vá... þetta er alveg með súrustu draumum sem ég hef heyrt um... gleður mig samt óskaplega að það er ekki bara ég sem dreymi svona ofboðslegt rugl...

En sammála þér um Kríurnar... þessir fuglar eru alveg óþolandi... allt of mikið attitude problem í gangi þarna.... 

Signý, 19.6.2008 kl. 01:22

7 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég var að velja tíma sem að systir mín myndi pottþétt ekki lesa þetta ( hún er á lei til Danmerkur ), og þá kemur þú Signý með þetta!
Já þú ert ekki ein, við eigum greinilega það sameiginlegt líka.
Svona værum við, eins og kríurnar bara í mannsmynd, allir eins og eini munurinn hvers kyns maður væri!

Sömuleiðis Hallgerður mín. Ég skal gera það seinna í dag, er í tölvunni í vinnunni..
Mér finnst krían ekkert fallegri en aðrir fuglar...

Róslín A. Valdemarsdóttir, 19.6.2008 kl. 12:39

8 Smámynd: Bumba

Ábyggilega útrunnið nákvæmlega eins og mest af grænmetinu sem flutt er inn. Með beztu kveðju.

Bumba, 19.6.2008 kl. 15:18

9 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ertu berdreymin? annars gæti ég alveg trúað þessu, t.d. með nammið sem er selt í lausu, þar eru engar merkingar sjáanlegar.

Til hamingju með daginn Róslín mín

Huld S. Ringsted, 19.6.2008 kl. 15:46

10 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Einmitt Bumba!

Huld, ég veit nefnilega ekki, það gæti verið! Ég er að meina þetta lausa, það verður að fara að kanna þetta!

Til hamingju með daginn sömuleiðis takk Huld mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 19.6.2008 kl. 16:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband