Trú,17. júní og tómatar!!!

Bjarndýravandamálið í þetta skiptið er úr sögunni, greyið mitt hvíta og fríða fór upp til himna ásamt bræðrum sínum og systrum.
En það er ekki það sem ég ætla að tala um, ég vil nýta mér tækifærið, því þar sem Halla Rut bloggvinkona hefur talað um svipaða hluti og Anna K. Kristjánsdóttir önnur bloggvinkona mín var skömmuð fyrir að grínast örlítið með.

Við trúum öll á eitthvað eða einhvern, sama í hvaða samhengi það er sett. En trú er það sem ég tala um í þessu tilfelli, ég get ekki nefnt allar trúir í heiminum í dag, enda finnst mér ég ekki eiga að vita þær allar.
Í sumum trúum er það svo slæmt að trúin snýst bara um það að karlmenn ráði öllu og konurnar mega ekkert gera, það má aðeins sjást augun á sumum og sumstaðar mega konur ekki keyra bíl.
Að vissu leyti eru kynréttindin að gera sig hér á landi, en þarna eru karlar stjórnendur og konur eitthvað sem ekki má hafa skoðun í flestum tilvikum.
Í mínum huga finnst mér þetta ekki vera trú heldur kynjamismunur, því þar þurfa konur að lúta.

Þá kemur helst þetta lag ,, don't worry, be happy " og orðið ,, Peace "....Errm

En að öðru, þá sýnist mér ég vera dottin úr hópi forsíðubloggara ( nei, eða ekki...LoL ), og þakka gott innlit, greinilega margir sem höfðu áhuga á skrifunum mínum, og þakka fyrir tækifærið.

Í dag var ég í fyrsta gír, brosmild og stríðin, aftan við þjónustuborð. Við vorum að selja fyrir Noregsferðinni og ég var svo rosalega tilbúin fyrir þennan dag. ÚT OG TALA VIÐ FULLT, FULLT af fólki, mér finnst það æðislegtInLove Grin ...
Brosti mikið til fólks og hló með því og að því, upp á glensið og því það er nú 17. júní.
Bannaði sumum að skoða úrvalið á meðan ég sagði við aðra að ég myndi ekki aðstoða þau, vegna þess hve mikið þau væru búin að kaupaHalo ....

ÉG VIL LÍKA TALA UM TÓMATAAUGLÝSINGUNA
sem ég sá í einhverju blaðinu sem ég var að skoða, punkta um tómata, frá íslensku grænmeti. Ástarepli er þetta kallað á Ítalíu, ef tómatar geymast í ísskáp versna þeir víst eitthvað. OG ALLRA SÍÐASTI punkturinn um tómatana er sá að þeir gera sýn okkar betur!!!
Ég held ég hafi aldrei heyrt neitt svona vitlaust, eða jú nú lýg ég. En ég get svo sem alls ekki verið sammála þessu, margir jafnaldrar mínir þurfa eflaust lesgleraugu og svoleiðis, eru fjarsýnir eða nærsýnir. En voru það ekki áður, og öll borða þau nú tómata.
Ég og minn matarsmekkur höfum reynt að narta í þessi rauðu ástarepli Ítala, og þetta er bara súrt og rautt. Og það allra hlægilegasta við þetta alltsaman er að ég er með fullkomna sjón. ( Píri bara augun þegar ég er að reyna að sjá hvað klukkan er á venjulega klukku, því ég kann bara örlítið á hana og er að reyna að sjá út hvað hún er...Blush )

Ég held ég sofni sátt, þreytt og hlakkandi til morgundagsins.. og vakni með stírurnar í augunum og harðsperrurnar í kinnunum...LoL

Knús á ykkurHeart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halla Rut

Þú skrifar svo skemmtilega Róslín. "en þarna eru karlar stjórnendur og konur eitthvað sem ekki má hafa skoðun í flestum tilvikum." Þetta er svo vel sagt en samt svo einfalt.

Ég bara bíð spennt að sjá hvað verður úr þér. Ég hef svo stórar hugmyndir um þig. 

Halla Rut , 17.6.2008 kl. 21:48

2 Smámynd: Halla Rut

Vá. þú ert bara á forsíðublogginu.....U go girl.

Halla Rut , 17.6.2008 kl. 21:52

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Halla Rut mín, ég get sagt þér það að oft kemur eitthvað út úr mér sem eru 3 samsettar setningar sem gætu verið einfaldar 7 orða setningar....

Ég bíð líka spennt, kannski verð ég bara atvinnumaður í styttubóni.... hver veit!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.6.2008 kl. 21:52

4 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Eða þá að ég verði frekja........ æ ég vorkenni manninum ennþá!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.6.2008 kl. 21:53

5 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Innlitskvitt og velkomin í bloggvinahópinn,hingað mun ég kíkja oft.

Magnús Paul Korntop, 18.6.2008 kl. 00:21

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Knús á góðum degi Róslín mín "forsíðudrottning"

Sigrún Jónsdóttir, 18.6.2008 kl. 12:19

7 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Já Brynhildur, það er margt satt og rétt sem þú segir hérna!

Takk sömuleiðis Magnús

Knús til baka á þig Sigrún mín

Hvernig má það vera Hallgerður mín, tölvan kannski ónýt!
Já ég komst á forsíðuna, með svolítilli frekju, en stundum verður maður bara að berja í borðið og segja hingað og ekki lengra....
En hversvegna segirðu að þeir eigi að passa sig á mér?

Róslín A. Valdemarsdóttir, 18.6.2008 kl. 16:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband