Djöfulsins móðursýkin gerir Íslendinga útdauða á endanum

Hvað á að draga þessar fréttir og teygja mikið, þetta er orðið verra en undankeppnin fyrir Júróvísjón nú fyrr í ár.
Ég get svo svarið það, Íslendingar gera ALLT til að fréttir lifi sem lengst. Endalaust er verið að teygja úr þessum sér íslensku fréttum. Fyrst voru það jarðskjálftarnir, eru þeir ennþá?
Móðursýkin var orðin svo mikið að fólk var farið að vorkenna okkar löndum meira og sýndu Japanabúum miklu minni samúð, þar sem fjöldi fólks fórst í þessum sömu hamförum (jarðskjálftunum).
Þökkum fyrir það að enginn lést, enginn meiddist alvarlega og bara fáir misstu heimili sín, en þau eru eflaust vel hýst og fá borgað flestar skemmdir.
Á tímabili hélt ég einfaldlega af öllum fréttum og upplýsingum um þessa blessuðu Suðurskjálfta, að landið þyldi þetta ekki lengur og væri að gefast upp á Suðurlendingum. Að landið vildi endanlega slíta Suðurland frá okkur hinum.
Hvítabjörn gerði mönnum bylt við og varð fyrir þeim harmleika að verða SKOTINN, af því hann hræddi grey mennina víst aðeins. Þá kom í ljós þegar krufning á litla sæta bangsanum, að hann var bara búinn að borða grænmeti. Já, þar hafið þið það menn sem hélduð að hann ætlaði að meiða ykkur, hann var grænmetisæta. Drakk ábyggilega kók með því í jóla-kókauglýsingunum hér í den... always coca cola, always coca cola...
Nú er kominn annar svona hvítur sætur bangsi, sem er ekki dauður enn. En þar er um eggætu að ræða, já hann kjammsar á eggjum, ekki mönnum. Sendum hann bara í Húsdýragarðinn og höfum hann í kæliboxi, þá má ég fara og klappa litla greyinu mínu.
Þessi björn er örugglega annað af litlu ísbjörnunum úr kók auglýsingunum....Whistling
En ég er búin að komast að því, að við Íslendingar erum annað hvort með verztu fréttirnar eða bezta og fallegasta landið..
Lokaniðurstöður mínar, sem tók mig alls ekki langan tíma að reikna út, er sú að hérlendis er gert mýfluguúrgang að gíraffa!

E.s. afsaka mæðusýkismisskilninginn, mér fannst það svo rétt að breyta móðursýkis eintölunni í fleirtölu mæðusýki..Blush

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Það er bara upp á henni ...... núna.  Sendum "bangsa í jökulsárlón, þá er stutt fyrir þig að fara að klappa "greyinu".

Sigrún Jónsdóttir, 16.6.2008 kl. 19:53

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

misskilurðu alllt??
Ég er ekki með typpi....

Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.6.2008 kl. 19:54

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigrún Jónsdóttir, 16.6.2008 kl. 20:04

4 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Vitna bara í ónefnda upptöku frá vinkonu minni síðan hún var 9-10 ára.
Ég er ekki með typpi, ég er með stóra bringu eins og pabbi minn!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.6.2008 kl. 20:05

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Róslín þú ert æðisleg

Sigrún Jónsdóttir, 16.6.2008 kl. 20:13

6 identicon

Hvað er mæðusýki?

Ingi Vífill Guðmundsson (IP-tala skráð) 16.6.2008 kl. 20:35

7 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

er það kannski skrifað Mæðursýki, móðursýki, bíddu, ég meina móðursýki...
Vúbbs!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.6.2008 kl. 20:38

8 Smámynd: M

Til hamingju með að vera komin á forsíðu mbl.is :-)

M, 16.6.2008 kl. 20:43

9 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk M, en það getur kannski orðið stutt stopp hjá mér þar, maðurinn sem ég hafði samband við var svo góður og skilningsríkur.
Ég held ég hafi hljómað algjör frekja í e-mailinu til hans, en hann á allar mínar þakkir fyrir að leyfa mér að stoppa í smá stund allavega

Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.6.2008 kl. 20:46

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Komin í "úrvalsdeild"!

Sigrún Jónsdóttir, 16.6.2008 kl. 21:41

11 Smámynd: Signý

Er ekki mæðusýki eitthvað sem hestar og fleiri húsdýr eiga það til að fá?... held það... það er allavega mæðu-eitthvað...

En til að vera með þessum leiðinlegu hérna... þá er það "sunnlendingar".... suðurlendingar er eitthvað svo stirt og óþjált...  

Og svo líka til að vera með þeim skemmtulegu hérna líka... þá bara til hamingju með að komast á forsíðuna... meiri frekjudollan sem þú ert!

Signý, 16.6.2008 kl. 22:03

12 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Heyrðu Signý, það hlaut að vera að ég væri svona orðheppin, hestasýki.....
Takk fyrir þá leiðréttingu, ég var leiðrétt fyrst að þetta væri mæðusýki, ekki mæðusíki, svo tók ég eftir því að ég var ekkert að tala um einhverja mæðusýki heldur móðursýki, og svo virkaði setningin eitthvað vitlaust svo það varð að móðursýkin!

Suðurlendingur, ég er hálfur svoleiðsi og hálfur hinseginlendingur.... kæri mig ekki um að vera austfirðingur bara....


Takk fyrir það, ég held að þetta fylgi háralitnum eitthvað....
Nei annars verður maður að reyna einhverstaðar... það þýðir ekki alltaf að segja já og amen við þeim svörum sem maður fær við spurningum sínum

Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.6.2008 kl. 22:08

13 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Mamma mía það er aldeilis, nú þykir mér týra dúlla mía.
Kominn kraftur í mína haltu þessu áfram, púss púss, þú ert á mbl.is
og þá þýðir ekkert að væla bara kræla, ÆI nú læt ég eins og asni,
Heyrðu það er sama hvort þú skrifar móðursýki eða mæðusýki,
 þetta eru æðisleg skrif hjá þér og ég er komin með svefngalsa,
enda löngu komið fram yfir háttatíma hjá smáfólki.
              Knús til þín Rósin mín
                Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.6.2008 kl. 22:50

14 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Á ég að trúa þessum orðum Milla mín? Fyrst þú ert með svefngalsa?
Þú þarf að fara að sofa væna mín, ungt fólk verður að fara fyrr að sofa!
Knús til þín Milla mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.6.2008 kl. 22:56

15 Smámynd: Anna Guðný

Á mínu heimili í sveitinni var aldrei talið skemmtilegt að fá að sig að maður hóstaði eins og mæðuveik rolla. Það var eiginlega frekar leiðinlega meint. En það var þá, getur auðvitað verið allt annað í dag.

Anna Guðný , 16.6.2008 kl. 23:42

16 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég meinti móðursýki

Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.6.2008 kl. 23:43

17 identicon

já litli sæti björninn .. hann myndi nú ekki hika við að éta þig góða mín ef hann hefði færi á því .. og auðvitað fannst bara eitthvað grænmetisjukk í mallanum á hinum því ekki hafði hann margt annað að éta hérna á íslandi .. en já .. óþarfi að skjóta hann samt ..

Ohh hvað þessi reikningsdæmi hér að ofan eru ekki að gera sig ..

Sædís sys (IP-tala skráð) 17.6.2008 kl. 03:02

18 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Það er ekki fallegt að blóta, það er hægt að leggja áherslu á sitt mál.  Án þess að blóta   Þú ert samt frábær stelpa

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 17.6.2008 kl. 03:53

19 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Sædís, reynd þú að gera betur!

Afsakið blótið Jóna mín, ef það fer eitthvað í taugarnar á þér, þetta þýðir að leggja harða áherslu á það sem ég tala um.
Takk fyrir það

Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.6.2008 kl. 09:13

20 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já já þú mátt alveg taka mark á orðum mínum,
ég hef sagt það frá fyrstu síðu að þú ert frábær og í dag segi ég,
þú þroskast afar vel Rósin mín, í þínum skrifum, en þú mátt heldur ekki gleyma að skrifa líka um þig og þína + Lubba, hann er svo mikið krútt.
                     Eigðu góðan 17 júní dag
                         Knús Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.6.2008 kl. 09:16

21 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Mér finnst mæðusýki mjög gott orð

...og ég varð reið þegar þeir skutu bangsa. Hefði verið nær að senda fólkið heim. Þvílík ósvífni! Er það svona sem farið er með ólöglega innflytjendur?

Laufey Ólafsdóttir, 17.6.2008 kl. 10:59

22 Smámynd: kiza

Meinar þú jarðskjálftarnir í Kína...?  Eða fór eitthvað massíft fram hjá mér í Japansfréttum...?

kiza, 17.6.2008 kl. 11:24

23 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Milla ég tek mark á orðum þínum, ég varð bara að grínast smá í þér!
Takk fyrir, og ég get sko sagt þér það mín kæra, að fréttir af mér og mínum, hundinum líka fá líka að fylgja með...
Sömuleiðis, knús

Laufey ég er stundum svona orðheppin
Ég var líka reið, vondu mennirnir sko!
Þegar stórt er spurt kæra Laufey mín, þá veit ég oftast nær svarið, en nú fórstu illa með mig!!

Nei nú er ég alveg úti á þekju sko, mér fannst eins og það hafi verið að tala um Japan, breyti þessu í hvelli...

Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.6.2008 kl. 11:37

24 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Nei það voru skjálftar í Japan, ég er að tala um þá!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.6.2008 kl. 11:39

25 Smámynd: Árni Gunnarsson

Mæðuveiki er líklega skylt mæðiveiki sem er sauðfjársjúkdómur.

Árni Gunnarsson, 17.6.2008 kl. 11:43

26 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Aldrei að vita nema það smitist í okkur Íslendinga og við deyjum þannig út....

Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.6.2008 kl. 11:49

27 Smámynd: Huld S. Ringsted

Bara stuð á þér Róslín

Til hamingju með að vera komin í úrvalið og Gleðilegan þjóðhátíðardag

Huld S. Ringsted, 17.6.2008 kl. 11:54

28 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Það er svo gaman að vera í stuði

Takk fyrir og sömuleiðis

Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.6.2008 kl. 12:39

29 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gleðilega Þjóðhátíð Róslín mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 17.6.2008 kl. 12:48

30 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Sömuleiðis

Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.6.2008 kl. 12:49

31 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Góðan dag Róslín og gleðilega þjóðhátíð! Ég tek mér örstutt bloggfrí og þú bara orðin fræg!!!.. Komin í ,,Úrvalsdeildina" ..   Til lukku, þú virðist komast þangað sem þú ætlar þér. Góða skemmtun í dag.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 17.6.2008 kl. 14:33

32 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt  og gleðilegan hátíðardag elsku Róslín mín

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 17.6.2008 kl. 17:15

33 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Jamm.  Þjóðarsálin minnir mig oft á hænsnakofa. Nánast öll blogg hafa drepið á þessu efni og þar á meðal þetta.  Ansi Lúkas eitthvað.

Jón Steinar Ragnarsson, 17.6.2008 kl. 17:50

34 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Góða kvöldið Jóhanna mín og sömuleiðis! Var stokkin út úr húsi
Fræg og ekki fræg, miðlungs  bara!! Takk fyrir, ég reyni næstum allt til að draumar mínir rætist...
Vonandi að þú hafir átt góðan dag sólarsleikja

Sömuleiðis Linda mín

Já Jón Steinar!!!
Tek vel undir þau orð, ansi Lúkas eitthvað, ótrúlega sammála þér

Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.6.2008 kl. 19:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband