15.6.2008 | 19:52
Fjölmiðlafár
Ég á það til þegar blöðin koma heim með annað hvoru foreldrinu, að laumupokast í þessi tvö blöð. Annað blaðanna er Fréttablaðið og hitt 24 stundir. Fastur liður hjá mér við Fréttablaðið er að skoða og lesa teiknimyndasögurnar sem bregðast mér oftast nær, og fasti liðurinn hjá 24 stundum er að kíkja á síðustu opnuna og lesa "Bloggar" dálkinn ( Sem er mér líka til meins, þar sem mín skrif hafa bara birst einu sinni).
Á það til að fletta í gegnum allt blaðið, fyrstu blaðsíðurnar eru yfirleitt um einhverjar leiðindafréttir, ein og ein gleðifréttin poppar þar upp af og til. Þaðan af koma fasteignir, bílar til sölu og allskonar auglýsingar frá hinum og þessum Jóni, Siggu og Brjáni út í bæ að óska eftir hinu eða þessu. Á öftustu síðunum er svo hvað sé í bíó og fréttir af fólki. Á baksíðu Fréttablaðsins er til vinstri Bakþankar og risastór bílaauglýsing, útlandaferðaauglýsing og Ikea auglýsing til skiptis. En á baksíðu 24 stunda er dálkurinn Yfir strikið sem prýðir efst, og oft yfirlit yfir það sem er í blaðinu til vinstri og einhverjar greinar á hinu plássi blaðsíðunnar.
Bæði blöðin eiga örugglega í keppnisstríði við að troða sem flestum risa-auglýsingum alltaf á hægri hluta opnunar, í það fer önnur hvor síðan.
Mbl.is til mikillar gleði held ég meira upp á 24 stundir, og til Visi.is til mikillar gremju á ég það til að vilja loka blaðinu og setja það í endurvinnslupokann þegar ég les fyrirsagnir blaðsins..
En í dag fangaði 24 stundir mig betur inn í blaðið, að vísu eldra blað, en skiptir ekki öllu máli. Þar var grein um það hvernig Ellý Ármanns brást við myndinni sígildu Sex and the city, og á bls. 52 að mig minnir var Sveppi okkar gúglaður, það koma eitt og annað upp, mismerkilegt þó.
Að skjálftunum sem tróna hér um allan hnött greinilega, þá er þetta farið að hljóma eins og fréttirnar í sjónvarpinu ,, 15 manns voru teknir fyrir að vera ölvuð við akstur " ( LESIÐ MEÐ FLÖTUM TÓNI OG ÓÞOLANDI NÖLDUR RÖDD). Auðvitað er þetta mikið sjokk hér, en við getum ekki ímyndað okkur hvað við höfum það gott miðað við aðstæður í Japan.
Það meiddist enginn alvarlega líkamlega hér á Íslandi, en margir skemmdust í sálinni við að missa húsið sitt, sem tryggingarnar ljúga í fólk að þær finni ekki að húsið þeirra sé tryggt en ætla að reyna sitt besta og koma kannski með 3 milljónir í skaðabætur eða svo. Til að gera upp allt tjónið.
Hvað segið þið nú stjórnvöld hér á Íslandi, lifum við ekki í lýðveldi lengur, hvers vegna fór það framhjá mér?
Veðurguða Ingó úr Idolinu söng stoltur með Selfiskum leikskólabörnum ,, Bahama eyja, Bahama eyja, Bahama eyja, Bahama ". Skammaðist sín heldur ekki fyrir það og sagði í sjónvarpið að þetta væru dyggustu aðdáendurnir, og þau væru einhverjir sem ekki "drulluðu" yfir sig. Sem betur fer hafa þau vonandi ef heppilegt er með mál að fari, bara rétt drullað á foreldra sína þegar þau voru yngri..
Það má líka lengi væla yfir því hvað munaði litlu að okkar menn kæmust á HM, leiðinlegt fyrir þá greyin og þau sem halda upp á þessa íþrótt hérlendis. Prívat og persónulega kom það mér ekki á óvart að grey mennirnir kæmust ekki áfram, enda allt of mikið þjóðarstolt í gangi...
Þeir ætluðu sér áfram á þjóðarins vilja, ekki sjálfs síns vegna, og hafa þessir menn ekki nóg að gera utan vallarins, eiga margflestir börn og konu til að sinna...
Ég verð að troða þessari mynd með, finnst hún flottust af þeim myndum sem ég hef tekið;

Svo er verið að röfla yfir því að ég tali ekki mikið um þjóðernismálin, bara um sjálfa mig...
Ég gef því bara eitt risastórt ; PIFF!

Athugasemdir
Sigrún Jónsdóttir, 15.6.2008 kl. 20:18
Ég segi það með þér Sigrún! Ég ætti að taka upp á því, kemur kannski að því!

Mér fannst ég bara verða að tala um eitthvað annað en sjálfa mig, svo að þetta er eitt af því sem ég geri flesta daga, stunda blaðalestur svo að það var tilvalið málefni!
En gott að þú sleppir mér ekki
Róslín A. Valdemarsdóttir, 15.6.2008 kl. 20:21
Já gott hjá þér en ég tala alltof mikið um sjálfa mig.

Kristín Katla Árnadóttir, 16.6.2008 kl. 12:26
Ég geri nú ekkert annað en að talabara um sjálfa mig og börnin svo að þú kemur manni nú bara til að fara að huga að einhverju öðru sem er meira vit í. Ekki nenni ég að fletta þessum blöðum en ég nenni alltaf að lesa bloggið þitt.
Hulda Sigurðardóttir, 16.6.2008 kl. 15:23
Er það nú ekki sem við flest gerum, skrifa um okkur sjálf. Annars er kominn annar ísbjörn svo við getum talað um hann í nokkra daga. Vantar fleiri svona besser vissera.
Anna Guðný , 16.6.2008 kl. 15:53
Katla þú mátt líka til, ég er bara smá sjálfselskupúki innst inni....

Það er nú ekki lítið vit í því að tala um sjálfa sig og sína. Ég fletti þeim bara upp á gamnið, gá hvort að það sé einhver umfjöllun um það sem ég vil tala um og svona.
En þakka þér fyrir það
Já, Anna Guðný, við gerum það flest.
En ég held að söguritaranum sé farið að skorta hugmyndunarflug hér á Íslandi, endalausir jarðskjálftar og tveir ísbirnir innan tveggja vikna, þetta kallar bara á hugmyndarskortun!!!!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.6.2008 kl. 16:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.