Heimilisandi....

Hér á bæ angar skúffukökulykt ásamt grilluðu læri, hátíð á bæ.

Ég og mamma ætluðum út að mynda, en veðrið var ekki svo sérstakt svo ég fékk bara ís á Olís og svo héldum við heim á leið.
Eftir svolítið sjónvarpsgláp hjá okkur Sædísi sys og pabba, ásamt því að borða örlítið popp meðð'í, bað ég um að fá að baka köku. Eins og alltaf fékk ég það og á meðan ég beið eftir að pabbi myndi drífa sig út í búð. Hélt ég áfram að glápa á sjónvarpið með Sædísi og honum, fór svo að spjalla við mömmu út í garði og hjálpaði henni örlítið að skafa af klöppinni útí garði.
Ég bakaði þessa dýrindis skúffuköku - ALVEG SJÁLF - og bæði mamma og Sædís voru rosa ánægðar með hana, og sömuleiðis reyndar ég.
Núna bíð ég bara eftir grilluðu læri a la pabbi og hlakka til að byrja vinnudaginn á morgun, vel sofin og glöð eftir góða helgi.

En mig langar rosalega að deila því með ykkur, að frá því ég varð veik, reyndar rétt eftir á, þá fékk ég sár í báðar nasir. Ég sem er ekki þekkt fyrir að fá blóðnasir er búin að fá á meðaltali 1 1/2 á dag blóðnasir síðustu eina og hálfa viku, eða jafnvel meira. Má varla koma við nebbann minn og þá bara blæðir, greyið ég, ég veit...LoL

Skrifa kannski seinna í kvöld!

KnúsHeart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mikið ertu myndarleg að baka þessa fínu köku,vonandi lagast þú í nebbanum sem fyrst.

Knús inní kvöldið.

Kristín Katla Árnadóttir, 15.6.2008 kl. 19:37

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Katla, ég er myndarbakari, hef margt til að viðhalda leikaraferli mínum ef hann mun eitthvað klikka.
Ég verð skráð í auglýsingarnar "Bakarinn sem allir vilja í veislurnar sínar, bakar heima við og þarf að borga aukalega svo hún taki til eftir sig ", eða kannski ætti ég að hafa það í smáa letrinu....
Knús til ykkar beggja, Katla og Helga mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 15.6.2008 kl. 19:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband