Pólitíkin, fréttir o.fl.

Nei sko, þarna gabbaði ég ykkur alveg í keng!LoL

Það sem skiptir þjóðina líka máli að vita......

Þá vil ég byrja á því að óska vinkonu minni Árdísi Drífu til hamingju með afmæliðGrin Heart

Ég er farin að kunna alltaf betur og betur við vinnuna mína og samstarfsliðið. Allir þarna eru mjög samheldir og hjálpast að með hitt og þetta tók ég eftir í dag. Í kaffitímum er spjallað um allt milli heima og geima, reyndar svo mikið meira en það.
VIÐ ( takið eftir því, ég er ekki að tala um sjálfa mig bara!) fólkið sem vinnum þarna saman erum öll á mjög mismunandi aldri, ég er þó yngst sem kemur reyndar engum á óvart. Ég ætla ekki að rugla neitt, en þó veit ég að eitthvað af fólkinu er vel yfir fimmtugt.
Í dag tókst mér að bæta vel inn í hópi myndanna sem ég á að skanna, og eru þær komnar hátt í 500 talsins, svo mikið er víst, frá mánudag. Reyndar í dag fórum við um kl. 11.00 nokkrar upp í Pakkhús að þrífa, þar þurfti ég sko að þrífa stóla, borð og klifra niður fyrir Bryndísi að ná í eina bjórdós sem þarna lá tóm.
Á morgun er vinna, auðvitað, þá ef gott veður er förum við Björg að ég held að þrífa minnisstyttu niður á Hótel túni fyrir 17. júní. Í næstu viku á ég síðan að fara í fuglaskoðun með krakkaskara!
Grin
Ég fór á ljósmyndanámskeið bæði í kvöld og í fyrrakvöld, lærði heilmargt enda ekki seinna vænna, nú fara að koma loksins almennilegar myndir frá mér!Tounge

En annars í dag ætlaði ég að laga til mynd í photoshop á meðan ég beið eftir Björgu, en svo kom hún þegar ég var búin að finna allt svo ég ætla að byrja upp á nýtt hérna, svo er það svefninn!



Knús á ykkur, ég skrifa betur á morgun til ykkar einhver falleg og vel vönduð orðHeart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Jæja, mikið er ég fegin að þú dast ekki í pólitíkina  Til hamingju með vinkonu þína og góða nótt!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 13.6.2008 kl. 00:13

2 Smámynd: Linda litla

Ég var nu næstum hætt við að lesa færsluna þegar ég las "pólítík", fréttir og fleira...... þoli ekki pólítik, þar sem að ég veit ekkert um hana og ræði hana ekki.

Góða nótt.

Linda litla, 13.6.2008 kl. 07:34

3 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Hehehe flott fyrirsögnin hjá þér

Svanhildur Karlsdóttir, 13.6.2008 kl. 09:39

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Flott ertu og dugleg. Til hamingju með vinkonu þína Róslín mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 13.6.2008 kl. 13:13

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Vona að þú verðir ekki lengi í þínum heimi, þurfum á þér að halda Rósin mín.
Til hamingju með vinkonu þína, og það verður nú gaman að fara í fuglaskoðun
þú sýnir okkur nú myndir frá því.
                 Knús kveðjur
                  milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.6.2008 kl. 17:38

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Blekkjandi, ég veit, en reyndar svekkjandi fyrir suma, ég læt ekki plata mig í svona vitleysu, ég held áfram minni leið..

Takk fyrir mig görls
og knús á ykkur allar

Róslín A. Valdemarsdóttir, 13.6.2008 kl. 18:32

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þú verður komin í "topp 10" áður en langur tími líður með svona grípandi fyrirsögnum Róslín mín.  Knús á þig flotta stelpa

Sigrún Jónsdóttir, 13.6.2008 kl. 21:28

8 identicon

Mig (ekki mér .. taktu eftir, því það er vitlaust!!) langar að vita eitt .. á HVERJU varstu þegar þú gerðir þessa mynd?

Sædís sys (IP-tala skráð) 14.6.2008 kl. 01:36

9 Smámynd: Hulda Sigurðardóttir

Það er mjög gaman að lesa færlurnar frá þér. Þú er greinilega mjög málefnaleg og flott stepa og er greinilega með bein í nefinu. Haltu þínu striki áfram snúlla.

Hulda Sigurðardóttir, 14.6.2008 kl. 18:29

10 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

hahha, já Sigrún, við sjáum til þess!
Knús

Mig og mér, já ég átta mig á því, ef ég sagði það þá breyti ég því bara.
En ég er ekki á neinu, það er vandamálið elsku hjartans systur mín........

Takk fyrir það Hulda, ég er meira að segja með svolti stórt bein í nebbanum!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 14.6.2008 kl. 19:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband