Blogg EKKI bara um sjálfa mig...

Það er hægt að blogga um sjálfa sig, skrifa til vina og ættingja, blogga við frétt, blogga um vitleysu og blogga um stjórnmál og allt sem við tengist þeim.


Ég sendi e-mail til manns hér á moggablogginu og spurði út í forsíðubloggara, ég var kurteis og spurði hvort að ég mætti fylgja þeim hópi, einhvernvegin kemur maður sjálfum sér á forsíðu blaðana, en hvernig er spurningin.
Ég fékk ekki fullnægjandi svar, eða svo finnst mér.

Virðingarfyllst birti ég svarið frá honum/henni sem svaraði mér, og vonandi að ég geri það án þess að fá kæru eða eitthvað slíkt;

Í umræðuhópnum okkar, þ.e. hópi þeirra bloggara sem kalla má forsíðubloggara, eru bloggarar sem valdir eru eftir gæðum skrifa, þ.e. hversu vel þeir skrifa og hve títt og einnig litið til þess um hvað þeir skrifa. Skoðanir manna skipta ekki máli í þessu sambandi.


 Eins og ég segi virðingarfyllst, ég vill þessum manni vel, en bara ég er ekki sátt með þetta svar.

Eftir gæðum skrifa, þar gæti hann verið að gefa það í skyn að mín skrif séu ekki góð, og aftur gæti hann verið að gefa það í skyn með því að segja hversu vel þeir skrifa. Einnig litið til þess um hvað þeir skrifa, ef dæmi má gegna eru 85% færsla alltaf um eitthvað sem tengist stjórnmálum.
Ef ég tek bloggvinkonu mína Jónu Á. Gísladóttur sem er örugglega einnar best skrifandi hér á moggablogginu, þá skrifar hún alloft um sig og sína fjölskyldu. Það finnst mörgum gaman að lesa þetta, sumir hafa lúmskt gaman af því en hreyta einhverjum skítaorðum um hana.
Hún af og til bloggar um frétt, en ekkert rosalega oft. Ég hef alls ekkert á móti henni Jónu minni, þótt ég skrifi eins og ég sé eitthvað afbrýðissöm.

Annað gott dæmi má nefna hana Laufey Ólafsdóttur sem vill svo skemmtilega til að er frænka mín og með góða rithönd. Hún skrifar meira sitt á hvað, tónlist, hvernig gengur í vinnunni hjá henni og líka um dæturnar. Hún er þó heldur löt að blogga, (skamm þú, Laufey!LoL), og þar er dæmi um "títt"-ið sem hann/hún talar um.

Ég get svo gefið dæmi um allskonar bloggara, en mér langar ekkert til þess og kem með endann á póstinum sem ég fékk.


Mér sýnist þú helst skrifa um sjálfa þig, sem er gott og blessað og margt skemmtilegt að lesa á bloggi þínu, en ekki sýnist mér það eiga erindi í þjóðmálaumræðu.

 

 Ég yrði þá ekki sú fyrsta sem myndi birta bloggin mín svoleiðis, innsæi í allskonar heima eiga heima á forsíðu moggabloggsins, en þar er innsæi til foreldra einhverfs barns, eitthvað sem tengist pólitík, pólitík og pólitíkusar...
En ég þakka þó fyrir það, en ég er ekki alveg sammála að það eigi ekki erindi í þjóðmálaumræðu, hér er innsæi í líf unglings, sem er ekki alveg eins og þessir týpísku unglingar sem þjóðin sér liggur við bara. Ósköp óvenjuleg stelpa úti á landi sem vill vera framtíð Íslands, en á í erfiðleikum með það vegna þess hver margir neita að taka þátt í því.

Takk fyrir mig!

Knús á ykkur sem eru ekki óvinir mínir og eruð ekki vondu kagglarnirCryingHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Æi þú ert svo mikið krútt. En þú ert mikið meira en það.  Þú ert vel máli farin unglingur með skoðanir og skemmtilegt sjónarhorn á líðandi stund og lífið almennt. Það væri vissulega mjög gaman að sjá þig bætast í hóp ''forsíðubloggara''. Yrðir ferskur andblær þar. En það ertu nú þegar, þó að ekki sé á forsíðunni. En það gæti nú bara gerst einn daginn. Ég er hissa að sjá þessa athugasemd um þjóðmálaumræðuna. Eitt sinn sótti ég um starf sem dálkahöfundur í tímariti og lagði fram akkúrat samskonar skrif og eru á blogginu mínu. Mér var hafnað á þeirri forsendu að ég væri ekki á nógu ''þjóðfélagslegri'' línu. Ég get því ekki annað en hlegið.

Um daginn sagði ég þér að flýta þér hægt. Það á við um fleira en bara það sem við töluðum um þá.

Jóna Á. Gísladóttir, 12.6.2008 kl. 00:32

2 Smámynd: Linda litla

Æi krútta mín.... þinn tími mun koma (eins og Jóhönnu).

Linda litla, 12.6.2008 kl. 01:15

3 identicon

Æjj leitt að heyra að þér varð ekki að ósk þinni.

Mundu bara Róslín mín að gleyma þér ekki í framtíðinni, maður verður að lifa í núinu

Risaknús til þín krútta mín (hey þetta rímaði)
Kv. Gugga

Guðbjörg Valdís (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 01:21

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Það er rétt hjá þér að sumir forsíðubloggarar eru nú bara svona á persónulegum nótum, að segja frá sér og sínum. Þér hefur a.m.k. tekist að vekja athygli á þínu bloggi með þessum skrifum þínum. Þetta kemur örugglega allt með kalda vatninu.

Haltu bara þínu striki og þá verður þú eflaust ein af forsíðubloggurum, en það sem mestu máli skiptir er að þú hafir það í huga að þú sért að láta gott af þér leiða, í því sem þú ert að gera. Þar með talið blogginu þínu.  

Sjálf hef ég alltaf haft þörf fyrir að tjá mig opinberlega um málefni líðandi stundar og áður en bloggið kom skrifaði ég stundum í moggann. Það var þá af öðrum toga, eitthvað sem umræðan snérist um. Í blogginu höldum við einhvers konar bland af dagbók og skiptum okkur um leið af þjóðmálaumræðunni. Sumir halda sig alveg við þjóðmálin aðrir eru með smásögur og enn aðrir skrifa bara persónulegt. 

Gangi þér vel og flýttu þér hægt ... manstu.. njóttu þess sem er. Þú ert flott stelpa, hafðu það í huga og við  (sem erum líka flott) tökum alveg eftir þér .. 

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 12.6.2008 kl. 04:46

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Rósin mín, ég tek undir með þeim hér að ofan, þær hafa alveg rétt fyrir sér í einu og öllu.
Ég segi eins og Jóna, flýttu þér hægt.
Knús til þín bestust
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.6.2008 kl. 13:21

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

æI þú er svo mikill krúttmoli ljúfust.

Kristín Katla Árnadóttir, 12.6.2008 kl. 17:12

7 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk æðislega þið 7, þið eruð hreint og beint allar æðislegar

Æ, takk þú Jóna mín, afsakið að ég nefndi þig sem dæmi, en það var bara til góðs þó það hljómi geðveikt leiðindapúkalega, þá met ég skrif þín til mikils!!
Hlæ, hlæ, á þá sem neituðu þér, þeir væru örugglega að mokgræða bara við að hafa þig í blaðinu hjá sér.....
En sko, það má gá og prófa og sjá hvað fólk segir, stundum verður maður að gera eitthvað sjálf...

Linda ég segi bara stórkonulega ; MINN TÍMI MUN KOMA ( bergmál, bergmál, bergmál)

Ég man það Gugga mín, ég var bara að gá að þessu...

KNÚS

Jóhanna, eða því heita, kannski volga líka!
Ég vil alltaf vera góð og láta gott af mér leiða, segja mínar skoðanir og vera þannig ég sjálf.
Það er nefnilega rosalega sniðugt að skrifa í moggann, í þau tvö skipti sem ég hef sent inn grein hefur mér í bæði skiptin ekki verið neitað. Og með því voru greinarnar birtar, þá gat fólk lesið álit unglings.
Ég heyrði í útvarpinu fyrir einhverju að það var strákur sem skrifaði í moggann og síðan var tekið viðtal við hann í útvarpinu, en ég held að fólk taki ekki eftir slíku og finnist það ekki áhugavert það sem ég vill koma á framfæri..

Takk fyrir, ég flýt mér hægt!
Þið flottu bloggararnir takið eftir mér og ég eftir ykkur, því við eigum það sameiginlegt að vera flott!

Hallgerður, takk æðislega, en ég held það séu geimverur sem dæma, því að skoðanir manna skipta ekki máli í þessu sambandi. Blessi þig

Ég er líka alveg sammála þeim Milla mín,
Knús á þig

Íhíhíhí Takk Katla

Þúsund knús á ykkur allar

Róslín A. Valdemarsdóttir, 12.6.2008 kl. 17:41

8 Smámynd: Huld S. Ringsted

Aldrei nenni ég að lesa þessa sem eru á forsíðunni, þeir eru nefnilega ekkert endilega þeir skemmtilegustu en það er alltaf gaman að lesa þitt blogg þó að ég hafi ekki alltaf tíma til að kommenta

Huld S. Ringsted, 12.6.2008 kl. 23:40

9 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Nei Huld, ég nefnilega rekst af og til á eitthvað skemmtilegt þar, sem ég hef áhuga á að tjá mig um, svo eru náttúrulega einhverjir á bloggvinalistanum svo ég les þau hvort eð er fyrir!
En takk fyrir innlitið

Róslín A. Valdemarsdóttir, 12.6.2008 kl. 23:43

10 Smámynd: Guðrún Hauksdóttir

Þinn tími mun koma sæta mín  er ekki í nokkrum vafa um það.

Knús

Guðrún Hauksdóttir, 14.6.2008 kl. 10:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband