Ekta skrifstofudjobb!

Ég get nú sagt ykkur það, að vinna á skrifstofu getur nú ekki verið svo erfitt, ég myndi reyndar örugglega sofna þrisvar sinnum fram á lyklaborðið, en það er allt annar handleggur.
Það sem ég hef verið að gera núna í dag og gær er ekki beinlínis sniðugt á sumrin, en betra en ekki neitt, þetta er kannski ekki þetta týpíska "skrifstofudjobb". Enda er ég nú bara á 15 ári og á kannski eftir að kynnast því síðar.
En ég er farin að þekkja vinnuumhverfið mitt sem ég mun áreiðanlega sitja við í sumar, allavega eitthvað meir, eins og ilina á mér, já við erum nefnilega ágætis vinkonur við ilin mín, vinstri.
En ef ég kem með grófa lýsingu á því við hvað ég vinn þá er þetta og gerist nákvæmlega svona;

Sæki kassann sem ég set nokkur umslög í, geng með hann að skrifstofuborðinu sem er ljósbrúnt eða svona týpískt skrifstofuborð bara. Legg kassann niður vinstra megin við tölvuskjáinn og lyklaborðið, myndirnar eru í hægra horninu á kassanum lengra frá mér. Ég tek umslag, opna það, tek myndina úr og þetta er svona eins og í lukkupotti, af hverju myndin skildi nú vera í þetta skiptið. Færi bláa stólinn og held í myndina eins og fjarsjóðskort, opna skannarann og legg niður myndina, hægra megin efst í hornið og færi mig við skjáinn og lyklaborðið.
Þá er komið að því að ýta á takkann ; SCAN, þegar myndin er komin inn breyti ég gæðunum í 300 og ýti á PREVIEW. Myndin kemur upp aftur og af og til kemur einhver furðulegur litur á hana svo ég ýti á PREVIEW aftur, merkilegt nokkuð. Eftir það laga ég kassann um myndina sem "kroppar" hana. Ýti á ACCEPT og breyti myndinni yfir í JPEG, og skrifa t.d. 1993-4-13, sem þýðir; árið sem myndin er gefin, númer gefanda og númer myndar frá honum.
Svo byrjar þetta allt upp á nýtt, frá umslaginu þ.e.a.s.

Kaldhæðnislegt held ég, en þetta er bara svona. " The real skrifstofu DJOBB ".

En það er alltaf gaman að sjá myndirnar, sumar frá 1930 og fleira, ótrúlegt alveg hreint hvað bros gat verið ósmitandi. Örugglega af þessum 241 mynd sem ég hef skannað inn á þessum tveimur dögum ( það tekur sko aldeilis sinn tíma..) þá hef ég séð bara 1/19 af myndum af fólki, sem það brosir, eða lyftir rétt upp munnvikunum.
Svo sé ég að fólk sem er með mjög blá og tær augu eiga ekki að láta mynda sig svarthvít, þá er eins og þau séu draugar, þannig var einn maður...Whistling

En því ég var orðin rangeygð af þreytu í morgun og dag þegar ég var að vinna þá er mér hollast að fara að hvíla mig, ég er komin með hausverk og svona fínleg heit!

Knús til ykkarHeart

E.s. Ég mæli eindregið með því að þegar kemur steypiregn að allir skelli sér í íþróttafötin sín og finni flott drullusvað og renni sér, helst með grasi á líka, prófið að renna ykkur á maganum!
Það er mögnuð tilfinning að halda að maður sé þvottapoki......

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þú ert að tala um svona Mónu Lísu bros

Þetta er mjög nauðsynleg vinna Róslín mín og ég er viss um að þú átt eftir að standa þig vel

Sigrún Jónsdóttir, 10.6.2008 kl. 22:57

2 Smámynd: Linda litla

Hvar er þessi vinna Róslín ??Hvar ertu ?

Linda litla, 10.6.2008 kl. 23:05

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Er það að brosa ekki Mónu Lísu bros?
Já ég geri mitt besta, það er æðislegt að geta verið partur af því verkefni að koma sumum af þessum myndum inn í bækur.

Linda hún er í Menningarmiðstöðinni, og ég sit þar bara... hérna á Höfn, á Íslandi, í Evrópu, plánetunni jörð og sólkerfinu okkar!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 10.6.2008 kl. 23:16

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Veistu það Róslín að ég vann í 5 ár í banka áður en ég menntaði mig svo eftir að ég startaði útgerðinni vann ég eins og geðsjúklingur allann daginn alla daga við það að stokka upp línu (ég veit þú veist hvað það er). Bankavinnan gerði mig þreyttari samt var ég 25 árum yngri þá. En það er gott að hafa vinnu sama hver hún er

Huld S. Ringsted, 10.6.2008 kl. 23:42

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ohh varstu ekki þá mikil bankapæja??
Ég hef ekki enn fengið að prófa að stokka upp, en mér finnst lyktin alltaf svo góð!!

Það fer rosalega í mann að sitja bara og gera það sama allan daginn heldur en að standa, ég er viss um það!
Á meðan maður getur unnið sér eitthvað inn þá er það gott

Róslín A. Valdemarsdóttir, 10.6.2008 kl. 23:45

6 Smámynd: Guðrún Hauksdóttir

Kannski ég fari að þínum ráðum og renni mér.....

Knús

Guðrún Hauksdóttir, 10.6.2008 kl. 23:52

7 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Þá geturðu komist í líkingu við þvottapoka, að blotna svo mikið að vera gegnvot, það er bara fyndið að vera alveg að missa niðrum sig buxurnar útaf rigningu!!

Knús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 10.6.2008 kl. 23:54

8 Smámynd: Guðrún Hauksdóttir

Guðrún Hauksdóttir, 10.6.2008 kl. 23:58

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gangi þér vel í vinnuni mín kæra ´Róslín.

Kristín Katla Árnadóttir, 11.6.2008 kl. 10:40

10 identicon

Uppstokkunarlykt er peningalykt .. láttu ekki svona rósla .. ég vann nú við þetta í hva .. fimm ár eða eitthvað! =)

Sædís sys (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 15:28

11 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Gangi þér vel í vinnunni þinni kæra Róslín, .. mér líst vel á þessa þvottapokahugmynd!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 11.6.2008 kl. 16:04

12 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Væri sko alveg til í góða drullu-sallibunu

Svanhildur Karlsdóttir, 11.6.2008 kl. 16:37

13 identicon

þú ert nú aldeilis dugleg krúttið mitt, sakna þín of mikið !!! ofsalega er það gott að vita hversu skemmtilegt er í vinnuni, jæja ætli maður fari ekki að finna sér eitthvað betra að gera (það er reyndar einstaklega erfitt)

bæbæ sjáumst eftir 9 daga

elska þig

Rafn (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 16:50

14 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk Katla mín

Hahaha, Hallgerður þú ert bara æði, hægðartregða, var hún þá á klósettinu líka í leiðinni?

Hvernig er það, kúkaði fólk ekki í holur á hennar tíma??

Sædís, ég og þú erum eins og svart og hvítt.

Takk Jóhanna mín, já hún er nefnilega nokkuð sniðug!!

Svanhildur, þú þarft rétt að skreppa út á fótboltaæfingarsvæði, þar er gott og mikið af grasi og drullu.

Oh, ég sakna þín líka ótrúlega Rafn minn!!

Ég er alltaf að aðlagast betur og betur, fínasti félagsskapur þarna! :D

Sleiktu bara sólina, mannstu, súkkulaðibrúnn!

Ég bíð spennt eftir að þú komir heim, þá ætla ég sko alltaf líka að stoppa þig á leiðinni í vinnuna, ef þú labbar framhjá glugganum hjá mér... híhíhí!!

Ég elska þig líka <3

(Netið hjá mér er ekki gott svo það koma engir broskallar í þetta skipti, ólíkt mér!)

Róslín A. Valdemarsdóttir, 11.6.2008 kl. 17:07

15 identicon

hlakka of mikið til að hitta þig !!!

Rafn (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 18:49

16 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús knús og sólarkveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 11.6.2008 kl. 20:06

17 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Turtildúfur þið eruð æði

Sigrún Jónsdóttir, 11.6.2008 kl. 21:59

18 Smámynd: Halla Vilbergsdóttir

HEheheh djöfull nú á eg ekki eftir að sofna,langar svo að fara út að renna mér....klárlega magnað fjör í því þið eruð frábær

Halla Vilbergsdóttir, 11.6.2008 kl. 23:03

19 Smámynd: Anna Guðný

Frábært að hafa vinnu. Til hamingju með það.

Kveðja frá Akureyris

Anna Guðný , 11.6.2008 kl. 23:23

20 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég hlakka líka til að hitta þig Rafn!!!<3<3<3

knús til þín Linda.. :)

Takk Sigrún :D

Halla ef þú kemur hingað skal ég koma með þér.. hahaha!!

Takk fyrir það...

Takk Anna Guðný og velkomin heim :)

Róslín A. Valdemarsdóttir, 11.6.2008 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband