9.6.2008 | 21:06
Fyrsti vinnudagur sumarsins liðinn...
Í gærkvöldi átti ég mjög erfitt með að festa svefn, hann Óli vinur minn Lokbrá hafði varla tíma til að reyna að hjálpa mér í vandræðum mínum.
En ég vaknaði eldhress tilbúin í slaginn, sama hvað veðrinu stóð, ég hlakkaði bara til að byrja að vinna, en þó með pínu hnút í maganum yfir nýju vinnu umhverfi.
Og þó, það var tekið vel á móti mér og sýnt mér eitt og annað, svo hófst ég handa og byrjaði að skanna inn myndir, gamlar myndir, allar teknar fyrir 40-60 árum svo ég viti. Fjölskyldumyndir, brjóstmyndir, náttúrumyndir og gamlar bæjamyndir. Samfélagið hefur mikið breyst og húsin með, tæknin er allt önnur og vegirnir betri.
Ég skannaði inn yfir 100 myndir, og það er erfiðara en að segja það skal ég segja ykkur!
Var líka mestallan tíman ein eftir hádegi, svaraði símanum og svona, nýbyrjuð og vissi ekki neitt um neitt...
En ég hlakka bara til morgundagsins, og allt stress er horfið í bak og burt, svo kemur Björg sem er yfirmaðurinn minn held ég á miðvikudaginn og þá fæ ég betur að vita hvað ég á að gera.
Knús

Athugasemdir
Er þetta nokkuð kaldhæðni?
Ég er með smá vöðvabólgu útaf því að lyfta þvílíku loki á skannaranum upp....
Róslín A. Valdemarsdóttir, 9.6.2008 kl. 23:23
Hahahahaha .. ég vona nú að þetta hafi verið djók hjá þér Róslín Alma ..
vöðvabólgu eftir þetta .. híhíhí!
Sædís sys (IP-tala skráð) 9.6.2008 kl. 23:58
Hæ rósin mín, þú ert nú örugglega í skemmtilegri vinnu, mundu bara að slaka á í öxlunum, og gera æfingar.
Knús til þín.
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 10.6.2008 kl. 07:09
Frábært að þú ert komin í suamrvinnuna. Gangi þér vel í nýju vinnunni og elsku Róslín mín, þú og þín vöðvabólga......
Linda litla, 10.6.2008 kl. 12:33
Gott að þú ert komin með góða sumarvinnu Róslín mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 10.6.2008 kl. 14:05
Ég var að djóka Sædís...

Já Milla, en ég vona að vinnan sé fjölbreyttari en þetta...
knús
Takk fyrir Linda litla, mér var bara illt af því að vera alltaf að lyfta þessu loki á skannaranum!

Takk Katla
Róslín A. Valdemarsdóttir, 10.6.2008 kl. 16:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.