,, Blöskrar þér ? ''....

... spurði Hallgerður bloggvina mín í nýjustu færslunni hjá sér.

Ójá, mér blöskraði, skal ég segja ykkur!
Þegar ég spurði mömmu mína fyrir einhverjum vikum hvort ég mætti ekki fara og hitta konurnar í ljósmyndagrúbbunni (það orð er víst ekki til hjá púkanum, kemur frekar ljósmyndagribbunniW00t ) Konur og Ljósmyndir / Photos by Icelandic woman, þá lét hún mig vita að þær myndu kannski klæmast ( segja dónabrandara ).
Auðvitað hefði ég nú alveg hlegið af þeim, enda þrælvön þeim frá ættingjunum úr föðurættW00t ..

En ég get sagt ykkur það ef mér bæðist til að hitta nokkrar af bloggvinkonum mínum einhverja ferðina í bæinn, þá myndi ég efast til að byrja með, útaf því að sumar geta verið hrikalegar þegar kemur að því að klæmast. Nema ef þær eru kannski feimnar eins og ég, ekki með tölvuna frammi fyrir mér.


Annars að deginum í dag, þá tók ég þátt í kvennahlaupinu í ár, já þið heyrðuð rétt. Langt síðan ég tók þátt í því síðast, annað skiptið á minni lífsævi. Mætingin var bara ágæt, betri en síðustu ár að ég held þó. Við mættum nokkrar úr meistaraflokk Sindra til að auglýsa leikinn. Við gerðumst svo hrikalega sniðugar að taka öfugan hring og mæta öllum og segja þeim frá leiknumGrin !
En Sindrastúlkurnar tóku á móti Völsungi sem var spáð tveimur efstu sætunum í deildinni eftir sumarið, og skemmtilega má segja frá því að okkur Sindraskvísum var spáð því neðsta.
Kraftaverkin gerðust ekki, heldur var það viljinn sem var að verki í þessum leik, Sindraskvísur voru 1-0 yfir í hálfleik og var það Jóna Benný með óverjandi skot ( Mig langar til að kalla hana fallbyssu, en ég veit ekki hvort að einhverjir misskilji orðaval mitt þá, en hún er örugglega ein besta kvenskyttan í Íslandssögunni. Hennar skot gætu handleggsbrotið mannCrying !) og þegar 10 mín. voru eftir af leiknum jöfnuðu Völsungstúlkurnar, en okkar stelpur gerðu betur og kom Heba með þvílík tilþrif og kom boltanum inn í markið! Svo lokastaðan var 2-1 fyrir stelpunum sem var spáð neðsta sætinu, og þvílík gleði sem var á vellinum og í kringum hann, ég hékk á flautunni hjá Ástu Steinunni! Aðeins að bípa á bæði liðin....W00t

Ég verð svo að bæta því við að ég er farin að sakna Rocky Horror sýninganna óaðfinnanlega mikið, er með diskinn í gangi og langar til að missa mig bara í söng..

Knús á ykkuuuurHeart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk Helga mín
Njóttu helgarinnar smöuleiðis

Róslín A. Valdemarsdóttir, 7.6.2008 kl. 23:02

2 Smámynd: Einar Indriðason

Gáðu hvort púkinn kannist við orðið "grúppa" í staðinn fyrir "grib.." nei, ég meina "grúbba"..... (p en ekki b)

Já, hvur veit, verði bloggvinakaffihittingur, og þú mætir, þá er hugsanlegt að ég mæti líka.... (en... svo við hin þekkjum þig, þá þarftu að vera með "kamóflasið" framan í þér, eins og myndin af þér (núna) er.

:-)

Einar Indriðason, 7.6.2008 kl. 23:09

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Mér finnst þetta hljóma betur sem grúbba, ég segi það allavega þannig.

Nei nú held ég að ég skipti um mynd og setji upp englabrosið....

Róslín A. Valdemarsdóttir, 7.6.2008 kl. 23:15

4 Smámynd: Einar Indriðason

Ohhh.... mér finnst hin myndin líka flott!

Einar Indriðason, 7.6.2008 kl. 23:44

5 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Dónabrandarar geta verið fyndnir á meðan þeir eru ekki of grófir. Þá eru þeir nú bara óþægilegir! .. Allt sem er sagt sem manni líður illa að hlusta á er svona nokkurs konar ,,míní-ofbeldi" og þá á maður/kona/stelpa/strákur helst ekkert að hlusta eða biðja viðkomandi að vera ekki að segja svona ósmekklegt. Það er að vísu ekki hægt í öllum tilfellum.

Dugleg að fara í Kvennahlaupið! Ég mundi eiginlega ekki eftir því fyrr en ég keyrði í gegnum Garðabæinn á leiðinni í Hafnarfjarðarlaugina! .. Kannskvi vildi undirmeðvitundin ekkert muna eftir því, því ég nennti eiginlega ekki, haha

Jæja, knús á þig og góðan dag!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 8.6.2008 kl. 08:22

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Tek undir með Jóhönnu dóna brandarar geta verið ágætir, annars er ég ekki mikið fyrir þá, en allir hafa smá gaman af þeim.
Til hamingju með sigurinn, Áfram Sindrastelpur með gleðinni tekst þetta.
                       Knús til þín flotta mín
                          Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.6.2008 kl. 09:01

7 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Við eigum vonandi eftir að hittast

Svanhildur Karlsdóttir, 8.6.2008 kl. 09:32

8 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Einmitt Jóhanna, en þeir sem ég hef heyrt eru ekki svona ,, míní-ofbeldi" eins og þú kallar þá, einn frændi minn er nú bara fullur af svona skemmtilegum bröndurum sem allir hlæja að!

Ég hljóð einn hring á tartani og svo gekk ég hina leiðina, ótrúlega dugleg...
Ég sem hélt að þú værir þessi týpíska kona sem færir í Kvennahlaup!
Knús

Milla, sem betur fer hafa ekki allir gaman af því sama.
Og takk fyrir það!
Knús

Já Svanhildur, þetta er ekki svo stór bær!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 8.6.2008 kl. 12:10

9 Smámynd: Guðrún Hauksdóttir

það væri nú ósköp leiðinlegt ef allir hefðu gaman af því sama.....

knús á þig flotta duglega stelpa

Guðrún Hauksdóttir, 8.6.2008 kl. 12:17

10 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Já Guðrún!
Knús

Hallgerður mín, ég er ekki að tala um klám heldur meira svona "dónabrandara", en þetta var nú bara sagt í gríni elsku Hallgerður, auðvitað vil ég hitta þig, þér er nú vel treystandi held ég....

Róslín A. Valdemarsdóttir, 8.6.2008 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband