Bloggvinir...

Það sem er ólíkt blog.is kerfinu og öllum hinum bloggkerfunum er það hvað blog.is er miklu samfelldara, fólk deilir á og deilir hlutum. Hingað inn á þetta kerfi kemur fólk til að gagnrýna fréttir, skrifa til annarra eða einfaldlega útaf félagsskapnum.
Á flest öllum öðrum bloggkerfum er oftast verið að blogga fyrir sjálfa sig og reyna að ná vinsældum, þar sem vinir halda uppi svokölluðum "crewum" og slúðra um aðra. Ekki sjaldan sem það verður eitthvað drama út af því.

Hér á moggablogginu hef ég kynnst allskonar fólki, fólki sem ég kæri mig ekkert um að vita og fullt af öðrum sem mig langar mikið til að fylgjast með. Flestir í mínum bloggvinahóp eru kvenkyns, enda er ég ekki í þeim hugarlundi að eignast fullorðna kallmenn sem bloggvini, það misskilst oft..

Ég get ómögulega ákveðið mig hvernig bloggvinahópurinn á að vera uppraðaður enda fullt af flottum bloggvinum sem mig langar mikið til að fylgjast með. Ég er löt að kommenta hjá þessum og hinum, en kommenta á flestar færslum hjá einhverjum. Það er oftast þannig vegna þess að oft er málefnið eitthvað sem ég get ekki tjáð mig um eða veit ekkert hvað ég get sagt.

Ég á fullt af flottum bloggvinkonum sem mér þykir endalaust gaman að stríða, og ég veit ekki hvort sumar fatti það yfir höfuð hvort mér sé full alvara eða öfugt.
Fólki finnst ég oft á tíðum mjög skrítin og ótrúlega rugluð á köflum, en það er það sem gerir lífið skemmtilegra, mismunandi fólk með mismunandi skoðanir.

Fólkið mitt utan bloggsins er mér mjög kært líka og þykir mér ósköp vænt um þau öllSmile Heart !
Reyndar þykir mér líka pínu vænt um suma bloggvini mína...Blush Joyful

Ég ætla að halda áfram að mála, og sýni ykkur svo afraksturinn, knús á ykkurHeart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús knús og yndislegar kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 4.6.2008 kl. 16:40

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Knús, nú hef ég startað andarungaumræðu á mínu bloggi og ætla ekkert að losna útúr henni. Bloggheimur er skrítinn heimur. Þú ert skemmtilega ferskur andi í bloggheima, svona ung og kotroskin. Ætlaði að setja einhver brosmerki og hjörtu og fleira, en það virkaði ekki núna!!..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 4.6.2008 kl. 16:46

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Knús á þig Linda

Eins gott hjá þér líka Jóhanna, aldrei að skilja við hálfklárað verk!
En takk kærlegaknúsknús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 4.6.2008 kl. 17:14

4 Smámynd: Linda litla

Þú ert soldið skítug í framan á nýju myndinni þinni Róslín  Flott mynd

Varðandi mína bloggvini, veistu að ég skammast mín ekkert fyrir það að segja að mér þykir vænt um marga af þeim, þó að ég þekki þá ekkert nema af blogginu. Reyndar þekki ég fullt af mínum bloggvinum og þá þykir mér auðvitað vænt um, en skrítið að bera tilfinningar til þeirra sem maður þekkir ekki. Þetta segir það að fólk á ekki að dæma eftir útlitinu.......  sammála ??

Hafðu það gott krúttið þitt.

Linda litla, 4.6.2008 kl. 20:40

5 Smámynd: Guðrún Hauksdóttir

 Knúsíknús sæta skvís

Guðrún Hauksdóttir, 4.6.2008 kl. 21:41

6 Smámynd: Linda litla

Gleymdi alveg að segja þér Róslín mín að þú ert ein af bloggvinum mínum sem að mér þykir ákaflega vænt um

Linda litla, 4.6.2008 kl. 22:13

7 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Linda ég er alveg sammála þér, að dæma eftir útliti er næstum eins og dauðadómur, ég geri það afar sjaldan að dæma fólk eftir útliti!!
Sömuleiðis Vonandi er það ekki bara útaf frægðinni...

Knús á þig Guðrún til baka

Róslín A. Valdemarsdóttir, 4.6.2008 kl. 23:02

8 Smámynd: Linda litla

he he he nebb, ekki út af frægðinni.

Linda litla, 4.6.2008 kl. 23:13

9 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Úff! Það var nú gott

Róslín A. Valdemarsdóttir, 4.6.2008 kl. 23:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband