ÉG GAT, ÉG GAT, ÉG GAT!

SKRIFAÐ BLOGGFÆRSLU!!

Í gær átti ég hinn fínasta dag. Vaknaði snemma og gerði mig til fyrir daginn.
Mætti með mömmu minni út á hóteltún og við settum af stað blásarana í hoppukastalana og þarna stóð ég í tvo tíma, var hetja, var elskuð, það var líka knúsað mig!

Ég hef nú ekki svo ég muni verið eitthvað sem börn þykir gaman að, en núna í dag hef ég eignast nokkra vini. Litlu frænku Árdísar vinkonu minnar, hana Díönu, en ég kynntist henni nú þegar hún var mikið yngri. Hún var á staðnum og þegar hún sá mig kallaði hún á mig ,, Róslííín! Komdu og knúsaðu mig!Grin ", auðvitað gekk ég til hennar og spurði hana um daginn og veginn. Algjör dúlla! Seinna heyrði ég frá henni kalla til mín á meðan hún klæddi sig í skóna ,, Róslín, ég elska þigSmile ", eins og ég segi bara krúttleg stelpa.
Hitti líka aðra vinkonu mína sem ég reyndi að koma í röðina, hún vildi eitthvað smygla sér inn, sú er nú algjört krútt líka...Grin
Svo hitti ég litla bróður vinar míns, hann Auðbjörn! Hann kallaði sífellt að mér ,, Þú ert kærastan hans Óskars !!" og ég reyndi nú að koma því á hreint að hann héti nú Rafn sem væri kærastinn minn ekki hann Óskar, en pilturinn var nú ekkert að ná því inn að sér, og þá var litla vinkona mín byrjuð að hjálpa mér....LoL
Ég hitti líka hina og þessa, en sá hvergi litlu vinkonu mína hana Snædísi, eða "veistuhvaðstelpan"..LoL


Eftir tveggja klukkutíma stund þar sem ég hafði nákvæmlega voða lítið vald á litlu brjáluðu krökkunum var tekið loft úr köstulunum og við mamma lögðum af stað heim. Ég fór út að selja SÁÁ álfana með Kristjönu og við seldum heila 14 í tveimur götum, einn hafði keypt álfinn áður og einn neitaði okkur, svo voru margir ekki heima.

Í morgun vaknaði ég tilbúin til skóla, nánar tiltekið að undirbúa íþróttahúsið til notkunar fyrir Skólaslitin á morgun. Ég gerðist svo hugdjörf að bjóða mig fram til að skúra, fyrsta skipti sem ég skúra og skúraði nokkuð vel, 1/3 af salnum hvorki meira né minna! Og ég get sagt ykkur það að þetta er frekar erfitt verk, maður svitnar alveg lengst niður í tær, reyndar var ég nær blaut í gegnum skóna og sokkana líka útaf því að ég sullaði svolítið á skóna...Whistling
Ég blés í nokkrar blöðrur, batt þær saman og hengdi upp, málaði ótrúlega fallegt blóm..........
og spurði veistu hvað og á ég að segja þér spurninga, taldi stólana sem voru 354 talsins og þess má geta að Rafn reyndi að rugla mig smá, en auðvitað ruglaðist ég ekkert, enda hlusta ég svo oft á sjálfa mig..
Fórum snemma heim og það sem kemur næst er ekki fyrir viðkvæma. Þar sem ég er kvefuð er ég með nefið fullt af hori í þokkabót ( aha, girnilegt ég veit!) og rétt tók eitthvað smá hor úr nebbanum og viti menn, það nær fossblæddi! Þegar ég hélt að þetta var búið, tók ég eftir einhverju rauðu inní nefinu mínu og dró frekar langa blóðklessu úr nefinu mínu. Ég er farin að hugsa um að láta brenna fyrir þessa æð, því ég sko skalf úr hræðslu!

Svo seinna í dag var ég alveg í spreng og hljóp inn á klósett, og dyragættirnar koma hornsinnis hjá klósettinu og herbergi mömmu og pabba, og viti menn hverju ég mætti.

Kalli litli könguló klifraði niður úr dyragættinni,
hann reyndi að komast niður en komst ekki lengra en í klósettið.
Því hún Sædís litla stóra systir mín kramdi greyið með klósettpappííír!
Whistling ( sungið með Kalla litla könguló laginu sko!)

Núna bíð ég bara eftir kjúklingabringunum, og síðan held ég í sturtu og Rafn ætlar svo að koma til mín, hann fer til Danmörku á næsta laugardag með hands hele familie


Knús til ykkurHeart

En endilega ef þið vitið ástæðuna hvers vegna, megið þið segja mér af hverju það komu svona margir inná síðuna mína í dag og gær...Gasp

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Auðvitað kíkir fólk inn á síðuna þína, en það er bara svo misjafnt hversu margir hvern dag, ég hugsa ekkert út í þetta, bara blogga það sem mig langar til.
                           Knús til þín bestust.
                              Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.6.2008 kl. 19:35

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Mér finnst þetta bara svo furðulegt, ég líka bara varð að kíkja eftir daginn í gær á Vinsældarlistann og er hoppin í 200+ hópinn! Og ég veit ekki hvort ég hoppi upp um einhver 100 sæti aftur...
Knús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 2.6.2008 kl. 19:53

3 Smámynd: Linda litla

Ég held bara að það styttist í frægðina hjá þér Róslín mín, það er örugglega ástæðan fyrir öllum þessum flettingum.

hafðu það gott sæta.

By the way. Mjög fín nýja myndin þin.

Linda litla, 2.6.2008 kl. 20:08

4 Smámynd: Guðrún Hauksdóttir

Ég held Róslín að ástæðan sé einföld  þú ert svo frábær og flott stelpa.

Hjúts knús á þig

Guðrún Hauksdóttir, 2.6.2008 kl. 21:42

5 Smámynd: Þórdís Guðmundsdóttir

Ég var að forvitnast um Jónu, en skemmtileg síða hjá þér!

Þórdís Guðmundsdóttir, 2.6.2008 kl. 23:17

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Maður má láta sig dreyma allavega Linda!

Sigga, jú en ég var nú bara að tala til bloggvina minna og fastra lesenda, því ég held rosalega upp á skrif hennar eins og lesendur  hennar taka kannski eftir af og til
Knúsíkrús ( Ég segi þetta bara við þig.. hahah)

Bara ef það væri eina gilda ástæðan Guðrún, bara ef svo væri!
Hjúts knús til baka

Já Þórdís, það eru allt of margir að forvitnast um hana, bíð bara eftir svari frá henni sjálfri!! En takk kærlega fyrir það

Róslín A. Valdemarsdóttir, 3.6.2008 kl. 00:14

7 identicon

stóra litla .. þú ert nú meiri .. eitthvað .. Það eru víst börn að lesa þetta líka svo við sleppum því ... já heyrðu .. ekki þorðir þú að koma nálægt pöddunni svo ég þurfti að redda þessu!

Sædís sys (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 00:50

8 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Heyrðu, suss! Ég var hetjan, annars hefði verið köngulóavefur fyrir dyrunum hjá mömmu og pabba þegar þau kæmu heim!!!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 3.6.2008 kl. 00:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband