31.5.2008 | 17:05
Hvað líður tímanum?
Nú bara ef ég vissi það, sú spurning hefur hvarflað að mér að spyrja fólk síðustu daga.
Ég var að taka lokaprófin fyrir 9. bekk í vikunni sem er að líða, hvað þýðir það?
Jú, ég er að eldast og er alveg að verða búin með grunnskólann, 10. bekkur næsta haust, þegar ég er búinn að vinna mér inn peninga. Það styttist ótrúlega hratt í það að ég verði að ákveða mig með framhaldið, ekki heimabærinn né fjölskyldan sem ákveður neitt fyrir mig. Ég fer að fara út á vinnumarkaðinn, ég verð sjálfráða eftir 3 ár, bílprófið kemur eftir 2 ár og ég verð vonandi búin með framhaldsskólann og byrjuð að undirbúa mig undir háskóla eftir 5 ár.
Hvað segir þetta mér?
Jú, ég er að að fara á þau stig þar sem ég undirbý mig fyrir sjálfstætt líf, ein, þó vonandi með einhverjum förunauti.
Sumum finnst ótrúlegt hvernig ég hef planað mig út í lífið, hvað mig langar um hitt og þetta. Þó verð ég að mæta hindrunum út í lífið, höfnunum fyrir einhverju sem ég hef kannski undirbúið mig fyrir síðan ég man eftir mér. En í dag hef ég mörg "varaplön", því ég hef áhuga á svo allt of mörgu að ég veit ekki hvað ég vil leggja að fótum mér.
Eins og allir sem hafa spurt mig hvað mig langi til að verða, og hvað ég ætla mér að gera þegar ég verð stór þá langar mig mest út á leiklistarbrautina. Það er erfitt hér á Íslandi að koma sér á framfæri í leiklist, enda svo ótrúlega fá tækifæri sem manni eru gefin.
Mér var sagt af stráki úr leikhópnum að það gæti verið minni möguleiki útaf háralit!
Sumir telja mig hugmyndaríka, stundum á köflum er það alveg satt hjá fólki, en af og til get ég verið ótrúlega sein í hugsunum, þó er það svo oft þannig að ég næ ekki að framkvæma helminginn af þeim snilldar hugmyndum sem upp í koll mér koma.
Mig langar að spurja ykkur,

hvar haldið þið og viljið að þessi manneskja verði eftir 6-10 ár?
Knús
E.s. Ég ætla að halda áfram með bókina sem Hallgerður bloggvina mín vildi að ég læsi, heimsspekibókina Veröld Soffíu.
Athugasemdir
Flýttu þér hægt.
Svetlana, 31.5.2008 kl. 22:58
trúðu mér, ég flýti mér hægt
Róslín A. Valdemarsdóttir, 31.5.2008 kl. 23:02
Takk ÆÐISLEGA fyrir þetta Sigga, fékk mig vel til að hugsa




En með vinnuna í sumar, ég er með fæturna í sitthvorum pottnum, ég bíð enn eftir svari um vinnuna sem mig langar rosalega að taka, hún er á vegum bæjarins sem og unglingavinnan. Ég held ég fái sömu laun svo það er bara að velja sér umhverfi og hvað manni finnst skemmtilegra..... ég læt þig vita strax og ég fæ svar
Knús
Ég get ekki sofnað strax.......... vegna einhverra einmannalegra ástæðna, færð að vita um það líka síðar....
Róslín A. Valdemarsdóttir, 31.5.2008 kl. 23:29
Hahahaha, Sigga, ég held það sé ekki í lagi með mig, er orðin nett klikkuð!

Örfáar mínútur þangað til að þú kemst að því hvað ég meina.....
Góða nótt
Róslín A. Valdemarsdóttir, 1.6.2008 kl. 00:37
Takk kærlega Helga mín

Góða nótt
Róslín A. Valdemarsdóttir, 1.6.2008 kl. 00:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.