Til að vera eins og allir aðrir! ( endurbætt )

Þá verð ég að koma með hérna innskot útaf jarðskjálftunum í dag, þannig er mál með vöxtum að ættfólk mitt býr nú margt þarna suður á Selfossi, en ég hef nú ekkert heyrt  frá þeim og hvort illa hefur farið.
En aftur á móti eiga amma mín og afi sumarbústað þarna uppeftir í Grímsnesi og sem betur fer fór ekki allt fjandans til þar, og því er ég afarþakklát!
Aftur á móti er fólk sem missti nær aleigu sína sem mér finnst afar erfitt að horfa uppá hér á Íslandi, náttúruhamfarir sem eyðilagði hús! Hvurslags og annað eins, er Ísland að ryðga í sundur eða hvað?
Nei einmitt ég bara spurði!
Búin að hamast við það í dag að reyna að muna hvar hitt og þetta er á landakorti og ef ég fæ ekki gott fyrir það verð ég kolbrjáluð, ég meina það, kolBRJÁLUÐ!

 En ó mæ sko, hvað ég hef misst af góðu veðri, og því að borða ÍS!
Ég er nú ekki á því stigi í heilsunni að mega það, hver veit hvort ég myndi ekki bara hósta úr mér líftúruna eða hvað sem það nú heitir! Ég ætla að fara í verkfall á móti kvefi þegar er sól! Ég vil ekki sjáidda!


En lásuð þið fréttina um jarðarförina á torginu þarna í Reykjavík? Ég gerði það reyndar ekki, allavega ekki alla, en í fyrstu hélt ég að Sturla væri hrokkinn upp! Úff hvað ég ætlaði að vorkenna grey manninum, að standa svona í miðri bensín-baráttu! Eða Dísel, ég veit ekki.
Kannski stálu þeir kistunum? Nei, ég kenni ekki einhverjum um nema að ég viti að það sé satt..

Mér finnst það aftur á móti gott að þeir gáfu Jóhönnu blóm, hún á það svo sannarlega skilið... held ég!
Allavega, erum við ekki í samfélagi sem ríkir lýðveldi? Nei ég held nefnilega ekki, eina sem gefur það til merkis er hún Jóhanna að ég held, af þingmönnum yfirleitt... nei uss Róslín!

Ég skammast mín fyrir þessi orð, en þetta held ég!

Og nú er að klára að læra undir samfélagsfræði!

SMÁ ENDURBÆTING!
Var að koma úr íslensku- og samfélagsfræðiprófi og mér gekk hreint ágætlega í hvorutveggja að ég held, núna er skólinn lærdómséð búinnGrin ! Og skólaslitin á þriðjudaginn!!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Þú ert æðisleg!

Huld S. Ringsted, 29.5.2008 kl. 22:59

2 Smámynd: Linda litla

ha ha ha skemmtileg færsla hjá um allt og ekkert og úr einu í annað..... eða það held ég ;o)

Krúttið þitt, hafðu það gott.

Linda litla, 30.5.2008 kl. 01:00

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Sigga mín, þessi færsla var skrifuð í sjálfsvorkunareymd, ég er komin með leið á því að vera INNI endalaust og ekki mega fara út, og því að umgangast nánast bara heimilisfólkið...

Takk takk takk

Haha, takk Huld

Linda ég er mjög mikið fyrir það að tala um einn hlut og allt í einu er manneskjan sem er að tala við mig enn að tala um sama hlutinn og þannig fer það út í oft skemmtilegan misskilning...
Hafðu það sömuleiðis gott!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.5.2008 kl. 13:37

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Róslín mín, þú "verður aldrei eins og allir aðrir", þú ert einstök.  Til hamingju með próf- og skólalok

Sigrún Jónsdóttir, 30.5.2008 kl. 14:51

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Haha, maður varð að lifa sig inní þetta, allt of mikið að gerast!

En takk fyrir það

Ég er núna í háannar hreingerningum, og að setja inn myndir, og ef mér tekst að klára tiltektinni snemma mun ég senda hingað inn fleiri myndir úr Grasagarðinum

Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.5.2008 kl. 14:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband