Að glósa fyrir stærðfræðipróf!

Ég get sagt ykkur að það getur verið mikil kúnst, fékk skrifuð niður á blað hvaða dæmi ég ætti að fara vel yfir upp úr bókinni, svo ég vona að það verði bara uppúr því og í samræmi við þau.
Í dag lentum við krakkar í 9. bekk í því að fá á prófi spurningar sem voru upp úr kafla sem var ekki gefinn upp á gátlistanum að ætti að fara yfir, alveg nóg að fara yfir kafla 5 - 7, en það hefði verið ágætt að fá það með. Því að eins og ég skildi ekkert í þessu, og mundi ekki eftir því að hafa farið yfir það í gær.
Það reyndist alltsaman rétt þegar strákar úr hinum bekknum spurðu kennarann að því hvort þetta væri ekki upp úr 4. kafla, hún sagði að við ættum að muna eftir þessu.

Mér finnst þetta ekki sanngjarnt gagnvart nemendum sem læra kannski fullt undir próf, af GÁTLISTANUM sem á að standa nokkurnveginn hvað verði lagt fyrir okkur, í annarri mynd þó.
Ég lærði ágætlega fyrir náttúrufræðiprófið, en gekk tregagang yfir stjörnufræðina, þar sem við höfum a.m.l. farið í 5 tíma í stjörnufræðitímunum þar sem kennarinn hefur verið. Og ég er alls ekki sátt!

Ég er ekki að gera lítið úr kennaranum, en mér finnst bara leiðinlegt þegar svona á sér stað.

Aftur á móti gekk mér hörmulega illa í náttúrufræði-kynfræði-stjörnufræðiprófinu og náði að sitja þar inni í einhvern hálftíma bara yfir því að lesa yfir alla svarmöguleikana og velja það sem mér fannst hljóma réttast.
Ég náði að rífa mig upp í dönskuprófinu eftir langa bið, þar sem ég má helst ekki fara út úr húsi, við mamma viljum halda mér inni svo ég losni við þennan vonda hósta sem hrjáir mig núna, svo hann verði ekki mikið lengur.

En ég stóð mig ótrúlega vel í dönskuprófinu miðað við aðstæður, þar sem ég átti algjörlega eftir að fara yfir allt nema textana. Reyndar var ég búin að læra þetta alltsaman fyrir fyrra prófð, þar sem ég fékk 8.5 fyrir. En mér fannst dönskuprófið mjög vel sett upp, því að ég skildi allt sem var beðið um!Wink

Átti bara í eriðleikum með að svara því hvað Om tid...... man ekki orðið, og að svara í einni spurningunni. Áttum að skrifa um sjálfa okkur í ritun og eins og fólk fer að vera kunnugt um á ég ekki erfitt með það, enda þykir mér með eindæmum endalaust gaman af því að svara spurningum og segja fólki eitthvað um mig, því ef ég veit mikið um eitthvað og einhvern er það ég!

Ég fer í ensku og stærðfræði á morgun, á fjögur próf eftir með þeim, en ég ætla að massa þau og byrja að læra snemma fyrir samfélagsfræðina og íslenskuna, þar þarf að taka til í því pokahorninu, obbossí, þið heyrið rétt, Róslín skilur ekkert í íslensku!Undecided Enda bara flókið og ótrúlega heimskulegt að læra hvað sé viðskeyti og svona...Angry!

En er að reyna að glósa upp úr kaflanum sem ég var fyrst í bekknum meðWink!

KnúskveðjurHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Dugleg ertu og gangi þér vel í prófunum. knús og kram

Kristín Katla Árnadóttir, 28.5.2008 kl. 17:49

2 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Gangi þér vel í prófunum. Annars verð ég að segja að það er bráðnauðsynlegt að kunna málfræðina almennilega. Hjálpar ótrúlega við nám annarra tungumála. Ég myndi t.d. hafa gefið mikið fyrir það að nemendur mínir í Manitoba hefðu lært almennilega enska málfræði. Þá hefði ég ekki þurft að útskýra fyrir þeim hvað eru óreglulegar sagnir, atviksorð, o.s.frv. Þeirra vankunnátta í eigin máli gerði mér lífið erfiðara.

Þannig að þú skalt bara hugsa um íslenskuna þannig að þótt það virðist kannski ekki gagnlegt að læra þetta í þínu eigin tungumáli sem þú kannt greinilega mjög vel, þá mun þetta koma þér að miklum notum þegar þú ferð í menntaskóla og ferð að hella þér í efri stig af ensku, dönsku, þýsku og jafnvel frönsku. 

Kristín M. Jóhannsdóttir, 28.5.2008 kl. 17:52

3 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 28.5.2008 kl. 20:04

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Gangi þér rosa, rosa vel, þú ert svo hugsandi og vel meðvituð stelpa að þú átt eftir að ná langt. Rétt viðhorf til náms kemur manni býsna langt.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 28.5.2008 kl. 20:34

5 Smámynd: Anna Guðný

kveðja frá Tenerife.

Hafðu það gott heima. Ert þú ein af þeim sem er "asnalega" sólbrunnin? eins og Ragga talar um.

Anna Guðný , 28.5.2008 kl. 22:37

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk Katla mín, knús á þig

Takk Kristín fyrir það.
En ég skal segja þér það, að ég hef reynt að fylgjast með þessu eins vel og ég get í tímum, og spurt kennarann margoft um það sama og fæ svörin og allt það, hvernig ég finn út sagnfyllingu, atviksorð og svoleiðis, en þetta festist ekki inní hausnum á mér!!!
Mér fannst ég taka dönsku prófið afberandi vel, ég ætla að leggja það fram fyrir mig til að byrja með og bæta mig í mínu eigin móðurmáli og enskunni líka.

á þig Linda!

Takk Jóhanna mín! Ég hef samt ekki þetta rétta viðhorf í alvöru talað!

Anna Guðný, takk kærlega fyrir kveðjuna, vonandi hefurðu það sem allra best á Tenerife!
Og nei, ég er ekki "asnalega" sólbrunnin eins og Ragga talaði um, ég brenn þegar ég er úti í sól, og ég hef ekki fengið að fara út, vegna kvefs!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 28.5.2008 kl. 22:50

7 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk Sigga mín!
Ég verð bara bráðnuð undan pressu sko, allir hafa RISATRÖLLATRÚ á mér, úff barasta, svo koma einkannirnar og þá fara IP tölum fækkandi á síðuna mína..!

Knús á þig Sigga mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 28.5.2008 kl. 23:39

8 Smámynd: Guðrún Hauksdóttir

Átt þú ekki að vera að læra stelpuskott ? haha

Guðrún Hauksdóttir, 29.5.2008 kl. 00:25

9 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

O-jú Guðrún, ég lærði eins og ég gat....
En hinsvegar á ég að vera sofnuð núna, en bara ég er ekki þreytt og er að horfa á Grey's Anatomy! Sem var að enda.....

Róslín A. Valdemarsdóttir, 29.5.2008 kl. 01:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband