Þekkið þið einhvern blaðamann...

.. sem gæti haft áhuga á því að skrifa um eiginlegafyrirmyndaunglinginn mig?Grin

Eiginlega stendur fyrir því hvað ég er óklár í sumum fögum í skóla, og stundum óttalega fyndin. Ég er núna búin að vera að læra og gera eitthvað þess á milli, þar á meðal að nenna að fara fram og fá mér að borða, kíkja af og til á póstinn minn og tala við Rafninn minn.

En í framhaldi af því sem ég segi hér að ofan, þá tek ég undir að þetta er sagt í aðeins meiri alvöru en gríni, ef þið vitið um einhvern blaðamann/blaðakonu sem er að leita eftir JÁKVÆÐRI frétt, þá endilega vísið þið þeim á mig. Og vonandi kemur út úr því hið fínasta viðtal.

Þið vitið mörg að um daginn, sem er fyrir svolitlu, skrifaði ég hér færslu um það hvað mig langaði mikið í þáttinn til Evu Maríu, sem ég veit ekki hvort stendur enn til boða. Ég hef reynt að hafa samband en ekkert svar berst frá henni, svo ég nenni ekki að standa í hárinu á  henni. Þó svo ég viti að hún væri örugglega, líkt og alþjóð ( mínus einhverjir sem ekki líka við mig ), væru vel til í að sjá inn í heim svona stúlku.

Þegar ég var í lokapartýi með leikhópnum, þá sagði Júlli ( sá sem ljósamaðurinn hélt að væri bróðir minn því ég var að segja honum að koma ekki nálægt mér...W00t ) við mig ,, Ég væri til í að vera þú í einn dag, sitja bara og hlusta á allar hugsanirnar...". Ég tel það vera hrós, enda tek ég til hinna ýmsu ráða af og til, sem kemur fólki ýmist til að hlæja, brosa, eða mygla út frá því hvað það líkar ekki við mig og mína vitleysu.

En ég spyr ykkur, ef þið getið vísað blaðamanni/blaðakonu á mig, þá endilega bara!Grin
E-mailin mín eru hér í höfundarboxinu efst til vinstri!

Knús á ykkur, nú held ég áfram í uppreisninni á móti lærdómnum, synda á móti straumnum!Heart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Hallgerður, ég held ég sé búin að fylla mælinn í dag, af því að tala við sjálfa mig.
En það er gaman að heyra í þér mín kæra!

En þér skal ég segja, að mig langar að verða eitthvað stórt og flott í framtíðinni, og það er ágætt að byrja snemma. Ég ætla að verða góð fyrirmynd!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 27.5.2008 kl. 21:17

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Æ, mér þykir þú svo skörp kona Hallgerður, ég skal hlusta á þig í þetta skipti, en samt ætla ég að gá hvort einhver hefur áhuga..

Róslín A. Valdemarsdóttir, 27.5.2008 kl. 21:44

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Róa sig stelpa. Farðu að ráðum Hallgerðar.

Þröstur Unnar, 27.5.2008 kl. 21:53

4 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Hallgerður, lofa þér því, hef ekki mikinn áhuga á bókinni sem ég er að lesa núna, gleymi alltaf að skila henni meirað segja!

Sigga mín, ég kann ekki við að skrifa við fréttir eða annað slíkt, ég fer hjá mér að sjá hvað margir koma inn á síðuna mína í þau skipti.
Ég vona að fólk taki mark á mér bara, ég get verið óttarlegt egó af og til, en stundum er það ágætis leið....

Knúsíkrús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 27.5.2008 kl. 21:55

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég skil þig ágætlega Sigga!

Þröstur, stundum koma tímar sem maður er svolítið lítill í sér og maður vill verða betri en það, og þegar maður er alveg að drepast úr leiðindum við lærdóm, poppar svona upp í hugann á manni... en mig langar svo!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 27.5.2008 kl. 21:57

6 Smámynd: Þröstur Unnar

Það að vera lítill í sér stundum er eðlilegasta tilfinning ever, og " að verða betri en það" er ekki hægt.

Farðu svo að sofa stelpa og dreymi þig frægð og frama í rólegheitunum.

Þröstur Unnar, 27.5.2008 kl. 22:15

7 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Afsakið Þröstur, ég næ ekki að lýsa sumu fyrir fólki rétt eins og það er í kollinum á mér.

Ertu eitthvað fúll?
Ég get ekki sofnað strax, lærilærilærilærilæri endalaust og afturábak til baka!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 27.5.2008 kl. 22:17

8 Smámynd: Þröstur Unnar

Neibs ekki fúll fyrir fimmaura. Góða nótt.

Þröstur Unnar, 27.5.2008 kl. 22:20

9 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Þar er gott
Góða nótt!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 27.5.2008 kl. 22:23

10 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ha, ha, ha... Róslín - þú ert haldin pinkulítilli (eða kannski mikilli) athyglisþörf. Það er bara allt í lagi. Maður lifir það alveg af. Það er í lagi að vekja athygli ef við erum að láta gott af okkur leiða og getum gert það í leiðinni. Ég tek samt undir orð Hallgerðar þar sem hún segir að það borgar sig að fara ekki fram úr sjálfum sér.

Við vorum einu sinni með brúðuleikrit (á 40 ára afmælinu mínu) og dóttir mín var með ljóshærða brúðu sem átti að vera ég. Svo segir hún allt í einu: ,,takið eftir mér, ég er Jóhanna og ég er athyglissjúk."  ... Mér brá svolítið, en kannski var það bara satt..  Það gerir nú samt ekkert til því okkur mæðgunum þykir afskaplega vænt um hvora aðra.

Knús á þig og njóttu dagsins. Carpe Diem!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 27.5.2008 kl. 22:54

11 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Æji Jóhanna, látt'ekki svona!
Bara pínu mikilli athyglisþörf, en ég skal lofa þér því, ef þú og annað fólk myndi hitta mig, þá er ég allt öðruvísi, ótrúlega feimin ( þú ræður hvort þú viljir trúa mér eður eigi)...
Ég fer örugglega ekki fram úr sjálfri mér, vegna þess að ég fæ allt svona svo oft ekki framgengt...

Oftast þorir fólk sem þjáist af einhverri athyglissýki ekki að viðurkenna það þegar það verður eldra, gleymir því bara smá...
En er það ekki bara fínt að vera athyglissjúk?
Þá er það oftast þannig að fólk elskar mann eða hatar.....

Knús og þú þarna allratalanditungumál hvað þýðir Carpe Diem?
( Forvitin fær ekki að vita... ohh ! )

Róslín A. Valdemarsdóttir, 27.5.2008 kl. 23:01

12 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Sæl aftur fröken fræg!

Ég held að Carpe Diem þýði bókstaflega ,,Gríptu daginn" .. ég er ekki lærð í Latínu, því miður - þó ég sé búin að læra, ensku, dönsku, frönsku, þýsku, grísku og smá í hebresku..

Þetta þýðir í raun að njóta augnabliksins, njóta núsins. Ein góð bíómynd ,,Dead Poet´s Society" fjallar um kennara sem átti þennan uppáhaldsfrasa. Hún er alveg frábær þessi mynd og mér finnst að allir ættu að sjá hana.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 27.5.2008 kl. 23:21

13 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Úngfrú ( með stóru Úi) Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir!

Kannski ég finni hana einhverntíma og horfi á hana, þ.e.a.s. ef ég hef þolinmæði til þess....

En mannstu þá öll þessi tungumál? Renna þau ekki öll saman í eitt bara? Svo gleymdirðu íslenskunni!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 27.5.2008 kl. 23:25

14 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

knús knús og þúsund kossar yfir til þín elsku stelpatakk fyrir mig ljúfust

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 27.5.2008 kl. 23:26

15 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Knús tilbage á þig Linda

Róslín A. Valdemarsdóttir, 27.5.2008 kl. 23:35

16 Smámynd: Linda litla

HEY !!!! Láttu mig vita þegar þú verður fræg, þá neni ég kannski að þekkja þig   HA HA HA HA HA

Ég er svoooo svakalega fyndin að ég dey úr hlátri.

Gúdd næt...

Linda litla, 27.5.2008 kl. 23:56

17 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Heyrðu mín kæra!
Þú færð sko ekkert knús frá mér....

Þá vitum ég og ég hvoru megin þú ert í genginu, þú greinilega í hötunargenginu...........

Róslín A. Valdemarsdóttir, 27.5.2008 kl. 23:59

18 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Góðan dag Róslín,

Varðandi tungumálin þá kann ég auðvitað mest í íslensku - sem ég gleymdi að telja upp, ensku og dönsku, smá í frönsku og þýsku en obbolítið í grísku og ekkert lengur í hebresku .. nema kannski orð eins og adonai sem ég held að þýði Drottinn. Ég kann EKKERT í stjörnufræði .. sorry - tja jú ég kann svolítið í Hollywoodstjörnufræði ..  og verð auðvitað orðin sérfræðingur í þér þegar þú ert orðin stjarna!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 28.5.2008 kl. 08:40

19 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Góðann daginn!
Var að koma úr prófunum!

Þú mátt endilega kena mér ensku og dönsku, fyrst þú kannt EKKERT í stjörnufræði
Reyndar er það orðið of seint með stjörnurnar, það var samt voða lítið spurt um það sem var sett á listann!!!!
Hollywood Bollywood sko, ég er hrikaleg í þeirri fræðinni, veit meira um þessa íslensku!
Eigum við að bítta myndum?????!!!!!!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 28.5.2008 kl. 13:12

20 Smámynd: Linda litla

Ertu orðin fræg ???

Linda litla, 28.5.2008 kl. 14:14

21 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

JÁ!!!!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 28.5.2008 kl. 14:18

22 Smámynd: Linda litla

Frábært. Vertu velkomin í frægvinahópinn minn.... Braddi bað að heilsa.

Linda litla, 28.5.2008 kl. 16:14

23 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Thank you, very nice... HIGH FIVE!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 28.5.2008 kl. 16:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband