Í tilefni af því að hægri akstur er 40 ára í dag..

.. þá ætla ég að tilkynna ykkur það, mjög gaumgæfulega, að á morgun, þriðjudaginn 27. maí birtist mynd af engri annarri en mér og konunum sem voru í ljósmyndahittingnum í mogganum.
Ég held ef ég fer með rétt mál að fréttamaður hafi tekið viðtal við Gúnnu, stofnanda grúbbunnar.

Aftur á móti fór ég yfir einhverjar gamlar myndir og fékk nokkrar útkomur á því;


Við nokkrir vinirnir, frá vinstri, Yrsa Líf, Kristjana Hafdal, Árdís Drífa, ég, Eva Kristín og Óskar Þór.
Þess má geta að Ragga tók þessa mynd á leik 4. flokks í fyrra sumar.


Sæt kusa, uppáhalds dýrið mitt!


Ekki besta myndin en mér finnst hún svo skemmtileg, strákurinn örugglega að hugsa ,, .... he stinks!!!"


Ég að mála herbergið mitt 2007, fyrir ferminguna mína....Whistling

Svo vil ég vera rosalega skemmtileg, því í framhaldi af blogginu The Nanas.
Þá gerði ég myndband af ferli hennar Nönu í Idolinu, og sendi henni það á dvd disk ásamt handskrifuðu bréfi, mér finnst allt svoleiðis svo gamanGrin!!



Sendi ykkur knús inn í kvöldið, nú ætla ég að læraHeart



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Flottar myndir. Ekkert skrítið að þú elskir þessa kúhún er með sama háralit og þúubbs var búin að gleyma að það má ekki stríða rauðhausum
en þú fyrirgefur nú gamalli konu sem er að missa minnið
                             Knús til þín 
                             Milla pilla skíta rilla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.5.2008 kl. 20:04

2 Smámynd: Linda litla

Mikið er ég fegin að þú ákvaðst að mála yfir þennan græææææna vegg, varstu ekki alltaf að fá martröð þegar þú svafst innan um svona grææææna veggi ??

Linda litla, 26.5.2008 kl. 23:59

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Uppáhalds kýrnar mínar Milla mín, eru þær hvítu með svörtu doppunum, bara íslenskar svoleiðis. Það er bannað að stríða almennt, nema að það sé ég sem er að stríða!

Knús

Sigga, kúin er ekki alveg jafn sérstök og við í ljósmyndagrúbbunni..
Knús

Linda mín, úff sem betur fer var hann nú ekki svona grænn, hann var mikið mildari, ég var bara að breyta litunum í photoshop. En þú hefðir átt að sjá litinn á herberginu mínu þegar við familían bjuggum í gamla húsinu, þar var það sko svo grænt þegar við máluðum það að maður fékk ofbirtu í augun!!!!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 27.5.2008 kl. 00:06

4 Smámynd: Linda litla

Heyrðu góða, átt þú ekki að vera að læra ??

Linda litla, 27.5.2008 kl. 00:33

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Heyrðu góða, á ég ekki að vera sofandi frekar?

Ég fer ekki í skólann á morgun svo að ég mun nýta morgundaginn vel að læra fyrir dönsku og náttúrufræðipróf...

Róslín A. Valdemarsdóttir, 27.5.2008 kl. 00:37

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Frábært myndbandið þitt um Nönu.  Ég hélt líka upp á hana í Idolinu.

Frægðin er að koma hægt og sígandi Róslín mín

Sigrún Jónsdóttir, 27.5.2008 kl. 01:30

7 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég fór næstum að gráta þegar hún datt út, ég hélt svo mikið upp á hana!
Já, mér sýnist það líka!!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 27.5.2008 kl. 10:23

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Knús og kossar og góðan dag.

Kristín Katla Árnadóttir, 27.5.2008 kl. 10:35

9 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Knús, góðan daginn til þín Katla.

Nú verð ég að fara að byrja að læra, vonandi verður hóstinn horfinn og hnerrið líka fyrir morgundaginn, prófin að byrja.

Róslín A. Valdemarsdóttir, 27.5.2008 kl. 10:38

10 Smámynd: Guðrún Hauksdóttir

Gangi þér vel í prófunum bráðskemmtilega stelpa  

Guðrún Hauksdóttir, 27.5.2008 kl. 13:23

11 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk fyrir það Guðrún!

Ég er greinilega hrikalegur lygari, fór ekki að læra í gærkvöldi, er samt núna að reyna að læra...

En ég minni ykkur á að kíkja í moggan í dag!!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 27.5.2008 kl. 13:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband