Reykjavíkurferðin!

Á fimmtudaginn lagði ég af stað í langa ferð til borg óttans. Við komum seint, því við lögðum af stað um 5 leitið.

Á föstudeginum var skundað í búðir, við mamma gengum berseksgangi yfir allar búðir, en ekki fólk þó. Ég fékk gallabuxur, kjól, boli og glingur, annað kom ekki út úr þeirri ferðinni.
Um kvöldið var svo farið í stúdentsveislu til Þórdísar Ingu, systurdóttir pabba. Hún var að útskrifast úr Kvennó, og einkunnirnar sem hún fékk, vá!!! Meðaleinkunin yfir 8.5 að mig minnir, ótrúlega flott!
Ég hitti allflesta ættingja mína, úr föðurætt, ótrúlega skemmtilegt fólk þar á ferð, hitti líka frænku mína sem ég hef ekki hitt í 2 ár, hún gekk framhjá mér án þess að fatta að þetta væri égLoL !
En mér fannst æðislega gaman að hitta fólkið mitt, því þetta er nú svo skemmtileg ætt!!!

Í gær, laugardag tók ég mig til og lagði síðan af stað í Grasagarðinn í Laugardalnum. Ég gekk að Café Flóru með foreldrum mínum og þar biðum við eftir að einhverjar dömur skildu láta sjá sig. Mig minnir að fyrstar á eftir mér hefðu komið Jóhanna H og Ástríður. Svo fóru konurnar að tínast til okkar og náðum við alveg upp í 15 manns ef mig minnir rétt. Við fórum að mynda til kl. 12.30 og fengum "frítíma" til þess til kl. 14.00. Ég elti hana Fríðu ( Sylvíu ), og tók nokkrar ágætis myndir.
Enduðum eiginlega við tjörnina sem endurnar og fleiri fuglar eru, þar hittum við síðan Hag, ljósmyndara og fréttamann hjá Morgunblaðinu og við gengum mörg að Café Flóru aftur.
Þar var pantaður matur, og ég fékk mér kjúklingasamloku, mjög fínt veitingahús. Ég fékk kjúklingasamlokuna mína, og frýrnar fengu sína rétti, Hag tók nokkrar myndir af fríða hópnum sem þarna var samansestur.
Það var myndað okkur dömurnar og allar fengum við okkur að borða og spjölluðum.
Rétt áður en flestar fóru að tínast heim til sín eða hvert sem þær ætluðu nú, kallaði Gúnna ( Guðmunda ) í mig og bauð mér að koma til sín upp í stúdíó hjá Rúv og skoða þetta alltsaman. Ég fékk ekki leyfi til að fara, því við vorum á leið til ömmu og afa upp í Grímsnes. En þarna missti ég af gullnu tækifæri að sjá hvernig sjónvarpsefni er unnið.
Úr Grasagarðinum ók ég af stað með Jóhönnu H og Ástríði upp í Holtagarða, og Sigrún Bein og Ingibjörg í öðrum bíl. Þar hittum við Ingu D. Sig. í Eymundsson og skoðuðum nokkrar ljósmyndabækur. Þaðan fórum við svo fimm frá Ingu og upp í Ráðhússýninguna, æðislega flottar myndir þar, meirað segja eftir nokkrar í grúbbunni, svo ég mæli eindregið með því að þið kíkið og skoðið þessar frábæru myndir!
Þessar konur sem ég hitti þarna, ég þori ekki að telja þær upp, hrædd um að gleyma einhverri. En þær sem ég hitti fannst mér rosalega góðar konur og ótrúlegar ljósmyndirnar þeirra!!
Pabbi sótti mig út í Ráðhús og þaðan sóttum við mömmu og upp í Grímsnes í grill og Eurovision til ömmu og afa. Við fyldumst með Eurovisioninu og prívat og persónulega fannst mér okkar lag best, enda hin löndin bara með klíkuskap!!

Eftir eurovision úrslitin gengum við mamma og amma aðeins og ég festist í símanum, á netinu!!!
Þegar inn í bústað var komið var lottóið að byrja, og ég reyndi að ná athygli mömmu, ömmu og pabba en það gekk ekki, svo við afi horfðum á Gúnnu í lottóinu! Og viti menn, ég gat ekki annað en brosað við að horfa á hana Gúnnu, enda frekar fyndið að hafa hitt hana í dag. Flott kona þar á ferð!

Í dag var lagt af stað heim og fór ég strax á leikmannakynningu meistaraflokkanna og lékum svo við krakkana þar á eftir.

Núna sit ég rosalega kvefuð, að ég er með hausverk og stíflu örugglega í kinnholunum og ennisholunum.

Ég sendi ykkur knús!Heart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman að sjá þig í eigin persónu

Leiðinegt að þurfa að hlaupa í burtu með argandi barn :) en vonandi getum við eitthvað hist meira í sumar :)

Fríða Sylvía (IP-tala skráð) 25.5.2008 kl. 17:55

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Til þín Helga!

Sömuleiðis Fríða mín!
Hahaha, ég er enn að spá í hvaðan strákurinn fær þessa frekju, ég trúi því ekki að hann fái þetta frá pabba sínum...

Það væri bara gaman!!!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 25.5.2008 kl. 17:59

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Skemmtileg ferð þetta, er annars nokkurn tímann leiðinlegt hjá þér,
ekki hjá mér.
Skjóðan mín er ekki hissa þó þú sér veik af útkeyrslu,
maður þarf sko líka að hvíla sig, farðu vel með þig skjóða.
                      Knús kveðjur
                       Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.5.2008 kl. 20:11

4 identicon

hahahahahaha góð

nei ætli það sé ekki frekar frá mér því ver og miður

Sylvía Fríða (IP-tala skráð) 25.5.2008 kl. 22:07

5 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Gaman að fá bloggið úr bústaðnum! Þetta hefur verið svaka skemmtileg reisa hjá þér Róslín mín og svo sumarbústaðakósýheit í kaupbæti.

Góðan bata af kvefinu þínu og ölls sem því fylgir.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 25.5.2008 kl. 22:34

6 Smámynd: Linda litla

Skemmtileg færsla hjá þér Róslín og þetta hefur greinilega verið skemmtileg ferð, láttu þér nú batna, farðu ekki að verða lasin svona þegar sumarið er komið.

Linda litla, 26.5.2008 kl. 08:26

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kristín Katla Árnadóttir, 26.5.2008 kl. 12:24

8 Smámynd: Garún

Þú ert með eindæmum lífsglöð!  Ég er komin í frábært skap eftir að hafa lesið færslurnar þínar.  Það er eins og orðin springi af hlátri þegar maður les þau.   Varðveittu þennan hæfileika kellí....töffari

Garún, 26.5.2008 kl. 13:10

9 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Já það var yndislegt í bænum Sigga!
Knús

Skemmtilegu fólki leiðist aldrei Milla mín! Sem gefur það í skyn að ég sé ekki svo skemmtileg...
Knús

Fríða, það þýðir nefnilega ekkert að láta sem að drengurinn fái þetta frá pabba sínum!

Jóhanna, ég ætlaði að taka smá bloggrúnt í símanum mínum, kíkti á þig og skrifaði, svo gafst ég upp því að síminn neitaði að opna fleiri, fleiri síður!
Takk fyrir

Takk Linda mín, en þú hefðir betur sagt ,, farðu ekki að vera lasin svona þegar PRÓFIN eru að byrja"..

til þín Katla!

Mér finnst æðislegt að heyra Garún, en ég reyni með bestu getu að vera lífsglöð..
því að ,, Við lifum aðeins einu sinni, á þessum stað, í þessu skinni. Og því er um að gera'ð nýta, hvert tækifæri sem beeeeest"..
En takk æðislega fyrir þessi orð, þau eru mér mjög kær og hvetjandi!!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 26.5.2008 kl. 13:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband